Thursday, June 21, 2012

Mynd frá 2011

Þessi mynd af stráknum okkar fannst á internetinu (http://www.yzhbw.net/news/shownews-19_1553.dot).
Hún fylgir frétt frá því í júní eða september 2011 (er ekki viss um á hvaða formi dagsetningin er) og er tekin áður en skarðið í vörinni var lagað.

Fréttin virðist (miðað við google translate) vera um heimsókn fólks frá einhverjum góðgerðarsamtökum á nokkur barnaheimili, þar á meðal það sem okkar strákur er á. Konan á myndinni er líklega starfsmaður hjá samtökunum eða einhver fjölmiðlamanneskja.


Okkur finnst alveg ómetanlegt að finna eitthvað svona því að þegar við fáum strákinn í fangið er alls ekkert víst að við fáum nokkrar myndir með honum. En svo gætum við orðið heppin. Hvernig sem það fer höfum við allavega þessa mynd :)

5 comments:

  1. Vá magnað að hafa fundið myndina. Og hann er ekkert smá mikið krútt! Guð hvað ég hlakka til að hitta hann :)

    ReplyDelete
  2. María Bender25 June, 2012 09:40

    Yndislegur - mig langar að knúsa hann :) Ómetanlegt að eiga þessa mynd.

    ReplyDelete
  3. Þið eruð ekkert smá dugleg að grafa upp upplýsingar á netinu og ótrúlegt hvað það hefur verið mikil fjölmiðlaumfjöllun! Hlakka svo ótrúlega mikið til að hitta hann!

    ReplyDelete
  4. Ég á reyndar ekki heiðurinn af því að hafa fundið þessa mynd. Er komin í samband við eina sænska sem sótti barn á sama stað í fyrra og sú er snillingur í að finna hluti á netinu.
    En já, það er frábært hvað eru til miklar upplýsingar á netinu :)

    ReplyDelete
  5. Heiðdis Jónsdóttir15 July, 2012 11:11

    Yndislegur - verulega knúsulegur drengur. Þetta er einhvernveginn ennþá raunverulegra þegar myndin er komin.
    Knús á ykkur

    ReplyDelete