Við höldum áfram að fikra okkur áfram með ýmislegt til að prófa, höfum fengið nokkrar heimsóknir og það hefur gengið vel þótt Kári Björn sé stundum svoldið óöruggur með sig ef það eru börn að skoða hans dót. En það er allavega orðið þannig að ef einhver vill koma í heimsókn til okkar þá er það velkomið.
Kári er búinn að prófa að fara tvisvar í barnaafmæli og í bæði skiptin gekk það bara mjög vel, hann borðaði afmæliskökuna með bestu lyst, lék sér með dót án þess að eiga í of miklum útistöðum við aðra krakka og var mjög hrifinn af hugmyndinni um afmælissöng og það að blása á kerti. Á leiðinni heim í bílnum í bæði skiptin vildi hann láta syngja afmælissönginn nokkrum sinnum og alltaf þegar hann sér myndir af afmælisköku með kertum (í bókunum sínum) blæs hann í áttina að myndinni.
Þar sem Kári Björn er afskaplega hrifinn af því að fara í bað þá áttum við alveg von á að hann væri hrifinn af sundi og það reyndist vera rétt. Við erum búin að fara tvisvar í sund við mikla hrifningu yngsta fjölskyldumeðlimarins. Hann prófaði rennibrautir og fór á kaf og fannst þetta allt voða skemmtilegt.
Glaður í baði.
Í dag fór Kári svo í sína fyrstu klippingu. Fyrst lét pabbinn klippa sig og mæðginin fylgdust með og sáu að þetta var nú ekkert hættulegt. Kári Björn var svo bara duglegur, sat nokkurn veginn kyrr og var ekkert ósáttur við að láta klippa sig. Vildi líka láta aðeins blása á sér hárið (mjög mikilvægt) og minntist svo nokkrum sinnum í dag á að hann hefði farið í klippingu og væri nú rosa fínn (benti á hárið á sér og sagði vááá).
Orðaforðinn hjá Kára eykst smátt og smátt, það sem hann segir er kannski ekki alltaf mjög skiljanlegt, en honum fer fram (í dag lærði hann t.d. nýtt orð, snjór eða "njó"). Hann er líka greinilega að safna í sarpinn því að síðustu daga er hann endalaust að benda á hluti og lætur okkur segja hvað hlutirnir heita. Það getur orðið svoldið þreytandi að vera endalaust að segja diskur, gaffall, gólf, mamma, ljós, og svo framvegis, í miðri máltíð, en við foreldrarnir hlýðum samviskusamlega þegar Kári fer að benda, enda viljum við að sjálfsögðu hjálpa honum að læra.
Kári er farinn að segja brandara, hann er svona (sagt einhvern tímann yfir daginn): Góða nótt - neiiii - góðan dag (og svo er hlegið/brosað). Hans útgáfa hljómar reyndar einhvern veginn svona: "nú nú nú - neiiii - dag".
Kári Björn er búinn að stækka heilmikið síðan við fengum hann, hann fór til læknis í vikunni og var hæðar- og þyngdarmældur. Þegar við fengum hann var hann 88 cm og 11,7 kg. Húna er hann 90 cm og 12,4 kg. Það var líka nokkuð augljóst þegar við sáum hann borða að hann myndi líklegast stækka hratt til að byrja með. Hann heldur áfram að borða mikið, en okkur finnst mögulega aðeins verið farið að hægjast á hjá honum (ekki mikið samt).
Á morgun er mamman að fara að vinna og þaðan í frá munu Andrea og Brjánn skiptast á að vinna og vera heima hjá Kára, mánuð eða tvo í senn. Það er skrýtið að þessir tveir mánuðir sem við erum búin að hafa öll saman eru búnir og það á eftir að vera skrýtið fyrir mömmuna að fara í vinnuna og feðgana að vera bara tveir saman. Kári Björn er búinn að heimsækja mömmu vinnu nokkrum sinnum og mun væntanlega kíkja í heimsókn á morgun líka. Þannig mun hann vonandi átta sig á að mamma er ekkert horfin heldur kemur aftur heim í lok hvers dags. Vonandi eiga næstu dagar og vikur eftir að ganga vel hjá okkur fjölskyldunni.
Ólíkt því sem Kári Björn heldur miðað við hans reynslu af vinnunni hjá mömmu mun mamman ekki hlusta á mörgæsalagið á youtube og borða matarkex allan daginn í vinnunni. :)


O guð! Kári Björn er svo flottur og frábær afmælisgestur. Hann er svo flottur strákur. knús og kossar Marín
ReplyDeleteFlottastur í klippingunni :)
ReplyDeleteÉg hló sko upphátt að brandaranum hans :)
ReplyDeleteSjáumst,
Anna
ps. Mér líður alltaf eins og ég sé semi-tölvuforrit þegar ég skrifa komment hjá ykkur. Ég á svo erfitt með að lesa kóðann til þess að fá commentið birt.
ReplyDeleteAnnaLú
Alltaf gaman að heyra fréttar frá svona kátum og skemmtilegum strák. Knús í hús, Gunna, Palli og Tómas.
ReplyDeleteHey ég var ekki búin að sjá þessa færslu, ekki slæmt að fá tvær færslur í einu af flotta frænda :)
ReplyDelete