Wednesday, August 20, 2014

Tvö ár!

Ótrúlegt en satt, þá eru núna komin tvö ár síðan við Brjánn hittum Kára Björn í fyrsta skipti í hótellobbíinu í Jinan. Okkur finnst samt að hann hafi bara alltaf verið hjá okkur.


Ég ætla að hafa þetta síðustu bloggfærsluna, hef ekkert sett inn í langan tíma en set inn lokafærslu í tilefni af þessum tveggja ára tímamótum hjá fjölskyldunni.


Kári Björn er kátur, orkumikill og forvitinn strákur sem heldur áfram að stækka og læra nýja hluti. Hann talar núna alveg endalaust, er með góðan orðaforða en þarf á smá aðstoð á halda við framburð á ýmsum hljóðum. Við erum því búin að sækja um að komast að hjá talmeinafræðingi og vonum að biðin verði ekki mjög löng.
Þótt yfirleitt hái það honum ekki þótt hann segi ekki öll orð rétt, þá verður Kári alltaf mjög pirraður þegar maður skilur hann ekki, verður stundum reiður og endar oft í gráti. Það væri því best ef hann fengi sem fyrst að komast að í talþjálfun, en við verðum víst bara að bíða og sjá.


Það gengur allt eins og í sögu á leikskólanum. Kári Björn er afskaplega ánægður á Brákarborg og hlakkar yfirleitt til að fara þangað á morgnana. Þegar leið á sumarfríið núna í sumar var hann farinn að spyrja hversu langt væri þangað til þann mætti fara aftur á Brákarborg til að hitta vini sína. Það var því glaður strákur sem byrjaði þar eftir fríið.

Kári hefur stækkað mikið, er núna uþb. 105 cm og rúm 15 kg (var 88 cm og tæp 12 kg fyrir tveimur árum). Við vitum alltaf þegar von er á vaxtakipp hjá honum, þá borðar hann eins og hann fái borgað fyrir það. Almennt borðar hann annars bara mjög vel oftast nær og er ekki matvandur og yfirleitt alltaf til í að smakka. Honum finnst til dæmis mjög gaman að smakka allt hráefnið þegar við erum að baka, en ég set mörkin við lyftiduft og matarsóda, leyfi honum samt að smakka hveiti og þess háttar. Annars er hann mikill sætindakall og finnst fátt betra en kökur og nammi. Sættir sig samt sem betur fer við þær útskýringar að maður geti fengið illt í magann af því að borða of mikið af svoleiðis.


Kári Björn hefur almennt verið mjög hraustur síðustu tvö árin, hefur fengið kvef og hósta eins og flestir fá, en nær aldrei verið veikur (fyrir utan eitt skipti þegar hann fékk hand-fóta-og munnveiki fyrir tæpum tveimur árum). Hann er búinn að vera tvisvar á spítala til að lagfæra fæðingargalla og þarf á einni aðgerð að halda í viðbót, spítalavistin verður þó líklega bara örfáir dagar en ekki tíu eins og í hin skiptin. Hann hefur staðið sig eins og hetja í þessum spítalamálum en það verður fínt þegar það verður búið, væntanlega núna í haust.

Uppáhald Kára Björns þessa dagana (og síðustu mánuði reyndar) er Frozen teiknimyndin og allt sem henni fylgir. Hann syngur lög úr myndinni í tíma og ótíma, fer í Elsu búninginn sinn og "býr til frost", leikur sér með Elsu og Önnu dúkkurnar sínar og vill láta lesa fyrir sig í Frozen bókinni. Svo vill hann stundum horfa á myndina sjálfa. Við héldum að hann hefði verið með Toy Story á heilanum áður fyrr, en þetta er orðið meira en það. Það verður allavega áhugavert að vita hvað næsta æðið hans verður.


Hann hefur líka mikinn áhuga á Playmo og svo Spiderman (kallar hann ennþá gógóman (köngulóarmaður), en er farinn að segja stundum pædeman) og félaga hans Iron Man. Er einmitt búinn að gráta svoldið síðustu daga yfir að eiga engan Iron Man sem getur barist við Spiderman kallinn hans. Hann gaf nefnilega frænda sínum Iron Man í afmælisgjöf um daginn og er búinn að setja hann á óskalistann sinn.

Kári Björn var í fimleikum í vor og mun fara aftur á námskeið núna í haust. Fimleikarnir virðast eiga mjög vel við hann því hann er endalaust að "gera æfingar", fara í kollhnís, klifra og fara í "kleinuhring" eins og hann kallar það (kallast yfirleitt kleina).


Kári hefur líflegt ímyndunarafl og finnst mjög gaman að klæða sig í búninga og setja sig í alls konar hlutverk. Hann er líka algjör gaur sem hefur gaman af því að hlaupa hratt, hoppa í pollum og æfa sig á hjólinu sínu. En svo er líka afskaplega fínt að horfa á teiknimyndir með "mömmubol" við höndina. Hann vill helst horfa á teiknimyndir sem oftast, en líkar ekki við leiknar myndir og kallar þær bara fréttir.
Eitt af uppáhaldsefninu hans þessa dagana er Líf í nýju ljósi, gamlar teiknimyndir um mannslíkamann sem við Brjánn horfðum á sem krakkar. Kári vill mjög oft horfa á þessa DVD diska enda er hann alveg afskaplega forvitinn um mannslíkamann, eða eins og hann orðar það "hvað er inni í fólkum". Hann er reyndar forvitinn um flest og spyr reglulega hvað sé inni í húsum, bílum, dúkkum, eyrum osfrv.



Við fluttum í nýtt hús núna í sumar og Kári Björn tók breytingunum bara mjög vel. Talar stundum samt um "gamla húsið" og spurði mig einmitt núna síðast í dag hvers vegna við hefðum keypt nýtt hús. Þegar við keyptum húsið þá sáum við fyrir okkur að hann ætti eftir að vera glaður að leika sér í garðinum og við sáum það einmitt gerast í sumar. Svo er Kári mikið að spyrja hvort hann megi fara í heita pottinn þegar það er sól úti. Hann hefur einmitt mjög gaman af því að fara í heita potta og ekki síður að fara í sund, sérstaklega ef það eru rennibrautir í boði.

Þessi síðustu tvö ár hafa bara gengið mjög vel, fremur okkar vonum. Auðvitað voru fyrstu dagarnir, vikurnir og mánuðirnir stundum svoldið erfiðir á meðan allir voru að aðlagast nýju fjölskyldulífi. Enn sem komið hefur ekkert stórvægilegt komið upp sem tengist ættleiðingunni. Eflaust á eitthvað eftir að koma upp, en við dílum þá bara við það ef/þegar að því kemur.
Okkur finnst við vera ekkert smá heppin að hafa fengið svona frábæran strák eins og Kári Björn er og getum ekki hugsað okkur lífið án hans.



Sunday, October 27, 2013

Kári Björn leikskólastrákur

Núna eru liðnir rúmir tveir mánuðir frá því að Kári Björn byrjaði á leikskólanum Brákarborg og hingað til hefur allt gengið mjög vel.
Kári er glaður að fara á leikskólann á morgnana og þegar hann er sóttur vill hann oftast fá að vera pínulítið lengur áður en hann fer heim. Ef krakkarnir eru úti þýðir það venjulega eina ferð í rennibrautina eða svo áður en hann fæst til að koma heim. Okkur líst alveg afskaplega vel á leikskólann og allt starfsfólkið virðist vera mjög fínt.
Við foreldrarnir fórum í fyrsta foreldraviðtalið fyrir helgi og vorum ánægð með að Kári Björn virðist vera hann sjálfur á leikskólanum (væntanlega mínus verstu frekjuköstin sem eru spöruð fyrir foreldrana). Málþroskinn virðist samt aðeins vera að há honum í samskiptum við hina krakkana.
Honum hefur farið alveg rosalega mikið fram síðan hann byrjaði á Brákarborg, orðaforðinn er alltaf að aukast og setningarnar oft orðnar flóknari en áður. Um daginn vildi hann til dæmis sofa í mömmu rúmi og sagði "ég sofa mömmu rúm". Það er samt ennþá stundum erfitt að skilja hann og hann á það til í að verða afskaplega pirraður þegar við skiljum ekki hvað hann segir. Það er víst þannig á leikskólanum líka, en ef allt heldur áfram á sömu braut þá ætti þetta að koma hjá honum á næstu mánuðum.
Kári Björn heldur áfram að vera glaður strákur með endalausa orku. Hann heldur áfram að stækka og miðað við hvað hann borðar mikið þessa dagana þá virðist það ekkert að vera að hætta. Hann hefur núna stækkað ca um tíu-tólf sentimetra síðan við hittum hann fyrst og fer alveg að verða einn meter á hæð.
Bósi Ljósár, Viddi og Dísa í Toy Story halda áfram að vera í uppáhaldi en Shrek og Fiona hafa bæst við. Allir fjölskyldumeðlimirnir (Bóbó tuskukanína þar með talinn) hafa upplifað að vera í hlutverki allra þessara persóna, oftar en einu sinni. Til dæmis er Kári stundum með bleika hárkollu og hjálm á höfði og þykist vera Fiona (í Shrek 4) en stundum setur hann upp Bósa-bros og stillir sér upp í Bósa-stellingu.

Kári sem Fiona

Kári með Bósabros og að ýta á takkann
Kára finnst líka mjög gaman að punta sig upp, fara í kjól (bol af mér), setja á sig eyrnalokka (heimatilbúnir úr plastperlum og teygjubandi) og fara í vinnuna. Þá fer hann oft með mig á Brákarborg fyrst, fer svo í vinnuna og kemur svo og sækir mig. Ég á þá að vilja vera pínulítið lengur á Brákarborg og svo förum við saman heim. Þessi leikur virðist vera endalaust spennandi.
Á leið í vinnuna
Kára Birni finnst mjög gaman að láta lesa fyrir sig, Toy Story bókin er að sjálfsögðu í sérstöku uppáhaldi en Múmínálfarnir, Einar Áskell og persónurnar úr Umferðarskólabókunum mæta oft í heimsókn til okkar líka.
Ofurhetjur (eða "á-batman" eins og Kári kallar þær) eru mjög spennandi líka, sérstaklega Spiderman ("gógó-man", köngulóarmaðurinn).
Að teikna Bósa
Núna nýlega byrjaði Kári að teikna kalla, okkur foreldrunum til mikillar ánægju. Þetta eru kallar með haus, augu, eyru, munn, hendur og fætur og hann vandar sig sérstaklega við að gera hringinn fyrir hausinn. Annars sækist hann ekkert sérstaklega eftir því að teikna, en dundar sér svoldið í því þegar maður ýtir honum af stað.
Kára Birni finnst ennþá mjög gaman að fara út á róló og er orðinn flinkari í því að príla og róla sér, eitthvað sem hann lærir væntanlega á leikskólanum.
Á róló
Afmæli halda áfram að vera mjög spennandi fyrirbæri. Kára finnst gaman að kaupa afmælisgjöf og pakka henni inn og fara svo í afmælið og afhenda gjöfina. Svo finnst honum afmælissöngurinn mjög skemmtilegur og heldur stundum afmæli fyrir bangsana sína (þótt þetta hafi aðeins minnkað miðað við hvernig var). Hann syngur mjög mikið, stundum er það alveg óskiljanlegt og mögulega bara eitthvað bull, en það sem manni tekst að skilja er "höfuð, herðar, hné og tær", "allur matur á að fara" og "gulur, rauður, grænn og blár". Við vitum að það er sungið mikið á leikskólanum þannig að það á eflaust eftir að bætast við lögin eftir því sem orðaforðinn eykst.
Kóngulóarmaðurinn spilar á gítar
Á leikskólanum er Kári Björn líka búinn að læra að áður en borðað er setja allir hendur undir borð og svo er sagt gjörið svo vel. Þar sem hann er ansi ferkantaður í sér þá krefst hann þess að þetta sé líka gert á heimilinu. Þannig að þar til við getum útskýrt fyrir honum að siðirnir á leikskólanum eigi ekki alltaf heima á heimilinu, þá látum við foreldrarnir þetta bara eftir honum.
Kári heldur áfram að hafa mikinn áhuga á stöfunum og bókin um Stafakarlana er ein af þeim sem er mikið lesin á heimilinu. Hann er líka með mjög mikinn áhuga á tölustöfum um þessar mundir og virðist allavega vera farinn að telja upp á fimm, mögulega aðeins meira (hann ruglar samt stundum hvað tölustafirnir heita).
Það er semsagt allt á uppleið hjá Kára Birni og ef framfarir síðustu tveggja mánaða halda áfram þá bendir allt til þess að hann nái jafnöldrum sínum í málþroska án þess að það þurfi að gera neitt sérstakt í því (annað en að halda bara áfram á sömu braut).
Kári er stundum kóngur eða drottning og er þá með kórónu á höfði. Hér er hann líka með hárkolluna sína og í  kjól (bol af mér).



Tuesday, September 10, 2013

Spítalavist

Kári Björn er núna búinn að vera á spítala í rúma viku. Hann fór í aðgerð síðasta mánudag til að lagfæra fæðingargalla. Upprunalega var talið að hann myndi þurfa á fleiri en einni aðgerð að halda, en þetta gekk svo vel núna þannig að líklega hefur tekist að laga það sem laga þurfti með einungis einni aðgerð.

Í rúminu sínu að horfa á teiknimynd.
Okkur foreldrunum kveið svoldið fyrir spítalavistinni, ekki út af aðgerðinni sjálfri, heldur því að Kári þyrfti að vera meira og minna rúmliggjandi í um það bil tíu daga. En Kári hefur komið okkur á óvart og verið mjög duglegur að liggja kyrr og vera ekkert að fikta í umbúðunum. Hann er búinn að standa sig eins og hetja þótt að sjálfsögðu hafi komið nokkur tár síðustu daga. Þar til í gær var hann rúmliggjandi en fékk þá að ferðast um í kerru og það var mjög mikill munur á að sjá hann verða sjálfum sér líkur aftur.

Kominn í kerru og á leiðinni á leikstofuna.
Kári Björn er búinn að vera fastagestur á leikstofu Barnaspítalans þar sem hann vill helst vera allar stundir. Hann á oft erfitt með að sætta sig við að stundum er leikstofan lokuð og við þurftum að finna upp á ýmsu til að stytta stundirnar um helgina því það var lokað frá hádegi á föstudaginn þar til á mánudagsmorguninn.
Það er búið að vera ansi mikið um teiknimyndaáhorf hjá litla manninum og það er spurning um hvernig hann á eftir að taka því þegar hann fær ekki að horfa á teiknimyndir hvenær sem er eftir að við komum heim.
Samkvæmt planinu átti hann að útskrifast á fimmtudaginn, en við fengum þær góðu fréttir í morgun að líklegast gæti hann farið heim á morgun.

Límmiðaleikur í rúminu.
Við foreldrarnir höfum skipst á að vera hjá honum, höfum vaktaskipti þrisvar á dag og skiptumst á að gista á spítalanum. Þetta hefur reynst vera miklu meiri vinna en við áttum von á og ég, sem var með hugmyndir um að ég gæti eitthvað sinnt vinnunni á meðan á þessu stæði, hef þurft að skipta snarlega um skoðun.
Öll fjölskyldan verður mjög glöð þegar Kári Björn fær að fara heim, hann verður væntanlega mjög ánægður að losna við umbúðirnar og fer að geta hreyft sig eðlilega aftur. Við foreldrarnir verðum fegin þegar lífið kemst í eðlilegar horfur á ný.
Kári fer svo væntanlega á leikskólann strax daginn eftir að hann kemur heim og það kemur í ljós hvort hann þurfi á nýrri aðlögun að halda eða ekki. Hann byrjaði á leikskólanum Brákarborg tveimur vikum fyrir spítalavistina og var ofsalega ánægður og allt gekk mjög vel með aðlögun. En meira um leikskólamál í næsta pósti.

Sunday, August 18, 2013

Fæðingarorlofið búið

Jæja, þá er komið að því - Kári Björn byrjar í leikskóla í fyrramálið og fæðingarorlofið því alveg að verða búið.
Við höldum að Kári eigi eftir að njóta sín í botn á leikskólanum og vonum að aðlögunin gangi vel. En þetta kemur allt saman í ljós og ný bloggfærsla um leikskóladvölina verður sett inn eftir nokkra daga.

Við Kári skelltum okkur í bústaðinn til foreldra minna eina nótt í júlí á meðan Brjánn var að vinna. Kári skemmti sér þar konunglega við að sulla með vatn og leika sér á leikvellinum.

Að sulla í Miðdal.
Í lok júlí fórum við svo á fjölskyldumót með móðurfjölskyldunni minni, á Steinsstöðum í Skagafirði. Kári Björn var bara kátur með að hitta allt þetta fólk sem hann hafði fæsta séð áður.

Utanlandsferð litlu fjölskyldunnar gekk bara vel, Kári var mjög glaður með að fara í flugvél og fór líka í lestarferð í Köben, honum til mikillar gleði. Framan af í ferðalaginu var Kári Björn bara kátur með að skoða nýja staði (hafði þó takmarkaða þolinmæði við að gera eitthvað sem honum fannst óspennandi, eins og eðlilegt er) en þegar líða tók á ferðalagið fannst okkur eins og hann væri kominn með smá heimþrá. Svo eftir að við komum heim hefur hann meira og minna bara viljað vera heima, vill ekki einu sinni alltaf koma út á róló þegar það er í boði. En hann virðist vera búinn að jafna sig núna og var heilmikið að dunda með dótið sitt í dag.

Við vorum þrjár nætur í Köben að heimsækja Maríu systur mína og fjölskyldu hennar. Við vorum svo heppin að fá að gista í íbúð sem var á móti hennar íbúð og þar sem það bjuggu krakkar í íbúðinni, var fullt af dóti sem Kári gat leikið sér með. Í Köben vorum við aðallega bara að leyfa krökkunum að leika sér, og njóta þess að vera í fríi, en kíktum í dýragarðinn og svo aðeins niður í bæ (Strikið, Nýhöfn oþh).

Á leiðinni í dýragarðinn í Köben með Dagmar frænku.

Í dýragarðinum í Köben.

Spiderman og Iron man farnir að lúlla - í íbúðinni "okkar" í Köben.

Svo leigðum við bílaleigubíl og keyrðum yfir til Svíþjóðar þar sem við gistum í Lövestad, litlu þorpi á Skáni, í viku. Þá vikuna keyrðum við um skánska sveit, í gegnum óteljandi lítil krúttleg þorp. Kíktum á strönd, bæi, dýragarð, heimsóttum Rúnu frænku og nutum þess að vera í fríi. Húsið sem við gistum í var mjög fínt og í lok dags heyrðist oft úr aftursætinu "bá hurð" þar sem Kári minnti á að hann vildi fara að komast aftur í húsið með bláu hurðinni.

Feðgarnir að grilla úti í garði hjá húsinu með bláu hurðinni.
Fjölskyldan við Ales stenar rétt hjá Ystad í Svíþjóð

Kári með einn af mörgum sniglum sem við sáum, í garðinum okkar í Svíþjóð.

Feðgarnir á ströndinni.

Þótt það hefði verið fínt að vera í fríi voru allir orðnir svoldið þreyttir eftir vikuna í Svíþjóð. Við klikkuðum aðeins á teiknimyndunum hans Kára og netsambandið í húsinu var ekki það gott að það væri hægt að horfa mikið á Youtube. Kári Björn virtist vera farinn að sakna teiknimyndanna sinna svoldið og örugglega dótsins líka, þar sem við vorum með takmarkað úrval af dóti meðferðis.
Mömmusýkin hjá Kára magnaðist upp í ferðinni og hann var yfirleitt límdur við mig, okkur foreldrunum til ama. Hann hefur alltaf verið háðari mér en Brjáni en núna síðustu daga þá er þetta komið út í miklar öfgar. Við vonumst eftir að það fari að lagast, sérstaklega nú þegar Kári er að byrja á leikskóla.

Okkur foreldrunum finnst nýi siðurinn hans Kára vægast samt ekki skemmtilegur. Hann er farinn að taka upp á því að fara að hágrenja oft þegar hann fær ekki það sem hann vill. Við vonum að þetta tímabil standi stutt yfir því að það er verra að hlusta á hann hágrenja heillengi yfir einhverju sem hann má ekki fá/gera, heldur en að hann æpi hástöfum, eins og hann gerði á tímabili. Vonandi gengur þetta tímabil stutt yfir.

Þessa dagana hefur Kári Björn mikinn áhuga á ofurhetjum, sérstaklega Spiderman (eða "gógó-man" eins og Kári kallar Köngulóarmanninn). Við skiljum ekki alveg hvaðan þessi áhugi kemur, en þökk sé honum er Kári búinn að eignast ýmislegt með Köngulóarmanninum sem var keypt í ferðalaginu, eins og boli, búning og kall. Þrátt fyrir þennan nýtilkoma Spiderman áhuga, hefur Toy Story samt alltaf vinninginn. Kári Björn getur horft endalaust á myndirnar þrjár og er í sífellu að tala um persónurnar (Vidda, Bósa og Dísu aðallega) og það sem var að gerast hjá þeim. Toy Story bókin er líka mikið lesin og Kári er núna farinn að hlusta þegar maður les fyrir hann og ekki bara þessa bók, heldur alls konar bækur.

Fyrir utan mömmusýkina og vælustuðið þessa dagana, gengur allt vel hjá Kára. Hann heldur áfram að vera kátur orkubolti og er að auka orðaforðann sinn smátt og smátt. Það verður spennandi að sjá hvort hann eigi eftir að taka miklum framförum þegar hann verður byrjaður á leikskóla.




Sunday, July 14, 2013

Orlofið bráðum búið

Það er orðið frekar langt síðan síðasta bloggfærsla var sett inn og ýmislegt búið að gerast í lífi Kára Björns síðan þá.
Kári var heima með Brjáni í maí og júní en núna í júlí er ég heima og er þetta síðasti mánuðurinn í fæðingarorlofinu. Í ágúst förum við fjölskyldan í sumarfrí og svo tekur leikskólalífið við í lok ágúst. Það á eftir að vera skrýtið að skilja Kára eftir allan daginn á meðan við verðum í vinnunni. En hann á eftir að hafa bæði gaman og gott af því að umgangast meira önnur börn og læra allt sem er kennt á leikskólanum.

Í fjöruferð í Nauthólsvík.
Fyrir nokkrum dögum byrjaði Kári Björn að sofa inni í sínu herbergi, hingað til hafði hann verið í rimlarúmi í okkar herbergi. Það gengur ágætlega, hann er farinn að venjast því að fara að sofa í herberginu sínu en er að vakna svoldið á nóttunni og vilja koma til okkar. Það tekur væntanlega smá meiri tíma að venja hann alveg við þar sem þetta er í fyrsta skipti sem hann sefur einn í herbergi.
Það munar líka miklu um að Kári er nýlega hættur að leggja sig á daginn, hann var nefnilega farinn að vera oft svo lengi að sofna á kvöldin. Í staðinn er hann núna oft frekar mikið þreyttur rétt fyrir kvöldmat, en hann virðist vera að venjast breytingunum ágætlega.

Toy story heldur áfram að vera í rosalegu uppáhaldi hjá Kára, en þessa dagana eru köngulær og ormar líka mjög spennandi. Brýr, bátar, flugvélar, lestir og bílar eru líka mjög áhugaverð fyrirbæri. Við erum farin að geta lesið aðeins meira fyrir hann og hann er farinn að hafa aðeins meiri þolinmæði fyrir að hlusta á sögurnar (sérstaklega eftir að Toy story bók var keypt) í stað þess að vilja bara fletta blaðsíðunum og skoða myndirnar.

Í Bósabolnum og með gítarinn sem mamman keypti í Glasgow.
Orðaforðinn hjá Kára Birni eykst jafn og þétt þótt það séu ýmis orð sem enginn aðrir en við foreldrarnir skiljum, enn sem komið er. Við hittum talmeinafræðing fyrir um það bil mánuði síðan og miðað við hvað hún sagði þá eru allar líkur á að Kára muni fara mikið fram í talinu þegar hann byrjar á leikskóla og væntanlega ætti ekki að þurfa að gera neitt nema halda áfram að gera það sem við höfum verið að gera. Smám saman ætti hann að ná jafnöldum sínum. Það hafa þegar orðið ýmsar framfarir síðan við hittum talmeinafræðinginn, Kári er farinn að tengja saman fleiri og fleiri orð og myndast við að búa til setningar. Hann er líka farinn að sýna stöfum áhuga og þekkir nú orðið K, A, B og Ó (ruglar reyndar saman X og K og kann ekki ennþá á a og b).

Kári er síblaðrandi þessa dagana og gefur frá sér alls konar bullhljóð. Hann brestur líka reglulega í söng og syngur sína eigin útgáfur af "höfuð, herðar, hné og tær" og "bí bí og blaka" ásamt afmælissöngnum og nokkrum öðrum lögum.
Kári Björn á það líka til að fara í kollhnís upp úr þurru eða gera "armbeygjur" (hann beygir reyndar ekki handleggina), svona eins og Íþróttaálfurinn gerir.
Stundum eigum við Brjánn erfitt með að fara ekki að hlægja þegar Kári tekur upp á einhverju af þessu, nú eða að heilsa fólki með handabandi.

Að gera æfingar með Íþróttaálfinum.

Kári Björn er mjög ákveðinn og veit sko alveg hvað hann vill. Hann er líka mjög fastur í því að hafa reglu á hlutunum og bendir sífellt á ef eitthvað er í ólagi (hola í götunni, einhver hlutur brotinn, hundaskítur á gangstétt, og þess háttar).

Með kubbaútgáfur af sjálfum sér, ömmunni og öfunum tveimur.

Það skortir ekki ímyndunaraflið hjá Kára og hann er oft að finna upp á einhverjum nýjum leikjum sem við foreldrarnir erum dregin með í. Það er líka oft mikið að gerast hjá duplo köllunum þegar búið er að kubba húsbát með stiga, rennibraut og brú, og það eru haldnar ansi margar afmælisveislur í herberginu hans Kára. Ég held að ég sé látin syngja afmælissönginn á hverjum einasta degi, yfirleitt nokkrum sinnum á dag.
Rólóferðir eru alltaf jafn skemmtilegar og Kára hefur farið mjög mikið fram í að klifra upp í rennibrautir og príla í hinum og þessum leiktækjum. Hann er lika nýlega farinn að hjóla á tvíhjóli (með hjálpardekkjum) en þarf að æfast svoldið betur.

Fínn á hjólinu sínu.

Kári er nýlega farinn að setja sig stundum í stellingar þegar verið er að taka mynd af honum þannig að annar þumallinn er upp og annað augað lokað. Við höfum ekki hugmynd um hvaðan hann fékk þá hugmynd að þetta væri flott...
Við fjölskyldan ætlum til útlanda í ágúst, ætlum að heimsækja Maríu systur og fjölskyldu hennar í Köben og eyða svo viku í Svíþjóð. Kári veit að hann fer í flugvél og að það styttist óðum. Hann spyr því reglulega um hvenær hann fari í flugvélina og svo erum við búin að bæta því við að við munum líka fara í lest og bát. Kári Björn er því alveg afskaplega spenntur yfir ferðalaginu og nýbúinn að fá vegabréfið sitt sent í pósti. Við eigum von á að hann verði ánægður með ferðalagið því að hann virðist hafa mjög gaman af því að sjá og upplifa nýja hluti.

Monday, April 29, 2013

Orðinn stór(?)

Kári Björn heldur því fram þessa dagana að hann sé orðinn stór og bendir á að hann sé sko þriggja ára. Við erum nefnilega frekar oft að segja að eitthvað sé fyrir stóra krakka (hjólabretti, hlaupahjól og ýmislegt fleira) og þá kemur Kári með þau rök að hann sé stór, þriggja ára (segir "stór" og eitthvað sem á að vera "þriggja" og réttir fram fingurna (stundum þrjá en stundum eitthvað annað). Þannig að við þurfum að finna einhverja nýja ástæðu fyrir því hvers vegna hann má ekki eitthvað. Kári er semsagt aðeins farinn að rökræða þótt orðaforðinn sé ekki mikill.


Já, strákurinn okkar er búin að eiga afmæli og orðinn þriggja ára. Hann var ekkert smá ánægður með þetta allt saman, fékk meira að segja tvær afmælisveislur með nokkurra daga millibili. Fyrst var fjölskyldan mætt og í seinna skiptið vinir okkar Brjáns sem eiga krakka sem Kári hefur leikið sér við. Hann stóð sig bara vel og þegar tími var kominn til að borða í seinna afmælinu þá hjálpaði hann til við að smala krökkunum og foreldrum þeirra að borðinu. Ég ætlaði að reyna að setja inn vídeó af afmælissöngnum, en það var ekki alveg að virka.

Með fyrri afmæliskökuna, bíl.

Við mæðginin að bíða eftir gestunum. Kakan var bátur í þetta skiptið og diskar og fleira með myndum úr Toy story, enda eru Bósi og Viddi í miklu uppáhaldi.

Páskarnir voru annars bara fínir hjá okkur. Við fórum í bústaðinn til tengdapabba ásamt fjölskyldu systur Brjáns. Kári Björn var ánægður að hafa bæði afa sinn og frændsystkini til að leika við og gúffaði í sig páskaeggi af bestu lyst. Vorum svo bara í afslöppun og rólegheitum.

Með afa sínum að skoða páskaeggið.

Á röltinu við bústaðinn.

Við erum búin að fá að vita að Kári mun byrja 19. ágúst á leikskólanum Brákarborg. Við höldum að hann eigi eftir að líka mjög vel við sig þar og eigi eftir að vera mjög glaður að hitta krakka á hverjum virkum degi. Það kemur svo bara í ljós hvernig aðlögunin gengur. Við ætlum svo eitthvað að kíkja í heimsókn á leikskólalóðina á meðan krakkarnir eru úti að leika, svona fyrst að það er möguleiki. Kári er nefnilega alveg afskaplega hrifinn af því að hitta krakka.

Kári heldur áfram að vera algjör dúlla og líka algjör gaur. Hann vaknar alltaf á morgnana glaður og ánægður og það er frábært hvað hann virkar yfirleitt alltaf hamingjusamur. Hann á þó sín frekjuköst og pirringsmóment eins og allir.

Upp á síðkastið blaðrar hann mjög mikið, yfirleitt eitthvað óskiljanlegt og við vitum ekki alveg hvort hann heldur að hann sé að segja eitthvað sérstakt eða hvort hann sé bara að æfa sig í að gefa frá sér alls konar hljóð. En honum fer allavega fram í talinu, þótt það þyrfti helst að fylgja orðabók með honum fyrir aðra en okkur foreldrana.

Við Kári hittum Íþróttaálfinn og Sollu stirðu í Krónunni um daginn. Kári var himinlifandi með að hitta þau og enn glaðari að fá að fara í fangið á þeim. Hann fór hins vegar að hágráta þegar tími var kominn til að fara heim og vildi fara með þeim heim í Latabæ.



Að fara í strætó er eitt það skemmtilegasta sem Kári gerir.



Thursday, March 28, 2013

Framfarir

Nú styttist óðum í að Kári Björn verði þriggja ára, því hann á afmæli í næstu viku, þann 4. apríl. Það er búið að tala um það við hann að hann eigi bráðum afmæli en ég efast um að hann átti sig á því. Það á allavega eftir að verða ansi spennandi að eiga sjálfur afmæli því Kára finnst svo svakalega gaman að fara í annarra manna afmæli - og svo er afmælissöngurinn eitt af skemmtilegustu lögum sem til eru.

Það hafa ýmsar framfarir átt sér stað upp á síðkastið. Kári Björn er núna alveg hættur með bleyju (nema annað komi í ljós síðar) og það er búið að ganga núna slysalaust í allmarga daga og þónokkrar nætur.

Það eru líka framfarir í talinu hjá Kára þessa dagana, hann er að byrja að tengja saman tvö orð ("margir skór", "pabbi strákur", svo dæmi mætti nefna). Ýmis orð sem hann hefur verið að segja eru líka að verða skýrari, t.d. sagði hann alltaf "dag" þegar hann var að segja dagur, en núna er hann farinn að segja "dagur" eða allavega ansi nálægt því. Þegar Kári er að leika sér er hann þessa dagana mikið að gefa frá sér alls konar hljóð, flóknari en hann hefur áður verið að gefa frá sér. Svo syngur hann í tíma og ótíma og söngurinn (yfirleitt hans eigin útgáfa af "höfuð, herðar, hné og tær") er aðeins að breytast.
Við foreldrarnir vorum farin að hafa smá áhyggjur af því hvað þetta gengi eitthvað hægt en allavega núna lítur út fyrir að þetta fari að koma hjá Kára Birni. Honum hefur samt gengið vel að tjá sig hingað til, með þeim orðaforða sem hann hefur, en stundum verður hann frústreraður þegar við skiljum hann ekki.

Kári Björn er farinn að dunda sér meira sjálfur og er þessa dagana með mikinn áhuga á bílum, lestum, flugvélum og bátum. Hann leikur sér mikið með kalla og dýr og lætur þau taka sér far með hinum ýmsu farartækjum. En svo heldur það líka áfram að vera ansi skemmtilegt að leira, fara á háhest eða í eltingaleik og láta kitla sig.

Um daginn uppgötvaði Kári Björn teiknimyndina Toy Story sem var til hérna á heimilinu og núna er myndin í algjöru uppáhaldi, sérstaklega Bósi ljósár. Það eru búin að falla ansi mörg tár síðustu daga þegar Kári fær ekki að horfa á myndina, eða þegar það er reynt að útskýra fyrir honum að hann sé ekki með vængi eins og Bósi og geti þess vegna ekki flogið.
Þetta er frumraun Kára í því að horfa á heila mynd, áður hefur hann bara horft á þætti, t.d. Latabæ (sem var áður í algjöru uppáhaldi). Það er fínt að hann er kominn með næga einbeitingu til að geta horft á heila mynd, þótt það sé nú bara stundum í boði og þegar svo er ekki er oft mótmælt hástöfum.

Kári Björn er búinn að fá pláss á leikskóla og byrjar líklega á Brákarborg í ágúst. Í fullkomnum heimi myndi hann vera núna hálfan daginn á leikskóla þar sem okkur finnst hann vera tilbúinn til þess, en það er því miður ekki í boði.

Það er því ýmislegt jákvætt að gerast hjá Kára Birni þessa dagana :)

Kári Björn hitti hesta um daginn og var mjög ánægður með að fá að fara á bak.

Kári vill stundum vera alveg eins og Íþróttaálfurinn úr Latabæ og þá er bara að nýta það sem til er.

Það er alltaf gaman að fara út á róló.