Tuesday, June 26, 2012

Nafn

Strákurinn okkar heitir núna Fu Ming Ji, eða 福明吉.
Fu  er eftirnafnið sem börn á þessu sama barnaheimili hafa fengið.
Það þýðir heppni, hamingja eða eitthvað þannig. Þar sem börnin eru munaðarlaus er talið að börnin þurfi á góðu nafni að halda til að þeim farnist vel í lífinu.
Ming  er bæði tilvísun í Ming tímabilið í Kína og táknið þýðir líka bjartur, skýr eða opinn.
Ji  þýðir svo heppinn eða giga (milljarður).
(Þessar þýðingar eru frá vefsíðunni http://www.mdbg.net/chindict/chindict.php.)

Við erum að vinna í að finna íslenskt nafn en erum ekki búin að ákveða neitt ennþá. Við erum heldur ekki búin að ákveða hvort við munum skipta alveg yfir í íslenskt nafn eða hafa eitthvað kínverskt með. En við verðum búin að ákveða eitthvað áður en við förum til Kína.

Ég efast samt um að við munum láta hann heita Bjartur Heppni, þótt hann heiti það eiginlega núna :)


Annars gerði ég smá breytingu á stillingum á kommentum um daginn, þetta var einhvern veginn læst en er núna opið. Ef einhver er með einhverjar spurningar þá er velkomið að spyrja, til dæmis með því að setja inn komment.

1 comment:

  1. Bjartur Heppni, er heppinn :) Ef hann væri stelpa gæti hann heita Birta Lukka!

    ReplyDelete