Friday, July 27, 2012

Það sem við vitum um strákinn okkar

Jæja, það styttist óðum í brottför.
Við erum búin að fá formlega ferðaleyfið frá Kína og erum búin að kaupa flugmiðana, tvo út og þrjá heim :)

Ég fór að velta því fyrir mér hvað við vitum um þennan litla strák sem við ætlum að taka með okkur heim. Við höfum nokkrar myndir af honum og upplýsingar úr nokkrum skýrslum. Við getum reyndar ekki gert ráð fyrir að upplýsingarnar í skýrslunum séu réttar, en þær gætu mögulega verið það.

Hvað hæð, þyngd og þess háttar varðar þá eru upplýsingarnar sem við höfum svoldið mikið misvísandi. Það á því eftir að koma í ljós hvort fötin sem við erum búin að kaupa eru passleg eða of stór. Það er þó nokkuð öruggt að hann sé með 16 tennur, skýrslunum ber allavega saman um það.

Þegar við fengum upphaflegu upplýsingarnar fylgdi með skýrsla með samantekt yfir hvernig Ming Ji hefði þroskast. Ég tók saman helstu punktana:
  • 3 mánaða gat hann hlegið upphátt.
  • 6 mánaða gat hann setið með stuðningi og veifaði höndum og fótum þegar hann lá í rúminu sínu.
  • 9 mánaða var hann með 3 tennur og gat stutt sig með höndunum, lyft höfðinu og ruggað sér. Hann gat setið einn í rúminu sínu og rúllað sér.
  • 12 mánaða var hann með 5 tennur.
  • 15 mánaða fór hann í þjálfunarprógramm og tók miklum framförum. Gat staðið og haldið á hlutum, fannst gaman að leika við aðra. Var aktívur og brosti mikið. Þekkti nafnið sitt og fannst gott að fá faðmlög.
  • 21 mánaða gat hann labbað auðveldlega og skilið einfalda hluti eins og borða, sofa, opna/loka hurð. Hann klifraði upp á borð, fannst gaman að leika með leikföng. Var kurteis og hlýðinn og fannst gaman að fá hrós. Gat sagt nokkur orð, var aktívur, fannst gaman að leika sér við aðra og með dót. Í uppáhaldi var að hlaupa og leika sér með bolta.
Fyrir rúmri viku síðan fengum við uppfærðar upplýsingar. Hæðar og þyngdartölurnar voru skrýtnar því það virtist sem Ming Ji hefði minnkað um allnokkuð marga sentimetra. En við ákváðum að halda bara áfram að hugsa "það kemur í ljós" og ekki pæla allt of mikið í því.

Samkvæmt þessum nýju upplýsingum er hann búinn að vera hjá fósturfjölskyldu á vegum barnaheimilisins síðustu vikurnar. Mögulega er það einhvers konar aðlögun vegna ættleiðingarinnar, en við vitum það ekki fyrir víst.
Það kom fram að hann er eitthvað eftirá í þroska sem útskýrist af því að hann er búinn að vera á stofnun allt sitt líf. Það er mjög algengt hjá börnum sem koma frá munaðarleysingjaheimilum og þau ná því yfirleitt upp tiltölulega fljótt þegar meiri örvun verður til staðar. Hreyfiþroskinn virðist þó vera eðlilegur, hann hleypur og hoppar og þess háttar.
Hann virðist ekki tala mikið miðað við upplýsingarnar en getur tjáð sig með bendingum og líkamstjáningu. Hann er hrifinn af faðmlögum og getur verið svoldið óþekkur. Hann er aktívur, finnst gaman að dansa og hreyfa sig.

Það kemur svo bara í ljós hvað er að marka þessar upplýsingar og hvernig Ming Ji verður þegar við hittum hann í fyrsta skipti þann 20. ágúst. Það á allavega eftir að vera gaman að kynnast honum Kára Birni :)

3 comments:

  1. Margrét Eiríksdóttir28 July, 2012 11:31

    Sæl Andrea

    Þetta er nú aldeilis spennandi hjá ykkur núna :-)

    Það er fróðlegt að lesa vangaveltur þínar um þær upplýsingar sem þið hafið fengið um Kára Björn og eiginlega svolítið skrýtið - hvernig á að vita hvaða upplýsingar eru réttar og svona ;-) En mikið verður nú gaman þegar þið fáið að sjá hann í fyrsta sinn og kynnast þessum litla gutta.

    Góðar kveðjur
    Margrét,
    Dalvík

    ReplyDelete
  2. Gaman að fá upplýsingar um drenginn ykkar. Það verður ekkert smá gaman að fá hann heim og þá fær hann nú aldeilis faðmlögin sín alveg hægri vinstri.
    Annalú

    ReplyDelete
  3. Ohhh kelirófa á leiðinni :) Þetta er svo spennandi! Lítill aktívur boltastrákur sem fílar knús. Flott uppskrift!
    knús á ykkur

    ReplyDelete