Thursday, July 5, 2012

Biðin endalausa

Við bíðum og bíðum.

Erum eiginlega búin að sætta okkur við það að kannski fáum við ekkert meiri myndir og upplýsingar fyrr en við hittum Ming Ji í eigin persónu úti í Kína.
Svo er ekkert að frétta af LOA (formlega samþykkinu sem við erum að bíða eftir). Miðað við þær upplýsingar sem við fengum fyrir um tveimur mánuðum síðan ætti að vera sirka mánuður eftir af þeirri bið. Eftir það svo önnur bið í um það bil mánuð áður en við getum svo farið út.
Stundum finnst mér eins og þessi bið sé endalaus...

Annars skruppum við til London í nokkra daga og kíktum meðal annars í búðir. Keyptum slatta af barnafötum - það var gaman :) Ég hefði alveg verið til í að kaupa meira en Brjánn stýrði mér í skynsemisátt, eitt barn þarf nefnilega víst bara takmarkað magn af fötum.
Svo erum við að byrja að græja barnaherbergið (og reyndar mála alla íbúðina) - það á eftir að vera skemmtilegt :)
Þannig að þrátt fyrir endalausa bið erum við líka að gera eitthvað sem gerir biðina aðeins skárri.

Erum svo búin að fara á þrjú kvöldnámskeið hjá Íslenskri Ættleiðingu síðustu vikur til að undirbúa okkur fyrir ferðina.
Þannig að við erum búin að fara á undirbúningsnámskeið, lesa fullt af bókum, allskonar á netinu og fara á fleiri námskeið.
Erum algjörlega tilbúin og nennum ekki að bíða lengur!
Getur ekki einhver komið þeim skilaboðum til Kína fyrir okkur?

Þetta er allavega æfing í þolinmæði.

No comments:

Post a Comment