Friday, July 13, 2012

Allt að gerast!

Það mætti halda að einhver frá Kína hefði lesið síðustu bloggfærslu því að núna er allt að gerast!

LOAn er komin :)
Þegar við vorum á Patreksfirði á leiðinni að kíkja á lundana á Látrabjargi á miðvikudaginn fengum við símtal frá Íslenskri Ættleiðingu um að formlega samþykkið (LOA) væri komið. Við fórum svo í morgun og skrifuðum undir, og að sjálfsögðu voru teknar myndir, enda ansi merkilegur áfangi í þessu ferli okkar.


Þetta þýðir að líklegast förum við eftir um það bil mánuð til Kína!
Við fáum svo nánari upplýsingar um hvenær við getum farið (Kína þarf að gefa út ferðaleyfi og það tekur venjulega um mánuð, stundum styttra, stundum aðeins lengur) eftir einhverja daga.

Við erum ekkert smá glöð með þetta, því að við vorum búin að búast við að þurfa að bíða í mánuð í viðbót eftir LOAnu.

Annars er ein stórfrétt í viðbót - við erum búin að ákveða nafn á strákinn!
Kári Björn varð fyrir valinu.
Við ætlum líka að halda Ming Ji nafninu, hann á þetta nafn og við ætlum ekki að taka það af honum. Hins vegar gerum við ekki ráð fyrir að nota það svona dags daglega, hann getur svo bara valið sjálfur þegar hann er orðinn eldri hvort hann vilji nota það eða ekki. Fullt nafn verður því Kári Björn Ming Ji Brjánsson.

Núna þurfum við bara að spýta í lófana og drífa okkur í að klára allt sem á eftir að gera áður en við förum til Kína til að sækja Kára :)

14 comments:

  1. innilega til hamingju með þetta, frábærar fréttir!

    ReplyDelete
  2. ég er endalaust með tárin í augunum þegar ég les þetta blogg. Hlakka svo til að hitta Kára Björn, ekkert smá fallegt nafn. Ef þið viljð hjálparhönd við málarstörf eða önnur verkefni þá bara að kalla "hó"
    knús M

    ReplyDelete
  3. Til hamingju með þennan áfanga og fallegt nafn :)
    Knús,
    Inga Dóra

    ReplyDelete
  4. Gott nafn.
    Mér líst vel á að halda allri romsunni.

    ReplyDelete
  5. Rúna frænka14 July, 2012 08:27

    Vá þvílíkar gleðifréttir, innilega til hamingju! Mjög fallegt nafn sem smellpassar á fallega frænda:)
    Gangi ykkur vel, spennandi tímar framundan
    Kveðja frá Svíþjóð

    ReplyDelete
  6. Til hamingju með áfangann

    Jónas Unnarsson

    ReplyDelete
  7. Innilega til hamingju með frábærar fréttir, fæ alveg gleðitár eins og prinsinn minn orðar það stundum. Gangi ykkur rosalega vel
    Kveðja frá okkur í hafnardirðinum

    Unna frænka og fjölskylda

    ReplyDelete
  8. Innilegar hamingjuóskir. Hlakka til að sjá nýja frændann þegar hann kemur. Mundi biður að heilsa.
    Kveðja frá Hólmurum.
    Kolla og Mundi

    ReplyDelete
  9. Innilegar hamingjuóskir - nú er heldur betur allt að gerast :) Flott nafn á fallegum dreng.
    Bestu kveðjur, Ragnhildur

    ReplyDelete
  10. Enn og aftur, innilega til hamingju með þetta allt saman :) Mér líst vel á nafnið sem þið ætlið honum og flott að halda hinu líka. Hlakka svo til að sjá litla krílið :)
    Kv. Heiðdis

    ReplyDelete
  11. Innilega til hamingju með samþykkið og nafnið. Hlakka til að fylgjast með áfram kveðja Carolin

    ReplyDelete
  12. Til hamingju með þetta fallega nafn á drenginn. Það er svo frábært að þetta sé allt í fullu blússi!
    AnnaLú

    ReplyDelete
  13. Til hamingju með þetta allt saman og fallega nafnið hans :)

    Kv. Þórey

    ReplyDelete
  14. Innilegar hamingjuóskir frá okkur. Flott nafn á flottan gutta :)

    kv,
    Jón & Katrín

    ReplyDelete