Strákurinn okkar heitir núna Fu Ming Ji, eða 福明吉.
Fu 福 er eftirnafnið sem börn á þessu sama barnaheimili hafa fengið.
Það þýðir heppni, hamingja eða eitthvað þannig. Þar sem börnin eru munaðarlaus er talið að börnin þurfi á góðu nafni að halda til að þeim farnist vel í lífinu.
Ming 明 er bæði tilvísun í Ming tímabilið í Kína og táknið þýðir líka bjartur, skýr eða opinn.
Ji 吉 þýðir svo heppinn eða giga (milljarður).
(Þessar þýðingar eru frá vefsíðunni http://www.mdbg.net/chindict/chindict.php.)
Við erum að vinna í að finna íslenskt nafn en erum ekki búin að ákveða neitt ennþá. Við erum heldur ekki búin að ákveða hvort við munum skipta alveg yfir í íslenskt nafn eða hafa eitthvað kínverskt með. En við verðum búin að ákveða eitthvað áður en við förum til Kína.
Ég efast samt um að við munum láta hann heita Bjartur Heppni, þótt hann heiti það eiginlega núna :)
Annars gerði ég smá breytingu á stillingum á kommentum um daginn, þetta var einhvern veginn læst en er núna opið. Ef einhver er með einhverjar spurningar þá er velkomið að spyrja, til dæmis með því að setja inn komment.
Tuesday, June 26, 2012
Thursday, June 21, 2012
Mynd frá 2011
Þessi mynd af stráknum okkar fannst á internetinu (http://www.yzhbw.net/news/shownews-19_1553.dot).
Hún fylgir frétt frá því í júní eða september 2011 (er ekki viss um á hvaða formi dagsetningin er) og er tekin áður en skarðið í vörinni var lagað.
Fréttin virðist (miðað við google translate) vera um heimsókn fólks frá einhverjum góðgerðarsamtökum á nokkur barnaheimili, þar á meðal það sem okkar strákur er á. Konan á myndinni er líklega starfsmaður hjá samtökunum eða einhver fjölmiðlamanneskja.
Okkur finnst alveg ómetanlegt að finna eitthvað svona því að þegar við fáum strákinn í fangið er alls ekkert víst að við fáum nokkrar myndir með honum. En svo gætum við orðið heppin. Hvernig sem það fer höfum við allavega þessa mynd :)

Wednesday, June 20, 2012
Sérþarfalistinn
Eins og kemur fram í síðustu bloggfærslu þá kemur strákurinn okkar af svokölluðum sérþarfalista. Fyrir þá sem vita ekki hvað það er þá er þetta smá tilraun til að útskýra þetta í stuttu máli.
Börn sem eru á sérþarfalistanum eru með einhverjar skilgreindar sérþarfir sem geta verið ýmiss konar. Þá er ekki endilega um að ræða eitthvað sem háir börnunum alla ævi, heldur getur líka verið um að ræða hluti sem er einfalt að laga með aðgerð eða með notkun lyfja eða hjálpartækja. Sem dæmi um börn sem gætu verið á sérþarfalista eru þau sem fæðast með hjartagalla, eru heyrnarlaus, með kviðslit, klumbufót, stóra fæðingarbletti, rangeygð og líka þau sem eru með ýmsa sjúkdóma eða fatlanir.
Þegar við ákváðum að færa okkur frá Kólumbíu og yfir á sérþarfalistann frá Kína, fórum við yfir lista með ýmiss konar sérþörfum og merktum við hvað við værum til í að takast á við og hvað ekki. Sumt af þessu sem var á listanum fannst okkur eiginlega ekki heima þar, það væri svo auðvelt að eiga við það á Íslandi.
En það sem við þurfum að hafa í huga er að á Íslandi erum við með heilbrigðiskerfi sem virkar þannig að ef barn þarf á aðgerð að halda þá fer það bara í þá aðgerð, ekkert vesen.
En það er ekki þannig í Kína. Fátækt fólk hefur ekki efni á að senda börn sín í dýrar aðgerðir og kýs því oft að skilja börnin eftir einhvers staðar þar sem þau eiga eftir að finnast, með þá von um að einhver annar geti betur séð fyrir þeim. Svo hjálpar það ekki til að í Kína hefur lengi verið stefnan að hver hjón megi bara eiga eitt barn og eftir því sem við höfum heyrt þykir það ekki vera félagslega ásættanlegt að vera fatlaður að einhverju leyti þar í landi. Því spilar margt inní hvers vegna þessi börn eru gefin til ættleiðingar, og örugglega næstum eins margar ástæður eins og börnin eru mörg.
Áður fyrr voru börn með sérþarfir ekki ættleidd frá Kína. Þau voru bara einfaldlega á munaðarleysingjaheimilum þar til þau urðu fullorðin.
Fyrir nokkrum árum fór það að verða algengara að fólk fór að ættleiða börn með sérþarfir, sérstaklega eftir að það fór að hægjast mikið á "venjulegum" ættleiðingum frá Kína. Í dag er það þannig að langflest börn sem eru ættleidd frá Kína eru sérþarfabörn. Flest börn sem hafa verið ættleidd til Íslands síðustu ár hafa komið af þessum lista, og í flestum tilfellum hefur verið um börn með minniháttar sérþarfir að ræða, sem stundum þarfnast engrar sérstakrar meðhöndlunar við eftir að heim er komið.
Strákurinn okkar fæddist með skarð í vör (ekki í góm). Hann fór í aðgerð út í Kína til að laga vörina þegar hann var um eins og hálfs árs. Við vitum ekki hversu vel það hefur verið gert (það sést ekki nógu vel á myndum), þannig að ef til vill þurfum við að láta lagfæra vörina eitthvað síðar. En kannski þarf ekkert að gera í því. Það kemur bara í ljós.
Hann er einnig með annan fæðingargalla sem eru takmarkaðar upplýsingar um í skýrslunni. Nákvæmlega hvað það er ætlum við bara að halda fyrir okkur í bili, en mjög líklega er einfalt að láta lagfæra það með aðgerð, en mögulega þarf nokkrar aðgerðir til. Það kemur líka bara í ljós.
Eftir að við fengum upplýsingar um strákinn þá vorum við mikið að velta þessu fyrir okkur áður en við tókum ákvörðun um að segja já. Þá fórum við meðal annars að spá í börnum sem eru tengd okkur og áttuðum okkur á því að ansi mörg þeirra yrðu skilgreind sem sérþarfabörn. Við pældum líka í því að þegar fólk eignast börn með hefðbundnu aðferðinni, eða ættleiðir börn sem eru ekki á sérþarfalista, þá er aldrei nein trygging fyrir því að það sé ekki eitthvað sem amar að hjá barninu. Þannig að við hugsuðum bara þannig að við vitum "hvað er í pakkanum" og það ætti að vera mjög einfalt að eiga við það, þannig að í rauninni værum við bara heppin.

Tuesday, June 19, 2012
Ættleiðingarferlið okkar
Það var í byrjun árs 2009 sem við byrjuðum á ættleiðingarferlinu sem lýkur vonandi fljótlega með ferð til Kína :)
Fyrsta skrefið var að sækja um forsamþykki frá íslenskum yfirvöldum. Til þess þurftum við meðal annars að safna saman alls kyns pappírum (skattskýrslur, sakavottorð, hjúskaparvottorð ofl), fara í læknisskoðun, í úttekt hjá barnaverndaryfirvöldum og fara á undirbúningsnámskeið. Á slíkum námskeiðum er farið yfir ýmislegt varðandi ættleiðingar og ættleidd börn, þannig að fólk geri sér grein fyrir því út í hvað það er að fara áður en lengra er haldið. Forsamþykkið fengum við svo í október 2009.
Á þessum tíma ætluðum við að ættleiða barn frá Kólumbíu og forsamþykkið hljóðaði þannig að við mættum ættleiða barn þaðan. Það þarf nefnilega að velja land áður en forsamþykkið er gefið út og það má bara vera eitt slíkt samþykki í gildi hverju sinni. Forsamþykki gildir í þrjú ár og ef fólk er ennþá að bíða eftir barni eftir það (sem er ekki óalgengt þessa dagana) þá þarf að endurnýja það.
Næsta skref var að undirbúa umsóknina til Kólumbíu. Hluti af því var að safna saman fleiri pappírum, fara aftur í læknisskoðun og fara í sálfræðimat (og gáfnapróf!). Í apríl 2010 var svo allt tilbúið og umsóknin fór til Kólumbíu.
Í júní 2010 fengum við númer frá Kólumbíu (sem þýddi að umsóknin okkar var komin á réttan stað og byrjað að skoða hana) og næstu mánuðir fóru svo í endalaust pappírsvesen. Þeir í Kólumbíu voru búnir að breyta eyðublaðinu og við þurftum að fylla út nýtt, þeir vildu nýtt sakavottorð og höfðu breytt reglunum um sálfræðiskýrslur þannig að við þurftum að fá sálfræðinginn til að betrumbæta skýrsluna.
Á þessum tímapunkti vorum við orðin ansi pirruð og hálf-vonlaus að við myndum nokkurn tíma fá barn. Venjulega tekur nefnilega ekkert mjög langan tíma að fá samþykki frá Kólumbíu en við vorum búin að bíða í næstum ár frá því að umsóknin fór út og ekkert samþykki var komið.
Í mars 2011 vorum við farin að velta því fyrir okkur að skipta um land. Við vorum ekki ennþá komin með samþykki frá Kólumbíu og tíminn sem fólk var (og er ennþá) að bíða eftir barni þaðan var að lengjast og lengjast. Við sáum fram á að þurfa að bíða í um þrjú til fjögur ár eftir að samþykkið væri komið.
Við vorum búin að skoða möguleikana á svokölluðum sérþarfalista frá Kína (ég útskýri hvað það þýðir í annarri bloggfærslu seinna) þar sem biðlistinn var mun styttri og eftir mikla umhugsun ákváðum við að fara þá leið. Í apríl 2011 sendum við því bréf til Kólumbíu og drógum umsóknina okkar til baka. Jafnframt voru þeir hjá Kólumbíu beðnir um að endursenda pappírana okkar, þar á meðal forsamþykkið.
Þá byrjaði að okkur finnst, ótrúlega asnalegt pappírsferli.
Af því að við vorum með forsamþykki í gildi þá mátti ekki gefa út nýtt. Til þess að fá forsamþykki fyrir Kína þurftu íslensk yfirvöld að fá upprunalega forsamþykkið (sem var statt í Kólumbíu) til baka aftur. Hinn möguleikinn var að innanríkisráðuneytið myndi breyta reglunum um forsamþykki þannig að það væri hægt að fella það fyrra úr gildi og gefa út nýtt í staðinn.
Íslensk Ættleiðing (ÍÆ), skrifstofan sem sér um allar ættleiðingar til Íslands, fór í það mál að hafa samskipti við innanríkisráðuneytið.
Við þurfum að byrja upp á nýtt að sækja um forsamþykki. Við söfnuðum saman nýjum pappírum og fórum aftur í læknisskoðun. Svo þurfti viðbótarúttekt hjá barnaverndaryfirvöldum (af því að við vorum að sækja um á sérþarfalistanum) og meðmælabréf frá fólki sem þekkir okkur. Á meðan þessu stóð var Íslensk Ættleiðing alltaf af og til að ýta á innanríkisráðuneytið.
Í desember 2011 fengum við svo upplýsingar um að pappírarnir okkar væru komnir til baka frá Kólumbíu, en þá var innanríkisráðuneytið ekki ennþá búið að breyta reglunum eða gera undanþágu frá þeim.
Á meðan við biðum eftir forsamþykkinu sjálfu (ÍÆ var enn að reyna að þrýsta á innanríkisráðuneytið) þá undirbjuggum við umsóknina til Kína. Þá var aftur safnað pappírum, faríð í læknisskoðun, fengin ný meðmælabréf og ýmislegt þannig.
Í febrúar 2012 fengum við svo loksins forsamþykkið fyrir Kína, þökk sé pappírum frá Kólumbíu, innanríkisráðuneytið var enn ekki búið að svara. Umsóknin okkar lagði svo af stað til Kína eftir að hafa verið stimpluð í bak og fyrir.
LID (log in date, móttökudagsetning í Kína) var svo 22. mars. Þann 17. apríl fengum við svo símtalið um að það hefði fundist barn fyrir okkur :)
Við erum búin að fá samþykki (PA) frá Kína en erum núna að bíða eftir LOA (letter of acceptance). Eftir það er það TA (travel approval) og svo getum við farið út.
Þetta var stytt útgáfa af ferlinu okkar, það var ennþá meira pappírsvesen, meðal annars vegna þess að við giftum okkur á Hawaii en ekki á Íslandi, sem við förum ekki út í hér. En miðað við allt þetta hér að ofan þá getið þið kannski rétt ímyndað ykkur hvað við verðum hamingjusöm þegar við förum loksins til Kína til að sækja strákinn okkar :)

Sunday, June 17, 2012
Fu Ming Ji
Fyrir tveimur mánuðum síðan, þann 17. apríl, fengum við símtal frá Íslenskri Ættleiðingu um að það væri búið að finna barn fyrir okkur frá Kína.
Subscribe to:
Posts (Atom)