Sunday, July 15, 2012

Barnaheimilið í Jinan

Núna er Kári Björn Ming Ji staddur á barnaheimilinu í Jinan þar sem hann hefur átt heima alla sína ævi.

Jinan er höfuðborg Shangdong héraðs og er um 400 km suður af Beijing, höfuðborg Kína. Þar búa um 6 milljón manns, þar á meðal einn sem flytur bráðum til Íslands :)
Jinan er þekkt sem "city of springs" því þar eru um 700 náttúrulegar uppsprettur sem þykja margar mjög merkilegar. Við eigum örugglega eftir að sjá eitthvað af þeim fljótlega.
Svæðið sem borgin stendur á er búið að vera í byggð í fleiri þúsund ár og er því með mikla sögu. Það virðist þó ekki vera mikið um túrisma í borginni.

Hér er kort sem sýnir staðsetningu Shandong héraðs innan Kína og Jinan innan héraðsins.

Barnaheimilið sem Kári er á er í útjaðri borgarinnar. Þetta er ný bygging og barnaheimilið var flutt þangað fyrir um ári síðar.

Eftir smá googl fann ég þessa loftmynd af nýju byggingunni sem virðist vera einhvers konar arkitektúrmynd og svo aðra sem er tekin af framhliðinni.



Eftir að barnaheimilið flutti er það þáttakandi í prógrammi hjá samtökum sem heita Half the sky. Þessi samtök vinna að því að munaðarlaus börn fái nauðsynlega örvun og umhyggju, en ekki bara mat og húsnæði eins og stundum vill verða á munaðarleysingjaheimilum.

Áður var það flutti var aðbúnaðurinn víst ekki jafn góður og hann er núna. Miðað við það sem ég hef heyrt fengu börnin ekki mjög mikla örvun og voru því oft eftirá í þroska þegar þau komu til foreldra sinna.

Við erum mjög ánægð með að barnaheimilið sé núna með í Half the sky prógramminu því að það eykur líkurnar á að þegar við fáum Kára Björn til okkar þá hafi hann fengið allavega eitthvað af þeirri örvun sem öllum börnum er nauðsynleg til að þau þroskist eðlilega.


2 comments:

  1. Það er svo dásamlegt að hann Kári Björn sé loksins að koma heim til Íslands, þar sem hann á að vera í faðmi fjölskyldunnar sinnar.

    ReplyDelete
  2. María Bender17 July, 2012 15:44

    Frábært að sjá þessa mynd af barnaheimilinu. Það styttist í að Kári Björn komi heim :)

    ReplyDelete