Monday, December 3, 2012

Nóvember liðinn

Nóvember er búinn að líða frekar hratt. Ég (Andrea) er búin að vera í vinnunni og Brjánn heima með Kára. Fyrst um sinn var Kári Björn ekkert voðalega sáttur við að mamma sín væri í vinnunni allan daginn, en eftir nokkra daga var hann orðinn vanur þessu og sætti sig sæmilega við þetta fyrirkomulag. Fagnaði mér samt alltaf rosalega þegar ég kom heim eftir vinnu :)
Þeir feðgar voru duglegir að dunda sér við ýmislegt á meðan ég var í vinnunni, fóru oft í sund og gerðu ýmsar bökunartilraunir.

Kári Björn að máta skyrtu af pabba sínum.

Við fórum líka í þriðja barnaafmælið í mánuðinum, Kári Björn segir núna alltaf "afmæli" þegar hann sér logandi kerti :)

Eina helgina fórum við eina nótt í sumarbústað tengdó. Við vorum ekki viss um hvernig Kári myndi taka því að sofa annars staðar en heima, en það reyndist ekki vera neitt vandamál. Hann skemmti sér vel í bústaðnum, í boltaleik með foreldrunum og að sjálfsögðu fór pottormurinn í pottinn.



Kári Björn talar alltaf meira og meira, stundum er hann að reyna að segja manni eitthvað sem honum finnst greinilega mjög merkilegt, en hann er því miður ekki með orðaforða í svoleiðis frásagnir þannig að hann verður stundum svoldið frústreraður þegar við skiljum hann ekki.
Síðustu daga er hann búinn að vera mjög upptekin af stór/lítill og bendir á hluti og hrópar "stór" og svo á minni hlut og segir með venjulegri rödd "lítill". Orðin hans hljóma reyndar ekki alltaf eins og þau eiga að hljóma, en við skiljum hann svona oftast. Hann skilur næstum allt sem við segjum við hann.

Núna erum við Brjánn búin að skipta um hlutverk, ég er heima með Kára á meðan Brjánn fer í vinnuna. Það er mjög fínt að vera heima í desember og kynna Kára Björn fyrir öllu jólastússinu. Við fórum til dæmis í dag og keyptum ljósaseríu sem við settum í gluggann hans. Svo næstu daga eigum við eftir að hlusta á jólalög, baka smákökur og skoða jólaskraut.

Í gær fórum við Kári að hitta vinkonur og syni þeirra og bökuðum og skreyttum piparkökur. Kári Björn skemmti sér mjög vel, sérstaklega við að borða kökuskraut. Var svo mjög stoltur af afrakstrinum, en finnst piparkökurnar reyndar ekkert góðar, en sleikir af þeim glassúrinn og kökuskrautið.


Annars heldur Kári Björn áfram að uppgötva eitthvað nýtt, bæta við orðaforðann og gaurast. Finnst rosalega gaman í alls konar eltingarleikjum, að vera úti á róló en líka að kubba, klippa pappír, fara í bað og láta tannbursta sig. Þessa dagana er hann endalaust að segja að eitthvað sé fyrir stóra krakka (hjá honum hljómar það reyndar bara einfalt: "kakka") þegar hann vill ekki eitthvað, hann má ekki gera/fá eitthvað eða þegar eitthvað er of stórt fyrir hann.

Við gerðum tilraun til að taka fjölskyldumynd um daginn, það gekk ekki alveg nógu vel, það var alltaf einhver skrýtinn á myndinni.


4 comments:

  1. Flottar myndir og Kári Björn alveg með þetta á síðustu myndinni en foreldrarnir minna ;)

    ReplyDelete
  2. Alltaf gaman að lesa :) Njótið ykkar við að jólast í desember :) Knús frá Köben.

    ReplyDelete
  3. ha ha ha ég er búin að hlægja svo mikið af síðustu myndinni.... hún er alveg geggjuð:-)

    ReplyDelete
  4. Kári er æði, algjör kökugerðarmaður.
    hlakka til að sjá hann aftur.
    annalú

    ReplyDelete