Monday, December 3, 2012

Nóvember liðinn

Nóvember er búinn að líða frekar hratt. Ég (Andrea) er búin að vera í vinnunni og Brjánn heima með Kára. Fyrst um sinn var Kári Björn ekkert voðalega sáttur við að mamma sín væri í vinnunni allan daginn, en eftir nokkra daga var hann orðinn vanur þessu og sætti sig sæmilega við þetta fyrirkomulag. Fagnaði mér samt alltaf rosalega þegar ég kom heim eftir vinnu :)
Þeir feðgar voru duglegir að dunda sér við ýmislegt á meðan ég var í vinnunni, fóru oft í sund og gerðu ýmsar bökunartilraunir.

Kári Björn að máta skyrtu af pabba sínum.

Við fórum líka í þriðja barnaafmælið í mánuðinum, Kári Björn segir núna alltaf "afmæli" þegar hann sér logandi kerti :)

Eina helgina fórum við eina nótt í sumarbústað tengdó. Við vorum ekki viss um hvernig Kári myndi taka því að sofa annars staðar en heima, en það reyndist ekki vera neitt vandamál. Hann skemmti sér vel í bústaðnum, í boltaleik með foreldrunum og að sjálfsögðu fór pottormurinn í pottinn.



Kári Björn talar alltaf meira og meira, stundum er hann að reyna að segja manni eitthvað sem honum finnst greinilega mjög merkilegt, en hann er því miður ekki með orðaforða í svoleiðis frásagnir þannig að hann verður stundum svoldið frústreraður þegar við skiljum hann ekki.
Síðustu daga er hann búinn að vera mjög upptekin af stór/lítill og bendir á hluti og hrópar "stór" og svo á minni hlut og segir með venjulegri rödd "lítill". Orðin hans hljóma reyndar ekki alltaf eins og þau eiga að hljóma, en við skiljum hann svona oftast. Hann skilur næstum allt sem við segjum við hann.

Núna erum við Brjánn búin að skipta um hlutverk, ég er heima með Kára á meðan Brjánn fer í vinnuna. Það er mjög fínt að vera heima í desember og kynna Kára Björn fyrir öllu jólastússinu. Við fórum til dæmis í dag og keyptum ljósaseríu sem við settum í gluggann hans. Svo næstu daga eigum við eftir að hlusta á jólalög, baka smákökur og skoða jólaskraut.

Í gær fórum við Kári að hitta vinkonur og syni þeirra og bökuðum og skreyttum piparkökur. Kári Björn skemmti sér mjög vel, sérstaklega við að borða kökuskraut. Var svo mjög stoltur af afrakstrinum, en finnst piparkökurnar reyndar ekkert góðar, en sleikir af þeim glassúrinn og kökuskrautið.


Annars heldur Kári Björn áfram að uppgötva eitthvað nýtt, bæta við orðaforðann og gaurast. Finnst rosalega gaman í alls konar eltingarleikjum, að vera úti á róló en líka að kubba, klippa pappír, fara í bað og láta tannbursta sig. Þessa dagana er hann endalaust að segja að eitthvað sé fyrir stóra krakka (hjá honum hljómar það reyndar bara einfalt: "kakka") þegar hann vill ekki eitthvað, hann má ekki gera/fá eitthvað eða þegar eitthvað er of stórt fyrir hann.

Við gerðum tilraun til að taka fjölskyldumynd um daginn, það gekk ekki alveg nógu vel, það var alltaf einhver skrýtinn á myndinni.


Wednesday, October 31, 2012

Sund, afmæli og klipping

Kári Björn heldur áfram að vera kátur og glaður svona oftast nær. Hann virðist vera með endalausa orku og hleypur út um allt á milli þess sem hann dregur foreldra sína inn í herbergi og skipar þeim að kubba með sér (eða lesa fyrir sig, eða leika í einhverjum leik sem hann finnur upp á). Hann vaknar glaður á morgnana eftir að hafa oftast (ekki alveg alltaf samt) sofið alla nóttina í sínu rúmi. Kára finnst rosalega gaman að hnoðast með foreldrum sínum, láta kitla sig og knúsa. Hann er núna farinn líka að kyssa okkur að fyrra bragði (byrjaði á því fyrir svona tveim, þremur vikum) sem okkur finnst náttúrlega alveg frábært.


Við höldum áfram að fikra okkur áfram með ýmislegt til að prófa, höfum fengið nokkrar heimsóknir og það hefur gengið vel þótt Kári Björn sé stundum svoldið óöruggur með sig ef það eru börn að skoða hans dót. En það er allavega orðið þannig að ef einhver vill koma í heimsókn til okkar þá er það velkomið.

Kári er búinn að prófa að fara tvisvar í barnaafmæli og í bæði skiptin gekk það bara mjög vel, hann borðaði afmæliskökuna með bestu lyst, lék sér með dót án þess að eiga í of miklum útistöðum við aðra krakka og var mjög hrifinn af hugmyndinni um afmælissöng og það að blása á kerti. Á leiðinni heim í bílnum í bæði skiptin vildi hann láta syngja afmælissönginn nokkrum sinnum og alltaf þegar hann sér myndir af afmælisköku með kertum (í bókunum sínum) blæs hann í áttina að myndinni.

Þar sem Kári Björn er afskaplega hrifinn af því að fara í bað þá áttum við alveg von á að hann væri hrifinn af sundi og það reyndist vera rétt. Við erum búin að fara tvisvar í sund við mikla hrifningu yngsta fjölskyldumeðlimarins. Hann prófaði rennibrautir og fór á kaf og fannst þetta allt voða skemmtilegt.

Glaður í baði.

Í dag fór Kári svo í sína fyrstu klippingu. Fyrst lét pabbinn klippa sig og mæðginin fylgdust með og sáu að þetta var nú ekkert hættulegt. Kári Björn var svo bara duglegur, sat nokkurn veginn kyrr og var ekkert ósáttur við að láta klippa sig. Vildi líka láta aðeins blása á sér hárið (mjög mikilvægt) og minntist svo nokkrum sinnum í dag á að hann hefði farið í klippingu og væri nú rosa fínn (benti á hárið á sér og sagði vááá).


Orðaforðinn hjá Kára eykst smátt og smátt, það sem hann segir er kannski ekki alltaf mjög skiljanlegt, en honum fer fram (í dag lærði hann t.d. nýtt orð, snjór eða "njó"). Hann er líka greinilega að safna í sarpinn því að síðustu daga er hann endalaust að benda á hluti og lætur okkur segja hvað hlutirnir heita. Það getur orðið svoldið þreytandi að vera endalaust að segja diskur, gaffall, gólf, mamma, ljós, og svo framvegis, í  miðri máltíð, en við foreldrarnir hlýðum samviskusamlega þegar Kári fer að benda, enda viljum við að sjálfsögðu hjálpa honum að læra.

Kári er farinn að segja brandara, hann er svona (sagt einhvern tímann yfir daginn): Góða nótt - neiiii - góðan dag (og svo er hlegið/brosað). Hans útgáfa hljómar reyndar einhvern veginn svona: "nú nú nú - neiiii - dag".

Kári Björn er búinn að stækka heilmikið síðan við fengum hann, hann fór til læknis í vikunni og var hæðar- og þyngdarmældur. Þegar við fengum hann var hann 88 cm og 11,7 kg. Húna er hann 90 cm og 12,4 kg. Það var líka nokkuð augljóst þegar við sáum hann borða að hann myndi líklegast stækka hratt til að byrja með. Hann heldur áfram að borða mikið, en okkur finnst mögulega aðeins verið farið að hægjast á hjá honum (ekki mikið samt).

Á morgun er mamman að fara að vinna og þaðan í frá munu Andrea og Brjánn skiptast á að vinna og vera heima hjá Kára, mánuð eða tvo í senn. Það er skrýtið að þessir tveir mánuðir sem við erum búin að hafa öll saman eru búnir og það á eftir að vera skrýtið fyrir mömmuna að fara í vinnuna og feðgana að vera bara tveir saman. Kári Björn er búinn að heimsækja mömmu vinnu nokkrum sinnum og mun væntanlega kíkja í heimsókn á morgun líka. Þannig mun hann vonandi átta sig á að mamma er ekkert horfin heldur kemur aftur heim í lok hvers dags. Vonandi eiga næstu dagar og vikur eftir að ganga vel hjá okkur fjölskyldunni.

Ólíkt því sem Kári Björn heldur miðað við hans reynslu af vinnunni hjá mömmu mun mamman ekki hlusta á mörgæsalagið á youtube og borða matarkex allan daginn í vinnunni. :)


Thursday, October 4, 2012

Fyrstu veikindin afstaðin

Kári Björn er búinn að vera lasinn síðustu daga en er sem betur fer orðinn hress núna.
Hann byrjaði að kveinka sér svoldið þegar hann borðaði um síðustu helgi og við héldum að hann væri kannski með munnangur eða að fá jaxla eða eitthvað þannig. Aðfaranótt sunnudagsins var hann oft að vakna og grét þá mikið, en sofnaði svo aftur og á sunnudaginn vildi hann ekki borða mikið (þótt hann væri alveg til í ís hjá ömmu og afa).

Aðfaranótt mánudagsins var aftur erfið og Andrea svaf á dýnu á gólfinu inni í Kára herbergi á meðan Brjánn sá um að hugga Kára Björn þegar hann vaknaði grátandi. Á mánudeginum borðaði hann svo sama og ekkert, en reyndi það nokkrum sinnum og fór þá alltaf að hágráta. Svo hékk hann alveg utan í mömmu sinni sem átti helst að halda á honum allan daginn. Þá vissum við foreldrarnir að það væri eitthvað meira að en eitthvað smá  munnangur og fórum með strákinn til læknis. Læknirinn sagði okkur að Kári Björn væri með gin- og klaufaveiki, öðru nafni handa-, fóta- og munnveiki (hand, foot and mouth disease) sem lýsti sér þannig að það væru útbrot (litlar blöðrur) á höndum, fótum og í munni. Það var víst hellingur af þessum útbrotum aftast í munninum á Kára, sem útskýrði sársaukann hjá honum við að borða. Okkur foreldrunum var létt við að vita hvað væri að barninu okkar og að það myndi lagast á nokkrum dögum.

Næstu tvær nætur svaf Andrea á dýnu á gólfi inni í geymslu (gluggalausa herbergi fyrir þá sem þekkja til) en Kári svaf í hjónarúminu með pabba sínum. Brjánn sá um að hugga strákinn þegar hann vaknaði á næturna (sem var oft) og mamman var svo til taks á daginn. Þar sem Kári Björn vildi helst bara vera í fanginu á mömmu sinni í veikindunum ákváðum við að skipta með okkur verkum svona. Það gekk ágætlega, en mikið óskaplega vorum við orðin þreytt.

Í gær fór Kári svo að hressast, byrjaði að borða svoldið en gat ekki borðað hvað sem er. Hann byrjaði að líkjast sjálfum sér, en var frekar pirraður. Þegar hann lagði sig eftir hádegi svaf hann án þess að vakna grátandi og við foreldrarnir sáum fram á að eiga mögulega góða nótt. Það gekk eftir og Kári Björn svaf í einum dúr í alla nótt og foreldrarnir sváfu vel í sínu rúmi. Hann er orðinn hress núna og virðist alveg hættur að kveinka sér, þótt við ætlum að forðast harðan mat í dag.

Við erum ánægð með að vera búin að fá káta matargatið okkar aftur. Það var mjög erfitt að horfa upp á Kára Björn gráta af sársauka við að reyna að borða en vilja samt borða eitthvað. Svo gat hann náttúrlega lítið gert sig skiljanlegan, þannig að okkur létti mikið að vita hvað var að.

Að öðru leyti en hvað við kemur veikindum gengur bara mjög vel hjá okkur litlu fjölskyldunni. Ömmur og afar eru farin að fá að koma í heimsókn til okkar og Kári Björn tekur því bara vel. Við höldum annars bara áfram okkar rútínulífi og finnst frekar skrýtið hvað tíminn líður hratt.



Við kíktum í Elliðárdalinn um daginn til að skoða kanínur





Tuesday, September 25, 2012

Rútínulíf

Jæja, þá erum við búin að vera heima í fjórar vikur og búin að vera fjölskylda í mánuð og fimm dögum betur.

Ennþá gengur allt mjög vel og allir eru að venjast nýja lífinu, meira að segja heimiliskötturinn. Birta kisa virðist vera farin að átta sig á því að Kári Björn er ekki að fara neitt og að hann er ekki jafn hættulegur og hann lítur út fyrir að vera. Hún er samt fljót að láta sig hverfa þegar hún sér fram á að hann ætli að fara að kássast í henni. Kári virðist líka vera farin að átta sig á því að Birta er ekkert sérstaklega mikið fyrir börn og lætur hana að mestu leyti í friði.

Síðustu tvær vikurnar erum við búin að vera að dúlla okkur heima, fara hingað og þangað og fá þær upplýsingar hjá lækni að Kári Björn sé hraustur og án annarra kvilla en þeirra sem við vissum af. Hann kemur til með að þurfa að fara í einhverjar aðgerðir, en það kemur allt saman betur í ljós síðar.

Kári Björn ánægður í gallabuxunum sínum, hann vill helst alltaf vera í þeim.
Kári Björn sefur langoftast alla nóttina, sofnar milli átta og níu (fer eftir hvað hann er lengi að sofna/hætta að vera óþekkur) og vaknar milli sjö og átta. Sefur án vandræða í sínu rúmi þannig að foreldrarnir fá nægan ótruflaðan svefn, þeim til mikillar ánægju. Kári borðar ennþá mjög vel en er farinn að vesenast meira með matinn en áður, foreldrunum til mikillar gleði - eða hitt þó heldur. Við erum að spá í hvort sé mögulega að hægjast aðeins á átinu hjá honum, en það á eftir að koma betur í ljós.

Við erum farin að auka heimsóknir til annarra og erum búin að fá móðurömmuna og -afann í stutta heimsókn sem gekk bara vel. Svo fengum við félagsráðgjafa í heimsókn í dag og Kári Björn sætti sig alveg við að hún væri á heimilinu, en vildi reyndar losna við hana þegar leið á viðtalið, sagði "jæja" og fór fljótlega eftir það að vinka bless. Sem hluta af ættleiðingarferlinu þarf að skila nokkrum eftirfylgniskýrslum til Kína, þeirri fyrstu núna eftir að mánuður er liðinn. Þessar skýrslur þarf félagsráðgjafi að vinna, þannig að við munum fá nokkrar félagsráðgjafaheimsóknir næstu árin.

Við skruppum aðeins út á Gróttu um daginn í smá fjöruferð.
Kári Björn heldur áfram að vera afskaplega hrifinn af dýrum, hann er líka endalaust að benda á strætóa, stóra bíla, flugvélar og vinnuvélar þegar við erum úti. Hann verður sífellt klárari að kubba með legokubbum og áhugi hans á að leika með bíla er að aukast. Eldhúsáhöld (dótaútgáfan), sérstaklega hnífapör, halda samt áfram að vera skemmtilegust. Það er endalaust hægt að búa til mat úr lofti og gefa foreldrum og böngsum að borða. Kára finnst líka gaman að hlusta á barnatónlist en í langmestu uppáhaldi er Mörgæsalagið úr Söngvaborg 6 sem við fundum á youtube. Það er búið að hlusta/horfa ansi oft á það á þessu heimili og Kári biður um að fá að horfa á það nokkrum sinnum á dag.

Á hoppubelgnum í Húsdýragarðinum.
Við erum búin að kíkja aðeins í Húsdýragarðinn sem á eftir að verða heimsóttur nokkuð oft gerum við ráð fyrir. Um daginn kíktum svo í dagsferð í sumarbústað föðurafans og -ömmunnar. Kári Björn var mjög ánægður með ferðina í heita pottinn, eftir að hann var búinn að jafna sig. Hann fór nefnilega svoldið að gráta þegar hann hélt að við ætluðum að svíkja hann um heitapottsferðina. Honum finnst alveg svakalega gaman að fara í bað og leist ekkert smá vel á þegar við buðum honum að fara í bað í heita pottinum. Hann reif sig úr öllum fötunum og ætlaði beinustu leið í pottinn. Þegar við fórum að setja hann í sundbuxur hélt hann að við ætluðum að svíkja hann um baðferðina og fór að hágráta. Hann róaðist aðeins þegar mamman var komin í pottinn í sundfötunum og varð mjög glaður þegar hann fékk að fara útí líka, ásamt pabbanum.

Glaður í pottinum.
Ánægður eftir góða "bað"ferð í bústaðnum.
Á næstum dögum og vikum munum við halda áfram að sinna rútínunni okkar og auka væntanlega samneyti okkar við annað fólk. Við foreldrarnir munum líka halda áfram að kenna Kára Birni ný orð, maður kemst víst ekki mjög langt í lífinu á "nei", "jæja", "gkha" (drekka), "nónónó" (góða nótt) og öðrum svipuðum orðum.

Wednesday, September 12, 2012

Tvær vikur heima

Þá erum við búin að vera heima í tvær vikur. Enn sem komið er gengur bara ótrúlega vel.

Til að undirbúa okkur undir ættleiðinguna vorum við búin að lesa okkur til og fá upplýsingar um alls kyns vandamál sem gætu komið upp, en enn sem komið er höfum við ekki lent í neinum sérstökum vandræðum. Kári Björn virðist vera nokkuð sáttur við okkur og nýja lífið sitt. Við erum þó að fara hægt í allar breytingar, enda höfum við nógan tíma.

Kári Björn er búinn að hitta helstu meðlimi nánustu fjölskyldunnar og kíkja í heimsóknir til afanna og ammanna. Um helgina kíktum við í lokin á fjögurra ára afmæli systurdóttur Brjáns, þegar næstum allir voru farnir, og Kári var bara sáttur við það. Var ánægður að sjá allt dótið sem frændsystkini hans eiga og hafði engan tíma til að fá sér afmælisköku, vildi miklu frekar leika sér. Meðal annars setti hann fullt af dóti í dúkkuvagn frænku sinnar og keyrði hann svo ánægður um allt. Frændsystkini hans (fjögurra og sex ára) eru voða góð við hann og eiga örugglega eftir að vera fínir leikfélagar síðar meir.

Kári er búinn að hitta annan frænda sinn, eins árs systurson Andreu sem býr úti á landi en er hjá ömmu sinni og afa um þessar mundir. Það er frekar fyndið að fylgjast með þeim frændum, Kári Björn fylgist með litla frænda sínum sem fiktar í öllu og segir óóóóó þegar hann gerir eitthvað sem Kári veit að ekki má (eins og að fikta í snúrum eða eldhússkápum). Þar sem hann getur ekki sagt okkur frá því hvað hann er að hugsa ímyndum við foreldrarnir að hann sé annaðhvort að benda frænda sínum á að þetta megi ekki, eða sé svona hissa á að frændinn skuli ekki vita að þetta sem hann sé að gera sé bannað.

Við höfum líka kíkt í heimsókn í vinnurnar okkar og farið í búðir og til læknis. Að öðru leyti höfum við verið frekar mikið út af fyrir okkur. Nú getum við farið að fikra okkur áfram með að hitta fleira fólk þar sem heimsóknir gengið vel fyrir sig hingað til. Enn sem komið er erum við þó ekki tilbúin til að taka á móti heimsóknum (nema Kári sé sofnaður) því við þurfum aðeins lengri tíma til að aðlagast fyrst.

Kári Björn er farinn að sofa í sínu rúmi eftir að foreldrarnir fengu nóg að því að láta sparka í sig alla nóttina. Það gengur ekki alveg átakalaust fyrir sig, en það á eftir að koma betri reynsla á þetta. Við erum enn að fikra okkur áfram með svefninn, Kári þarf að leggja sig á daginn og þá daga sem það tekst ekki er hann afskaplega þreyttur og pirraður þegar líður á daginn. Sum kvöld sofnar hann svo á nokkrum mínútum en stundum tekur það ansi langan tíma að fara að sofa. Þar sem þetta er frumraun okkar í foreldrahlutverkinu vitum við ekki alveg hvað sé eðlilegt í þessu öllusaman og erum að prófa okkur áfram. Við gerum samt ráð fyrir að þetta, eins og ýmislegt annað, komi með tímanum.

Kári borðar mjög vel, stundum álíka mikið og mamma sín. Hann vill flest það sem við bjóðum honum uppá, en er þó ekki hrifinn af grænmeti, það er helst soðið brokkolí sem fer upp í hann. Skyr er í miklu uppáhaldi hjá honum en hann er hættur að borða jafn mikið af bönunum og áður. Læknirinn sem skoðaði hann sagði okkur að það væri mjög algengt að börn sem eru ættleidd erlendis frá borði mjög mikið fyrst eftir að þau komi heim og taki þá mikinn vaxtakipp en svo hægist á átinu og vextinum eftir það. Við eigum því von á að Kári Björn eigi eftir að stækka mikið á næstunni.

Læknisskoðunin gekk ágætlega fyrir sig, Kári var ekkert voðalega hress með að láta pota í sig og það komu þónokkur tár, en hann stóð sig bara vel. Enn sem komið er hafa öll próf (blóðprufur, þvagprufur osfvr) komið vel út, en við förum í fleiri skoðanir í næstu viku. Kári Björn kemur til með að þurfa að fara í amk eina aðgerð, en það á eftir að koma í ljós hvernig verður með það.

Kári Björn heldur áfram að vera mjög hrifinn af köttum og hundum, Birta kötturinn okkar er yfirleitt frekar fljót að forða sér þegar hann nálgast þótt hann sé oftast góður við hana (hún veit að hann á það til að vera harðhentur). Þegar við erum úti er Kári mjög glaður ef við fáum að klappa hundum sem við hittum og vill helst ekki kveðja þá. Þegar hann heyrir í flugvél horfir hann til himins og bendir svo á flugvélina, það sama gerir hann ef hann sér strætó (eða flutningabíla), finnst það greinilega mjög merkileg fyrirbæri.

Kári er ekki mjög spenntur fyrir sjónvarpinu, það er helst ef það eru hundar eða kettir á skjánum eða verið að dansa og syngja. Honum finnst gaman að hlusta á tónlist, sérstaklega ef foreldrarnir syngja með, og reynir stundum að syngja með þótt hann kunni ekki orðin.

Hann skilur ótrúlega mikið en tjáir sig mest með látbragði. Það eru að myndast nokkur orð hjá honum, það sem er mest notað þessa dagana er líklega "jæja". Við foreldrarnir þurfum mjög oft að giska á hvað það er sem Kári er að meina, en það gengur bara sæmilega vel. Kannski finnst honum við voðalega vitlaus að skilja svona lítið...


Yfirleitt er Kári Björn kátur og glaður, hann á það þó til í að breyta skapi mjög hratt. Hann vill vera mjög mikið hjá okkur og láta halda á sér. Við foreldrarnir erum frekar þreytt þessa dagana því lífið okkar núna er mjög breytt frá því sem var þegar við höfðum endalausan tíma til að slappa af. En það sem við fáum í staðinn fyrir frítíma er þessi (oftast) frábæri strákur sem við getum ekki hugsað okkur að vera án.



Sunday, September 2, 2012

Róló, ís og hjól

Fyrsta helgin okkar litlu fjölskyldunnar gekk bara vel fyrir sig. Kári Björn er hrifinn af að vakna snemma þannig að foreldrarnir þurftu að sætta sig við að vakna klukkan sex og hálfsjö. Að sofa út um helgar er víst búið hjá okkur í bili.

Kári Björn prófaði ýmislegt í fyrsta skipti núna um helgina. Hann prófaði þríhjólið sem frænka hans var svo góð að lána honum og skemmti sér vel við að ýta sér áfram á hjólinu við húsið. Honum langaði samt meira að sitja á stóru hjólunum, en þótt við séum komin með barnastól á hjól þá þurfum við að kaupa hjálma áður en við förum í hjólatúr. Kári á eflaust eftir að skemmta sér vel við að sitja aftan á stóru hjóli miðað við áhugann sem hann hefur á að skoða alls konar hjól.


Við fórum líka út á róló um helgina og hittum þar systur Brjáns og hennar fjölskyldu. Kára Birni kom bara vel saman við frændsystkini sín og skemmti sér vel við að róla og renna í rennibrautunum. Nýji pollagallinn og stígvélin komu sér líka mjög vel þegar Kári fann poll til að sulla í.


Núna í kvöld fórum við svo í mat til foreldra Andreu þar sem afinn átti afmæli og Kári Björn stóð sig eins og hetja í nýju umhverfi. Hann lék sér, klappaði heimiliskettinum, prílaði í tröppunum og borðaði alveg helling. Svo smakkaði hann ís í fyrsta skipti og þótt fyrstu viðbrögðin hefðu verið svoldið óviss þá ákvað hann að ís væri góður og vildi endalaust fá meira.

Á morgun erum við búin að vera fjölskylda í tvær vikur. Enn sem komið er gengur bara mjög vel og okkur foreldrunum finnst strákurinn okkar langoftast vera æðislegur. Hann er skemmtilegur og yfirleitt glaður og kátur þótt hann eigi það til að vera erfiður. Það er ekki mikill dauður tími hjá okkur og Kári sér til þess að við höfum nóg að gera.


Honum finnst gaman að láta kitla sig og líka að kitla foreldrana. Hann er mjög hrifinn af tröppum (og rúllustigum og lyftum) og vill helst labba upp og niður allar tröppur sem hann sér. Kári Björn er afskaplega hrifinn af dýrum og vill klappa öllum köttum og hundum sem hann sér. Stundum á hann það til að kyssa myndir af hundum eða köttum sem eru í bókunum hans, en annars segir hann næstum alltaf aaaaa þegar hann sér dýrin. Við erum búin að vera að skoða nokkrar dýrabækur og gefa frá okkur dýrahljóð (mee, möö, osfrv) og það er alveg hrikalega fyndið þegar Kári reynir að herma eftir öskri tígrisdýra og ljóna.

Það eru að myndast vísar að nokkrum íslenskum orðum, eins og "drekka", "meira" en orðin eru frekar óskýr ennþá. Hann skilur samt alveg heilmikið og við erum líka dugleg að nota tákn og bendingar til að gera okkur skiljanleg. Kára finnst rosalega gaman að skoða myndir af sjálfum sér og bendir stundum á myndavél og svo sjálfan sig, til að gefa til kynna að nú eigum við að taka af honum mynd.

Á morgun fer Kári Björn í læknisskoðun og ef marka má síðustu heimsókn til lækna þá eiga eflaust einhver tár eftir að renna á morgun, enda ekkert skemmtilegt að láta pota í sig.


Friday, August 31, 2012

Fyrstu dagarnir heima

Núna erum við búin að vera heima í þrjá daga. Kára Birni virðist líka ágætlega við nýja heimilið sitt og er alveg afskaplega hrifinn af heimiliskettinum.

Þegar þetta er skrifað er Kári sofandi inni í rúmi og við foreldrarnir dauðuppgefnir eftir daginn. Það tekur á að vera með tveggja ára gaur sem við erum búin að þekkja í 11 daga og er mjög krefjandi. Hann vill mjög mikið láta halda á sér og er ekki mikið einn að dunda sér, heldur vill að að minnsta kosti annað okkar sé með honum. Við erum vön því að ráða okkar tíma sjálf þannig að þetta er ansi mikil breyting og tekur eflaust svoldinn tíma fyrir okkur að venjast því að þurfa sífellt að vera að sinna annarri manneskju. Svo er líklegt að þegar fram líða stundir og Kári Björn orðinn öruggari með sig þá muni hann að minnsta kosti stundum dunda sér einn.

En þótt við séum ansi þreytt núna þá erum við mjög ánægð með litla gaurinn okkar. Hann er yfirleitt alveg frábær. Stundum skiptir hann þó mjög ört um skap og getur verið pirraður eina mínútuna og svo nokkrum sekúndum síðar skríkir hann af kátínu. Oftast er hann glaður og ánægður, hann vaknar til dæmis alltaf á morgnana mjög kátur.

Við erum núna búin að ganga frá þeim pappírsmálum sem þurfti hérna heima, búin að sækja um kennitölu og skila af okkur pappírum sem við fengum í Kína. Svo er læknisskoðun á dagskrá á mánudaginn. Að öðru leyti erum við bara að dúlla okkur eitthvað og búa til rútínu. Reynum að passa upp á að Kári Björn borði reglulega og fjölbreytt, að hann leggi sig á daginn (gekk fínt í dag og í gær) og fari að sofa á skikkanlegum tíma á kvöldin (hefur gengið vel hingað til, sofnar um áttaleytið). Við erum búin að fara aðeins í búðir og útréttingar en að öðru leyti ekki hitta annað fólk nema foreldra Andreu í smá stund í morgun. Þurfum svo að passa upp á að fara nógu mikið út úr húsi til að tapa ekki geðheilsunni. Líklega höfum við ekki farið nógu mikið út í dag því að það voru allir orðnir hálf pirraðir þegar leið að kvöldmat.

Það er gaman að gefa Kára að borða, hann borðar næstum allt sem við bjóðum honum með bestu lyst og borðar heilmikið. Stundum er hann svo glaður að sjá matinn sinn að hann klappar og/eða skríkir.

Það á eftir að vera skrýtið að vera öll heima næstu tvo mánuðina (eftir það skiptast foreldrarnir á að vera heima á meðan hitt vinnur) og við þurfum að vera dugleg að finna upp á einhverju til að gera. Væntanlega verður Húsdýragarðurinn mjög oft heimsóttur því að Kári Björn er afskaplega hrifinn af dýrum.

Í göngutúr með kerruna sem við fengum í Kína. Þessi kerra er ekki hentug fyrir íslenskar aðstæður og ný og voldugari kerra verður keypt á næstunni.

Vonandi verða hann og Birta, kötturinn okkar, ágætis vinir á endanum. Hann er mjög hrifinn af henni og er endalaust að spá í hvar hún sé. Hann er mikið að reyna að klappa henni og segir þá alltaf aaaaa í leiðinni (við erum búin að vera mikið að kenna honum að maður eigi að vera aaaaa við kisu). Hún leyfir honum ótrúlega oft að klappa sér og virðist taka þessari nýju mannveru alveg sæmilega, miðað við að hún hefur aldrei verið mikið fyrir börn. Kannski finnur hún á sér að þetta barn er ekki á leiðinni neitt og best að sætta sig bara við tilveru hans.

Við ætlum að halda áfram að blogga eitthvað, ekki á hverjum degi en allavega af og til. Annaðhvort þangað til við nennum ekki meir eða þangað til allt er orðið venjulegt hjá okkur og ekki lengur frá neinu að segja.

Wednesday, August 29, 2012

Komin heim

Það er gott að vera komin heim!

Ferðalagið frá Kína var ansi erfitt, þetta var erfiðasta flug sem við foreldrarnir höfum nokkurn tímann upplifað. En við komumst á leiðarenda og með allan farangurinn meðferðis, það er fyrir öllu.

Flugið frá Beijing til Helsinki byrjaði ágætlega. Kári Björn var að vísu alls ekki sáttur við að þurfa að vera með beltið spennt í flugtaki (og hélt áfram við að vera ósáttur við beltið það sem eftir var ferðalagsins) en var svo góður til að byrja með og sofnaði svo í um klukkutíma. En svo byrjuðu vandræðin. Kári vildi ekki sitja kyrr, vildi ekki borða flugvélamatinn og tók svo þar að auki nokkur brjálæðisleg grát/reiði-köst. Þar að auki vakti flugvélaklósettið rosalega skelfingu hjá honum þannig að hann fékkst ekkert til að fara á klósettið allt flugið. Við vorum orðin ansi uppgefin, öll fjölskyldan, þegar vélin lenti í Helsinki.

Feðgarnir í byrjun flugferðinnar ógurlegu.

Á Helsinki flugvelli var klukkutími á milli fluganna okkar þannig að við höfðum rétt svo tíma til að fara á klósett og fara í gegnum öryggistékk og vegabréfaeftirlit (þar sem við þurftum að sýna ýmsa pappíra varðandi ættleiðinguna) áður en við heyrðum kallað í kerfinu að síðustu farþegar þyrftu að drífa sig að hliðinu. Þá hlupum við síðasta spölinn og vorum því frekar tætt þegar við komum um borð í Icelandair vélina.

Flugið til Íslands gekk mun skár fyrir sig heldur en flugið á undan, enda mun styttra. Kári Björn var góður mest allt flugið, dundaði sér og skoðaði farþegana í sætunum fyrir aftan okkur. Svo sofnaði hann í hálftíma eða svo en endaði svo flugið á að taka um hálftíma grát/reiði-kast. Við vorum orðin svo úrvinda af þreytu þegar vélin lenti að þegar var sagt "velkomin heim" í kallkerfinu þá fór mamman að gráta.

Kári dundaði sér meðal annars við það í Icelandair vélinni að fara úr skóm, sokkum og buxum og setja svo sokkana á hendurnar og buxurnar á hausinn. Vildi svo hlaupa um gangana berfættur á samfellunni.

Á leiðinni heim af flugvellinum stoppuðum við aðeins í Hafnarfirðinum hjá foreldrum Brjáns, þar sem við hittum nokkra fjölskyldumeðlimi í smá stund. Þrátt fyrir erfitt ferðalag og mikla þreytu stóð Kári Björn sig eins og hetja í að hitta nýju fjölskylduna sína. Hann meira að segja lék aðeins við frændsystkini sín með eldhúsdótinu sem þau gáfu honum.

Þegar við komum heim þurfti Kári að rannsaka heimilið svoldið og sérstaklega allt nýja dótið en sofnaði svo rétt fyrir átta. Hann vaknaði aðeins í nótt en án vandamála og sofnaði aftur og svo svaf öll fjölskyldan til sjö.

Dagurinn í dag er svo búinn að ganga mjög vel. Við fórum að kaupa í matinn, fengum okkur svo göngutúr og svo sá Brjánn um heimilisþrif á meðan Andrea og Kári könnuðu nánasta umhverfi heimilisins. Kári Björn borðaði mjög vel í dag og við foreldrarnir vorum ánægð með að hann var ánægður með næstum allt sem við buðum honum (grænmetið með kjúklingapastanu um kvöldið var þó ekki að skora mörg stig). Hann vildi þó ekkert leggja sig í dag og var því orðinn ansi þreyttur seinnipartinn. Við settum hann í bað (sem vekur alltaf mikla lukku) og þegar klukkan var orðin nógu margt til að fara að sofa þá sofnaði hann á innan við fimm mínútum.

Monday, August 27, 2012

Kína kvatt


Það er kominn ferðahugur í okkur. Það er að segja foreldrana, Kári Björn hefur auðvitað ekki hugmynd um að á morgun fari hann heim og þessum þvælingi með fólkinu hans sé að ljúka.

Í morgun vöknuðum við í rólegheitunum þar sem við þurftum ekki að fara af hótelinu fyrr en klukkan tíu. Leið okkar lá í sendiráð Íslands í Kína, þar sem við fengum snögga afgreiðslu á vegabréfsáritun fyrir Kára Björn til Íslands. Reyndar fengum við áritun fyrir Fu Mingji, þar sem það er nafnið á kínverska vegabréfinu hans. Kári Björn verður ekki til hvað íslensk stjórnvöld áhrærir fyrr en við komum heim.

Kári Björn var stilltur piltur í sendiráðinu, og þegar við fórum gáfu sendiráðsstarfsmennirnir honum fína bangsapöndu í gulum silkijakka. Sem er alveg æðislega fallegt af þeim, og pandan ætti að falla vel að smekk litla mannsins þar sem hún er alveg eins og pandan í silkijakkanum sem hann valdi sjálfur í gær, fyrir utan að sú er auðvitað í hárauðum silkijakka. Fáránleg tilviljun að þetta séu eins pöndur, en pandan sem Kári Björn valdi sér er þá bara komin með bróður.

Kári Björn gæddi sér á Tomma og Jenna kexi í íslenska sendiráðinu í Beijing á meðan foreldrarnir fylltu út eyðublöð og fengu vegabréfaáritun fyrir drenginn heim til Íslands.


Eftir að við kvöddum sendiráðsstarfsmennina fórum við aftur á hótelið. Lifang kom með okkur og hinkraði uppi á herbergi þar til herra Wu, sérlegur skraddari frú Andreu, kom í heimsókn á hótelið með nýja silkikjólinn hennar Andreu. Kjóllinn reyndist sérdeilis prýðilegur, og alveg þess virði að borga aðeins meira fyrir þjónustu skraddara svo Andrea gæti valið snið og efni sem henni leist best á.

Þegar herra Wu var horfinn á braut fórum við með Lifang áleiðis á veitingastað sem hún vissi af sem sérhæfir sig í hrísgrjónanúðlusúpum. Því miður hafði veitingastaðnum verið lokað, svo við fórum á störnutorg í nærliggjandi verslunarmiðstöð til að fá núðlusúpur. Súpurnar voru mjög góðar, og Kári Björn gúffaði í sig núðlum og drakk súpu, þó hann hafi ekki verið sérstaklega hrifinn af kjúklingalufsunum í súpunni. Hann hefur verið aðeins slæmur í maganum svo mildur matur eins og súpan hennar mömmu ætti að vera einmitt það rétta í stöðunni. Rétt er að vekja athygli á því að foreldrarnir borðuðu núðlurnar úr súpunni með prjónum eins og innfæddir, og supu svo á súpunni úr ausum.

Eftir matinn fórum við í stóra bókabúð með Lifang og keyptum kassa með þremur geisladiskum með kínverskum barnagælum. Nú vorum við aðeins leið að vera ekki með diskadrif í tölvunni svo við getum ekki leyft litla manninum að hlusta fyrr en við komum heim. Svo skildust leiðir, Andrea fór að kaupa það sem átti eftir að kaupa, Lifang fór aftur í vinnuna og Brjánn og Kári Björn fóru upp á hótel.

Andreu gekk ágætlega að versla. Við þurfum að vera með mjög mikinn handfarangur í þetta skiptið, alla pappírana tengda ættleiðingunni, og alla gripi sem við viljum alls ekki missa sem tengjast uppruna Kára, svo Andrea keypti flugfreyjutösku til að koma öllu fyrir. Svo þurfti að kaupa buxur á snáðann, þar sem hann er svo grannur að eiginlega engar af buxunum okkar passa á hann.

Á meðan gauruðust feðgarnir á hótelinu. Fyrst var leikið inni á herbergi, en svo farið að prófa lyfturnar. Þær eru með glervegg og útsýni yfir veislusal hótelisins, svo það er ekki fyrir lofthrædda að fara upp á tíundu hæð, standa við glerið og segja „vúúú“, en það var einmitt það sem Kári Björn gerði. Ítrekað. Eftir að feðgarnir fóru aftur inn á herbergi datt Kári og lenti með hausinn í gólfinu. Hann grét heilmikið, en jafnaði sig í fanginu á pabba sínum. Engin varanleg ör eftir þetta.

Hótelherbergið er stundum eins og vígvöllur eftir lítinn mann sem hefur gaman af því að leika sér og grallarast.


Þegar Andrea kom heim eftir um 90 mínútna aðskilnað æpti Kári Björn upp, spratt á fætur og hljóp skríkjandi af gleði á móti henni og faðmaði hana. Svo mátti ekki líta af mömmu næstu klukkutímana, svo pabbinn fékk smá frið til að hvíla sig á meðan mæðginin léku sér. Við þurfum að vakna snemma í fyrramálið, svo í staðinn fyrir að fara á veitingastað og borða, með tilheyrandi veseni og óróa fyrir Kára pöntuðum við okkur mat upp á herbergi (maður gæti vanist svona room service!). Kári Björn var svo glaður að sjá matinn að hann klappaði þegar þjóninn kom með matinn okkar. Hann borðaði svo alveg heilmikið, foreldrunum til mikillar gleði. 

Litlir menn eru ekki sérstaklega snyrtilegir þegar þeir borða pasta að mestu með höndunum. Við fögnum því bara að hann borði nóg þessa dagana.


Gaurinn fékk að gaurast til klukkan að verða átta, þegar var kominn tíma á náttföt, tannbursta og mjólkursopa fyrir svefninn. Kári hafði lítið sofið þennan daginn, bara um hálftíma í bílnum rétt fyrir hádegi, svo hann sofnaði fljótt og vel. Þá er kominn tími fyrir foreldrana að pakka öllu ofan í töskur, og gera allt klárt fyrir heimferðina í fyrramálið.

Við hlökkum öll rosalega til að komast heim og koma lífinu í einhverja rútínu. Tímamismunurinn gæti þó leikið lítinn mann grátt, svo það má búast við að það taki einhvern tíma að koma öllu í samt lag heima á Langholtsveginum.

Sunday, August 26, 2012

Klæðskerinn í Kína

Þá fer dögunum okkar í austurheimi fækkandi. Nú er fyrri deginum okkar í Beijing lokið, eða um það bil að ljúka. Nóttin gekk ótrúlega vel, Kári Björn svaf á milli hjá okkur, og þó hann hafi rumskað örlítið má segja að hann hafi sofið alla nóttina. Foreldrarnir náðu að hvílast ágætlega, en þótti leitt að þurfa að vekja snáðann klukkan 7:30 til að hefja dagskrá dagsins.

Aftur virtist Kári Björn hafa litla lyst á morgunmat, en nú teljum við okkur hafa einhverja hugmynd um hvers vegna það gæti verið. Þar til í gær höfðum við gefið honum mjólk í pela kvölds og morgna. Pela af venjulegri beljumjólk áður en hann fer að sofa, og einn þegar hann vaknar. Síðustu tvo morgna höfum við hins vegar blandað kínversku mjólkurdufti í vatn fyrir stúfinn, og þar sem sú mjólk er mjög sæt slær hún líklega verulega á matarlystina þann morguninn. Þar sem það er langt í næsta almennilega stórmarkað verðum við að sætta okkur við þetta þessa tvo morgna sem eftir eru af þessari ferð.

Fyrsta stopp dagsins var í silkiverksmiðju. Þar fengum við stutta kynningu á því hvernig silki verður til, og hvernig það er unnið. Svo fengum við söluræðuna, fyrst um kosti þess að sofa með silkisæng, en þegar við gerðum sölumanninum ljóst að við ætluðum ekki að kaupa sæng fengum við að skoða föt. Við keyptum tvo galla (buxur og jakka) á Kára Björn. Þetta eru „hefðbundin“ silkiföt, eitt blátt par sem ætti að passa fljótlega og annað rautt sem hann þarf að stækka svolítið til að nota.

Foreldrarnir keyptu tvenn kínversk silkiföt á Kára Björn. Mömmunni fannst áberandi skemmtilegra að skoða en feðgunum.


Andrea skoðaði ýmsa kjóla og toppa, en þrátt fyrir að hafa mátað eitthvað fann hún ekkert sem passaði nógu vel. Þarna fundum við þó loksins einn sætan pandabjarnarbangsa fyrir Kára, klæddan í rauðan silkijakka (Kári elskar rauðan lit), og eitthvað fleira smálegt. Þegar við komum út benti Lifang, leiðsögukonan okkar, Andreu á að hún gæti látið klæðskera kíkja á hótelið til að taka mál, og hann gæti saumað kjól á sólarhring. Það var of gott til að sleppa því, enda fallegur kínverskur silkikjóll eitthvað sem ekki gefast mörg tilefni til að kaupa á lífsleiðinni. Mamman fær því frekar dýran minjagrip um ferðina til Kína.

Næst á dagskrá var að skoða Himnamusterið (Temple of Heaven). Það er í stórum almenningsgarði og eins og á öðrum túristavænum stöðum í Peking var hellingur af fólki að skoða. Þetta er mjög flottur staður, og musterið sjálft er mjög tilkomumikið. Kári náði að sofa í góðan hálftíma í kerrunni, enda orðinn syfjaður þegar nálgaðist hádegið.

 Foreldrarnir með Himnamusterið í baksýn. Það er mjög óvenjuleg bygging og ekki dæmigerð fyrir kínverskar byggingar almennt, þar sem hún er kringlótt og gerð þannig að það voru engir naglar notaðir við samsetninguna.


Lifang segir ferðalöngunum frá sögu Himnamusterisins.



Kínverskar konur eru jafn hrifnar af því að vera hvítar og hvítar konur eru af því að vera brúnar. Þess vegna eru margar þeirra með sólhlífar eða regnhlífar til að hlífa húðinni.

Síðasta stoppið í fyrirfram ákveðnu dagskránni þennan daginn var á veitingastað sem sérhæfir sig í pekingönd. Þar fengum við borð inni í horni, og borin var á borð önd, auk súrsæts svínakjöts og seint og um síðir grænmetisrétts. Kári var frekar órólegur í matartímanum, og vildi lítið borða. Hann fúlsaði meira að segja við banananum sem foreldrarnir drógu upp þegar allt annað brást, sem hefur ekki gerst hingað til.

Foreldrarnir gæddu sér á hálfkaldri önd, sem var samt fín. Hún er borin fram með vorlauk, gúrku, þunnum pönnukökum og plómusósu. Saman er þetta mjög gott, en hefði eflaust verið betra að hafa matinn aðeins heitari. Það er lúxus fyrir barnlaust fólk...

Fljótlega eftir að við komum aftur heim á hótel kom Wu klæðskeri í heimsókn og tók mál af Andreu. Kári Björn var ekkert voðalega ánægður með að það væri einhver kall að vesenast í mömmu sinni en lét sig hafa það. Á hótelinu fengum við líka tvo hluti sem Lifang hafði látið gera fyrir okkur á meðan við vorum í Jinan. Annars vegar silkiskrollu sem málaðir höfðu verið á kínverskir stafir. Þar er kínverska nafnið hans Kára Björns með stórum stöfum, fæðingardagur og staður, og málaðir pandabirnir neðst. Svo fengum við kínverskan stimpil úr jaði með nafninu Kári og kínverska nafni guttans (Mingji). Skemmtilegir minjagripir fyrir Kára Björn þegar hann verður aðeins stærri.


Herra Wu kom og tók mál af Andreu, og situr núna eflaust sveittur við að sauma rauðan silkikjól fyrir hana. Kári Björn var ekki alveg viss um hvað hann ætti að halda um þennan ókunnuga mann sem var kominn inn á herbergið hans, en Wu staldraði stutt við svo það slapp til.
 

Eftir að hafa dundað okkur á hótelherberginu í svolitla stund ákvað litla fjölskyldan að kíkja á verslunargötuna sem er hér í nágrenninu. Eftir nokkra umhugsun ákváðum við að taka kerruna ekki með, heldur bara Ergo burðarpokann. Það reyndist vera slæm hugmynd og foreldrarnir voru báðir orðnir þreyttir á að halda á Kára annaðhvort í fanginu eða í burðarpokanum. Næst verður kerran með.

Við náðum að kaupa eitthvað af því sem við áttum eftir að kaupa, svo sem bók með myndum frá Kína, aðallega þökk sé því að Kári Björn sofnaði í burðarpokanum framan á pabba sínum. Hann Kári litli hefur nefnilega almennt séð ekkert voðalega mikla þolinmæði í búðum. Ekki frekar en pabbinn.

Kári Björn hefur rosalega gaman af því að fara upp og niður stiga og fara í lyftu. Þegar fjölskyldan þurfti að fara upp á sjöttu hæð í verslunarmiðstöð, og niður aftur, komst hann í feitt, því rúllustigar sameina að segja má þessi tvö áhugamál. Svo þurfti að fara aðeins meira upp og niður með pabba meðan mamma undirbjó burðarpokann.


Kvöldmaturinn var í nokkurs konar stjörnutorgi í verslunarmiðstöð sem við römbuðum á. Kári var búinn að borða lítið í dag og við foreldrarnir farnir að hafa áhyggjur. En þegar hann fékk að velja sér núðlur þá tíndi hann þær upp í sig með bestu lyst og foreldrarnir önduðu léttar. Í þetta skipti gerði það ekki mikið til þótt það hefðu aðallega verið núðlurnar sjálfar sem rötuðu upp í munn litla mannsins en grænmetið og kjúklingurinn vakið takmarkaða hrifningu, fyrir utan brokkolíið, sem virðist renna ljúflega í snáðann.

Þegar heim á hótel var komið fór Kári Björn í bað (enda ansi skítugur eftir að hafa borðað núðlur að miklu leyti sjálfur) og fannst honum það ekki leiðinlegt. Við búumst allavega við því að verða fastagestir í sundlaugar höfuðborgarsvæðins eftir að við komum heim ef Kári Björn hefur svipaðan áhuga á að fara í sund og að fara í bað.

Við reyndum að láta snúðinn fara að sofa um áttaleitið en það gekk hálf brösuglega. Hann virtist bara ekkert vera þreyttur og þótt hann sætti sig á endanum við að þurfa að vera uppi í rúmi þá vildi hann bara syngja og leika sér. Á endanum sofnaði hann þó, en það tók hátt í klukkutíma og nokkur smærri grátköst.

Á morgun er ferðinni heitið í íslenska sendiráðið til að fá vegabréfsáritun fyrir Kára Björn, og daginn eftir verður lagt af stað heim.

 Lítill maður er kominn með vegabréf. Það verður notað á leiðinni heim, en þegar hann verður kominn með íslenskan ríkisborgararétt fellur sá kínverski úr gildi og hann fær í framhaldinu íslenskt vegabréf fyrir næsta ferðalag.



Saturday, August 25, 2012

Room service í Beijing


Nóttin gekk vel. Kári fékk að sofa á milli foreldranna. Hann vaknaði tvisvar, en sofnaði fljótt aftur. Hann vaknaði svo eftir 11 tíma svefn klukkan 7, úthvíldur og hress. Við áttum rólegan morgun á herberginu, og fórum svo í morgunmat. Eftir banana og fullan pela af mjólk var Kári Björn ekki í stuði til að borða mikið, svo foreldrarnir þurftu að skiptast á að borða (sem er orði ansi vanalegt hjá litlu fjölskyldunni).

Kári getur aleg dundað sér þegar þannig liggur á honum, sérstaklega á morgnana þegar hann fær að vakna í rólegheitunum. Þá er mjög mikilvægt að vera með allt skemmtilega dótið í seilingarfjarlægð, þar á meðal Bóbó, gráu tuskukanínuna í forgrunni.


Eftir mat fóru Brjánn og Kári Björn út á torgið á móti hótelinu í labbitúr á meðan Andrea raðaði dóti í töskurnar. Feðgarnir byrjuðu á að hlaupa um, sá stóri á eftir þeim minni, en svo kom þreyta yfir litla gaurinn svo hann fékkst til að sitja í kerrunni sinni. Þar sofnaði hann meðan pabbinn keyrði langan hring á torginu. Þegar Andrea var búin að pakka sameinaðist fjölskyldan aftur á hótelinu, þar sem Kári fékk að borða og gaurast þar til tími var kominn til að tékka sig út af hótelinu og leggja af stað í fyrstu flugferð litla mannsins.

Við vorum komin frekar snemma út á flugvöll, enda gátum við ekki beðið lengur með að tékka okkur út af hótelinu. Á flugvellinum var Kári ekki par sáttur við hversu langan tíma tók að komast í gegnum öryggistékkið, og lét viðstadda heyra það þegar hann fékk ekki að hlaupa um á þessu svæði. Foreldrarnir skiptu liði á flugvellinum eftir að Kári Björn fékk smá í svanginn, annað fór og fékk sér að borða á meðan hitt elti lítinn gaur, og svo var skipt. Svo var kominn tími á að fara í flugvélina. Við ætlum að geyma alla bording passa sem Kári Björn fær í þessari ferð, og erum að spá í að byrja að safna öllum sem hann fær meðan við erum með í för. Við vorum að ræða það um daginn hvað við hefðum átt glæsilegt safn ef við hefðum byrjað snemma, en nú er það orðið of seint fyrir okkur að byrja, en kjörinn tími fyrir nýjasta fjölskyldumeðliminn.

Kári grallarast á flugvellinum í Jinan. Þeir sem eru með súpersjón eða stækkunargler geta lesið á borðann þar sem stendur að þetta sé einmitt á þeim flugvelli. Eða bara tekið okkar orð fyrir því.


Kári var ágætur í fluginu til Beijing, enda stutt flug (rétt um klukkutími). Hann tók tvisvar smá kast þegar hann varð að sitja kyrr í sætinu sínu í flugtaki og lendingu, en það var ekkert sem ágengur lundi (bangsi frá Íslandi) gat ekki bjargað með trúðslátum og hrekkjabrögðum. Á flugvellinum hittum við Lifang, leiðsögukonuna okkar í Beijing, og það urðu fagnaðarfundir. Við keyrðum svo á hótelið, og vorum komin inn á herbergið klukkan rúmlega sjö um kvöldið. Enn og aftur dagur þar sem rútína litla mannsins raskast en það er ekkert við því að gera fyrr en við komumst heim á Langholtsveginn.

Kári Björn var rólegur í fyrsta fluginu. Við fengum eina litla vatnsflösku hvert, og hann vildi að sjálfsögðu fá þær allar til sín til að leika með, og af og til súpa úr.


Foreldri og afkvæmi voru orðin frekar hungruð á þessum tímapunkti, og ákváðu að panta room service í fyrsta skipti á ævinni. Við höfum aldrei séð tilganginn þegar við erum tvö á ferð, en núna sparaði þetta vesen og tíma. Korteri seinna kom ilmandi bólónes-pasta og pasta með kjúklingi. Kári Björn var ágætlega hrifinn af kjúklingapastanu, en mun hrifnari af spaghettíi pabbans. Hann gæddi sér á pastaormum þar til hann var búinn að fá nóg, og fór þá að gaurast.

Þegar þessu var lokið fóru foreldrarnir að reyna að koma litla manninum í ró, en það er hægara sagt en gert þegar hann er á nýjum stað sem þarf að rannsaka. Það gerði hann eins og hans er von og vísa, á sprellanum. Þegar kom að því að fara að sofa stóð grátkastið ótrúlega stutt í þetta skiptið, það var ekki eins og himinn og jörð væru að farast, heldur meira eins og hann væri að lýsa yfir einskærri óánægju með að þurfa að fara að sofa. Þetta kom foreldrunum skemmtilega á óvart enda vorum við búin að búa okkur undir um það bil hálftíma af sárum gráti. Það er erfitt fyrir okkur að þurfa að láta hann fara að sofa svona, að þröngva hann til að vera kyrran á milli okkar uppi í rúmi og gráta sig í svefn, en þetta er eina leiðin sem virðist virka. Kári litli þarf jú sinn svefn, enda skoðunarferðir eða skrifstofuheimsóknir á dagskrá á hverjum degi.

Á morgun ætlum við að fara að sjá Heaven Temple sem er garður hér í Beijing með hofum. Lifang leiðsögukona sagði okkur að þar væri oft mikið af heimamönnum að spila, sinna leikfimi eða bara njóta þess að vera í garðinum.

Friday, August 24, 2012

Kínverska bjúrókrasían kvödd


Í dag kláruðum við síðustu pappírsvinnuna sem við þurfum að sinna hér í Jinan. Kári Björn er formlega orðinn okkar, og við erum með stimpluð gögn og vegabréf fyrir kútinn því til staðfestingar. Nú er það eina sem eftir er að gera hér í Kína áður en við förum heim að fá vegabréfsáritun svo Kári verði ekki stoppaður við komuna í Leifsstöð. Það gerum við í íslenska sendiráðinu í Beijing áður en við höldum heim á leið. Ég reikna ekki með að það verði sérstakt vandamál, enda starfsfólkið þar mjög elskulegt þegar við hittum það síðast.

Kári svaf frekar illa í nótt, vakti í næstum tvo klukkutíma, foreldrum sínum til mikillar armæðu. Eftir mikið vesen sofnaði hann uppi í rúmi hjá okkur, og svaf svo lengi að það þurfti að vekja hann klukkan 7:30 til að fara að sinna verkefnum dagsins.

Morgunmaturinn gekk vel í þetta skiptið. Bananinn var opnaður á réttum tíma, og Kári Björn fékk kínverskt brauð með osti sem hann var mjög hrifinn af. Foreldrarnir borðuðu eftir bestu getu, og svo var haldið af stað í síðasta skipti til að sinna kínverskri bjúrókrasíu.

Fyrst var farið til að sækja vegabréfið fyrir Kára. Það gekk hratt og vel, og á meðan pabbinn sinnti því verkefni tók mamman að sér að elta litla manninn fram og til baka um skrifstofuna. Eftir það fórum við í notarius publicus að sækja skjöl. Notarius publicus er nokkurskonar staðfesting stjórnvalda á að allir pappírar sem við höfum fengið hingað til séu réttir, gefnir út af þar til bærum yfirvöldum og löglegir á allan hátt. Við fengum allskonar skjöl í fjórriti sem Brjánn fór samviskusamlega yfir, eitt eintak af hverju skjali varð eftir en restina fengum við með okkur heim.

 Svona eyddi mamman tímanum á skrifstofunum í dag á meðan pabbinn gekk frá síðustu pappírunum frá kínversku bjúrókrasíunni.


Þegar þessari síðustu pappírsvinnu var lokið héldum við á síðustu tvo staðina í Jinan sem okkur langaði að heimsækja. Fyrst fórum við að skoða byggingu sem hýsti barnaheimilið sem Kári Björn ólst upp á þar til um mitt ár 2011 þegar heimilið flutti. Í dag er elliheimili í húsinu, svo við skoðuðum það bara utanfrá, og Kári fékk að grallarast á lóðinni. Það var í raun lítið að sjá, en gott að eiga mynd af húsinu í safnið.

Í þessu húsi eyddi Kári Björn fyrsta ári ævinnar, og rétt rúmlega það. Þar er í dag rekið elliheimili.


Í bíltúrnum á næsta áfangastað var Kári að dunda sér í bílnum, hann er alltaf mjög góður í bíl ef hann hefur eitthvað dót og getur horft út um gluggann af og til. Núna fór hann hins vegar að syngja, í fyrsta skipti síðan við fengum hann. Samkvæmt leiðsögumanninum okkar var ekki hægt að þekkja lagið út frá þessum nokkru tónum sem Kári endurtók, en þetta var greinilega lag sem hann var að söngla. Leiðsögumaðurinn prófaði að syngja þrjár barnagælur en Kári tók ekki undir. Við báðum leiðsögumanninn um að skrifa fyrir okkur texta sem við getum sýnt í búð sem selur geisladiska, svo við getum beðið um disk eða diska með kínverskum barnagælum. Mögulega gæti það hjálpað stubbnum að sofna, verst við erum ekki með geisladiskadrif á ferðatölvunni okkar svo það verður að bíða heimkomunnar.


Kári er mjög duglegur að dunda sér í bíl ef hann hefur "pottinn" og skeiðarnar sínar. Þessar eru einnota af stjörnutorginu við hótelið okkar. Við eigum fleiri til að skipta þessum út þegar þær verða of nagaðar, og eigum líka tvær ónotaðar til minningar.


Næst fórum við inn í hverfið þar sem Kári Björn var skilinn eftir 7. apríl 2010, þá þriggja daga gamall (að því er talið). Við stiga í blokkarbyggingu í hverfi nærri miðbænum fannst snáðinn seinnipart dags, vafinn inn í teppi. Á leiðinni í gegnum þröngar göturnar var Kári orðinn mjög þreyttur, enda að koma tími á miðdegislúrinn, svo hann var farinn að sjúga á sér puttana, eins og hann hefur vanist á að gera fyrir svefninn. Það leit bílstjórinn okkar, elskuleg miðaldra kona sem hefur rosalega gaman af því að kjassa Kára, á sem merki um að hann væri að farast úr hungri. 

 Kári treður löngutöng og baugfingri vinstri handar upp í sig þegar hann er að sofna. Hann togar líka ermina þannig að hann geti strokið hana með þumalfingrinum, og setur allan handlegginn inn í bolinn ef hann er í stuttermabol. Hér er hann þreyttur í bílnum. Athugið að dollunni og skeiðunum tveimur er ekki sleppt.


Þegar þarna var komið var klukkan farin að nálgast hádegið, en þar sem við ætluðum lítið að stoppa þarna áður en við kæmum á hótelið, sem er rétt hjá þessum stað, var planið að bíða með að borða þar til við kæmum á hótelið. Bílstjórinn ákvað hins vegar að skoppa út úr bílnum á meðan leiðsögumaðurinn spurði til vegar, og kaupa kjúklingalegg og læri af götusala, og færa Kára Birni í þunnum poka. Þetta var mjög elskulegt af henni, en ekki beint heppilegt að lítill kútur væri að bíta í kjúkling í fanginu á pabba sínum í bíl á ferð, sérstaklega þar sem lærið var í meira lagi fitugt, og við að komast á leiðarenda.

Bílstjórinn stökk út og keypti kjúkling fyrir Kára, sem var vel meint en ekki heppilegt, þar sem þá gátu Kári og Brjánn ekki skoðað staðinn þar sem Kári fannst.


Þegar Kári Björn er einu sinni búinn að klófesta gómsætan mat sleppir hann honum ekki, svo Brjánn varð að sitja með hann og hjálpa honum að borða á meðan Andrea skoðaði staðinn þar sem hann fannst. Hún tók slatta af myndum og Brjánn varð að gera sér að góðu að skoða staðinn þannig.


 Við þessa blokkarbyggingu fannst Kári Björn þriggja daga gamall þann 7. apríl 2010.

 Nánar til tekið var hann við tröppurnar fyrir innan þessar dyr.


Þegar við komum aftur á hótelið keyptum við aftur brauð í bakaríinu á hótelinu og fórum upp á herbergi. Kári fékk brauð með osti og einhverju öðru ofaná (við erum lítið að spá í að velja rétt í fæðuhringnum akkúrat núna, nú gildir reglan að koma fæðu í barnið, þó það vanti aðeins upp á ákveðna fæðuflokka, hitt bíður heimkomunnar) og fór svo að gaurast. Meltingin virðist í fínu lagi hjá Kára svo við höfum ekki of miklar áhyggjur.

Nú er orðið voða sport að gefa foreldrunum mat, venjulegan jafnt sem ímyndaðan. Kári sýndi þó ákveðna takta í dag sem gætu tengst því sem hann hefur upplifað á barnaheimilinu. Hann var að gefa Andreu ímyndaðan mat með annarri, en með hinni hélt hann um nefið á Andreu. Þetta gæti tengst því þegar börnin á barnaheimilinu vildu ekki borða, og fóstrurnar héldu fyrir nefið á þeim til að þau þyrftu að opna munninn. Eða þannig túlkum við þetta, þótt við vitum ekkert fyrir víst, en þetta eru ekki beint aðferðir sem við ætlum að beita, svo mikið er víst.

Talandi um mat þá bönkuðu hótelstarfsmenn upp á þegar við vorum heima að leika seinnipartinn, til þess eins að færa okkur meiri banana. Kári sá bananana. Augljóslega borðaði Kári einn þeirra. Við reiknum með að hótelstarfsmennirnir séu á mála hjá bananaframleiðendum við að búa til kúnnahóp framtíðarinnar. Fyrsti bananinn er ókeypis...

Þar sem dagskráin hjá Kára er í fullkominni upplausn þessa dagana, og hann náði enn og aftur varla neitt að sofna yfir daginn, fórum við snemma út af hótelherberginu til að fá okkur heitan mat. Við fórum á „stjörnutorgið“ á torginu hinu megin við götuna. Þar fengum við kjúklingaleggi og læri, brokkolí með hvítlauk og hrísgrjón fyrir alla fjölskylduna. Kári borðaði slatta, en fór svo að kanna staðinn. Foreldrarnir skiptust á að elta kútinn og borða hálf-kaldan mat. Vont en það venst.

Eftir matinn röltum við um torgið. Kári vildi ekki vera í kerrunni, heldur hafði augljóslega meiri áhuga á að hlaupa um og skoða. Hann var samt þreyttur eftir daginn, og þá þarf mjög lítið mótlæti til að úr verði drama. Í þetta skiptið vildu foreldrarnir ekki fara niður langar tröppur sem Kára fannst spennandi, og þá tók hann grátkast sem entist langleiðina upp á hótel. Á endanum var hann samt svo syfjaður að hann kúrði sig í hálsakotið á pabba sínum. Við vorum svona í og með að vona að það þýddi að hann vildi fara að sofa þegar hann kæmi upp á herbergi, en af fenginni reynslu vissum við að þar myndi hann hressa sig við og fara að gaurast eithvað, sem varð einmitt raunin.

Kári Björn hefur mjög gaman af því að rífa sig úr fötunum á herberginu og hlaupa um berrassaður og vesenast. Sem er auðvitað ótrúlega sætt. Ótrúlegt en satt, miðað við önnur börn sem við höfum umgengist, finnst honum mjög gott og gaman að bursta tennur. Sérstaklega ef hægt er að sameina það að leika sér með tannbusta allrar fjölskyldunnar og sulla. Svo fær hann smá tannkrem á bursta, röltir á sprellanum um íbúðina, smakkar af og til og segir „aahhhhhhh“ og brosir til okkar. Frekar mikil dúlla þessi ungi maður.

Um kvöldið ákvað Kári svo að þessir tjáskiptaörðugleikar sem hrjáð hafa samband hans við foreldrana gengju ekki lengur. Hann fór að kenna mömmu sinni að tala. Hann sagði eitthvað sem hljómaði eins og „jæja“ og þegar mamman endurtók það fékk hún þykjustumat. Pabbi fékk þjálfun líka. Getur verið að tveggja ára kínverskum börnum sé kennt um hundana hans Pavlovs? 

 Kári gaur pósar í fínu samfellunni sinni. Hann veit fátt skemmtilegra en að fá ný föt, sem er kannski ekki undarlegt fyrir barn sem hefur hingað til átt frekar lítið úrval á barnaheimilinu.


Kvöldið endaði á frekar erfiðum nótum fyrir alla fjölskylduna. Kári var orðinn úrvinda, en vildi ekki fara að sofa. Hann fór á rúntinn í kerrunni með mömmu sinni, en vildi það ekki lengi. Að lokum var hann settur í hjónarúmið með foreldri beggja vegna. Þar grét greyið litla þar til hann leið út af, örmagna eftir daginn og grátkastið. Þetta eru ósköp eðlileg viðbrögð hjá litlum strák sem lendir í heldur óvæntum aðstæðum með nýju fólki sem talar furðulegt tungumál sem hann skilur ekki. En foreldrarnir voru næstum jafn örmagna og Kári Björn þegar hann loksins sofnaði þetta kvöldið.

Á morgun þurfum við að pakka niður í töskur og fljúgum til Beijing seinnipartinn. Það verður gott að komast aftur til Beijing, þar sem fleiri tala ensku, og eru vanari furðulegum ferðamönnum. Svo verður líka gaman að sýna Lifang, leiðsögukonunni okkar þar, Kára litla.

Við erum farin að hlakka ótrúlega til að fara heim. Það er nefnilega ekki nóg að við foreldrarnir séum að kynnast syninum (og öfugt) heldur erum við á hótelherbergi í landi þar sem við skiljum ekki tungumálið. Maturinn er oftast öðruvísi en við eigum að venjast og þótt við séum orðin fín í að borða með prjónum þá er ótrúlegur léttir þá sjaldan sem við fáum hnífapör til að borða með. Við hlökkum því til að komast í kunnulegt umhverfi fyrir okkur foreldrana og búa til rútínu fyrir snúðinn okkar. Gefa honum að borða mat sem við vitum hvað er og gera það sem börnum þykir skemmtilegt. Það er allavega líklegt að öllum börnum þætti skemmtilegra að fara út á róló heldur en að sitja í bíl á hverjum degi og heimsækja skrifstofur. En þótt það verði auðveldara fyrir okkur að vera komin heim þá gæti það orðið erfitt fyrir Kára Björn sem þá hættir að heyra sitt tungumál talað út um allt.

Thursday, August 23, 2012

Mamma!!!


Í dag fengum við frábærar fréttir. Þær komu í gegnum Google frænda, sem fræddi okkur á því að það væri í rauninni ómögulegt fyrir tveggja ára patta að borða of mikið af banönum. Fullvaxin manneskja getur borðað 12 banana eða meira án þess að það hafi nokkur neikvæð áhrif, svo það að okkar gaur hafi borðað þrjá það sem af er degi er ekki ávísun á harðlífi, undanrennu eða eitthvað þaðan af verra.

Dagurinn byrjaði snemma. Eða kvöldið endaði seint. Litli maðurinn fór að sofa milli átta og hálf níu um kvöldið, en vaknaði klukkan 2:30 um nóttina. Pabbinn fór fram úr og reyndi að hugga litla manninn, en hann vildi ekki leggjast aftur í rúmið sitt. Á endanum kom hann upp í hjá mömmu og pabba, þar sem hann vesenaðist aðeins áður en hann sofnaði. Með hausinn til fóta, bara til að rugla aðeins í liðinu. Afkvæmi og foreldrar sofnuðu sem betur fer aftur, og sváfu til klukkan 7 um morguninn.

Morgunmaturinn gekk ekki jafn vel og daginn áður. Kári Björn fékk banana í kerruna á leiðinni í morgunverðinn, en fékk að opna hann heldur snemma, og var búinn þegar við komum. Þá átti eftir að finna borð (þau voru öll upptekin) og ná í mat. Kári borðaði smá brauð og vatnsmelónu á meðan Brjánn gúffaði í sig morgunmat, en tók svo grátkast á meðan mamman borðaði. Pabbinn gekk um gólf með hágrátandi snáðann, en að lokum róaðist hann, og sættist á að setjast í kerruna og keyra hratt um gangana.

Eftir morgunmat fórum við í dýragarðinn í Jinan. Hann þykir með þeim betri í Kína, og var þannig séð ágætur. Fyrstu dýrin sem við hittum var hópur af öpum sem skemmtu sér við að stökkva úr klettum í vatn. Kára þótti það áhugaverð hegðun, enda sjálfur alger sullari. Svo fórum við um dýragarðinn og sáum birni, villisvín, dádýr og geitur. Líka fíla, gíraffa og að lokum tígrísdýr. Frægur pandabjörn sem átti heima í garðinum drapst því miður nýlega, svo við sáum enga pandabirni. Við verðum bara að sjá þá næst þegar við komum til Kína.

Kára Birni fannst gaman að skoða dýrin í dýragarðinum, sérstaklega apana sem hoppuðu til og frá og sulluðu í vatni.


Kári var mjög áhugasamur um dýrin, sérstaklega stökkvandi apana, sem gladdi dýraóðu foreldra hans verulega. Þau sjá fram á góðar stundir með guttanum að skoða dýrin í húsdýragarðinum, og reyndar öll önnur dýr sem þau geta fundið. Nema kannski litla hunda, fósturmamma Kára sagði að hann væri hræddur við þá, hvað svo sem er til í því.

Ergo-pokinn kom sér vel í dýragarðinum.

 Auðvitð þurfti samt að rannsaka svæðið á fæti.


Kári vildi lengst af vera í burðarpokanum sínum framan á Andreu. Svo fór hann að syfja, svo hann endaði sofandi í kerrunni og þá var kominn tími á að koma sér heim. Kári var orðinn svangur þegar hann kom heim á hótelið, en svo vel vildi til að hann labbaði fram hjá nokkurskonar bakaríi í andyrinu, þar sem hann fékk fínt brauð með innbakaðri lítilli pylsu. Það borðaði hann upp til agna þegar hann kom upp á hótelherbergi, þó hann hafi ákveðið að sleppa pylsunni. Svo ákvað hann að hann ætlaði að fá einn banana líka, og þegar þessi ungi maður ákveður að hann ætli að borða banana mun hann borða banana. Og þarna ákvað hann að fá sér svoleiðis.

Foreldrarnir borðuðu heldur fáttæklegan hádegismat í þetta skiptið, sitt hvort eplið (Kári vildi smakka einn bita af hvoru, honum fannst eplið gott, en var orðinn saddur) og eina orkustöng hvort. Kári fékk svo aðeins meira epli, og sýndi að hann kunni að bíta sjálfur í eplið hennar mömmu.

Eftir þennan fína hádegisverð hélt litla fjölskyldan af stað í nokkrar búðir. Stubburinn reyndist heldur minni en áætlanir gerðu ráð fyrir, svo sum fötin sem voru með í för voru heldur lítil og því þörf á að bæta nokkrum í safnið. Hann er svo grannur að buxur í 86 virðast vera málið, en bolir í 92. Við enduðum í Wal-Mart þar sem Andrea fann tvenn náttföt á meðan Brjánn og Kári röltu um og skoðuðu bolta og fleira.

Rútínan hjá litla manninum var verulega farin úr skorðum þar sem hann vildi ekki leggja sig í hádeginu. Á endanum sofnaði hann aðeins í kerrunni sinni. Foreldrarnir notuðu tækifærið og litu inn á veitingastaðinn Herra Pizzu. Þar gæddu þau sér á dýrindis flatbökum og ræddu málin eins og siðmenntað fólk á meðan litli maðurinn svaf eins og steinn í kerrunni. Þó kínverskur matur sem við höfum borðað hér hafi í flestum tilvikum verið mjög góður er samt alltaf gott að borða eitthvað „venjulegt“ inn á milli.

Við náðum að borða okkur vel södd og ræða málin í rólegheitunum áður en Kári rumskaði. Hann vaknaði eitthvað illa, mögulega af því hann var í ókunnum aðstæðum, eða af því hann hafði dreymt illa. Andrea huggaði kútinn á meðan Brjánn borgaði fyrir matinn, en svo þurfti að halda á stubbnum heim á hótel. Sem betur fer var það ekki svo langt, þó foreldrarnir hafi aðeins látið kínverska umferðar(ó)menningu fara í taugarnar á sér á leiðinni. 

 Foreldrarnir fengu fágætt tækifæri til að borða saman, á sama tíma, meðan maturinn var ennþá heitur á meðan Kári Björn svaf í kerrunni.


Góðu hreingerningarkonurnar höfðu lagað til í herberginu þegar við komum aftur. Svo höfðu þær líka skilið eftir tvo banana í skál á lága borðinu beint á móti innganginum. Ekki uppi á hærra borðinu þar sem foreldrarnir geyma allan mat. Takk fyrir það. Flestir sem hafa lesið þetta blogg með einhverri meðvitund geta giskað á hvað gerðist næst.

Þegar Kári var búinn að borða bananann tók við leikstund á sprellanum (sem er ótrúlega vinsælt), sem endaði í baðferð með tilheyrandi sulli. Eftir baðið fór Kári að dunda sér og leika með öðru eða báðum foreldrum. Undir það síðasta með mömmunni meðan pabbinn skrifaði blogg. Eins gott að byrja snemma að blogga svo foreldrarnir þurfi ekki að fara of seint að sofa!

Kári hefur rosalega gaman af því að leika sér með límmiða. Við keyptum tvö límmiðaspjöld til að leika með, þar sem hægt er að nota þá til að líma á andlitin á foreldrum/barni til að hjálpa til við tengslamyndun. Þar sem hún virðist ekki vera sérstakt vandamál höfðu límmiðarnir fengið að bíða. Þar til Kári fór að kroppa verðmiða af einhverju dóti, og líma með mikilli vandvirkni á handabakið sitt. Síðan hafa foreldrarnir keypt nokkur límmiðaspjöld og guttinn dundað sér við að líma. Aðallega vill hann líma á eigin handarbök, oft mörg lög af límmiðum. Stundum er hann til í að líma á foreldrana líka, til dæmis á nef og enni. Í kvöld náði hann að kroppa verðmiða af einhverju dóti, en í staðinn fyrir að líma á sig fékk mamman að vera fín með límmiðann.

Við vorum ekki viss hvort hann væri svangur svo hann fékk nokkra cheerios-hringi í bolla til að maula. Hann var greinilega ekki svangur, en fann það upp hjá sjálfum sér að mata foreldrana á hringjunum. Það var ótrúlega gaman að fá mat frá litla gaurnum, sérstaklega þegar hann ákvað að deila nokkrum hringjum með Brjáni með því að bíta fyrst helminginn fyrir sjálfan sig og gefa pabba svo hinn helminginn. Þetta er mjög jákvætt merki, að hann vilji mata okkur, þar sem venjulega erum við í þeirri stöðu að mata hann.

 Kári litli í fanginu á pabba.


Þegar drengurinn var að vesenast um kvöldið kallaði hann í fyrsta skipti á mömmu sína (mamma!!!!) til að fá hjálp, og svo aftur stuttu seinna. Hann veit hverjir „mama“ og „baba“ eru, honum var kennt það á barnaheimilinu og getur bent á hver það eru þegar hann er spurður. En þarna notaði hann orðið í fyrsta skipti. Mamman (og pabbinn auðvitað líka) var ekkert smá ánægð og stolt af litla gaurnum.

Dagurinn endaði sem sagt á rólegu nótunum. Kári hefur aldrei neitt á móti því að fara í náttfötin (hann þráast frekar við að fara úr þeim á morgnana), og er orðinn mjög spenntur fyrir því að tannbursta sig. Hann virðist samt eiga frekar erfitt með að fara að sofa. Það er eins og hann þekki það bara að vera settur í rúmið með hinum krökkunum á ákveðnum tíma, og hann vill svo sannarlega ekki þannig meðferð núna. Hann vælir ef hann er settur í rúmið sitt, og vill ekki kúra hjá okkur. Stundum virkar að keyra hann hring eftir hring í kerrunni sinni, en það gekk ekki þetta kvöldið. Á endanum sofnaði hann í hjónarúminu hjá mömmu sinni.

Lífið er ekki alltaf auðvelt þegar maður er tveggja ára, og enginn skilur hvað maður vill. Þá þarf að gráta svolítið.


Þreyttu foreldrarnir ætla að nota kvöldið til að sturta sig, setja inn blogg og myndir, laga aðeins til, og já, hvíla sig aðeins nú þegar smá tækifæri gefst til.

Á morgun fáum við svo kínverskt vegabréf fyrir Kára, og skoðum staðinn þar sem einhver góðhjartaður borgari fann þennan litla snáða fyrir rúmum tveimur árum síðan. Mögulega kíkjum við svo á bygginguna þar sem barnaheimilið var fram á mitt ár 2011, þó ekki sé til annars en að eiga mynd í safnið.

Þreyttir foreldrar þakka kærlega hlýjan hug og góðar kveðjur, og hlakka til að sýna Kára Björn þegar heim er komið, þó það verði að gerast hægt og í skrefum þegar Kári er tilbúinn.