Það er kominn ferðahugur í okkur. Það er að
segja foreldrana, Kári Björn hefur auðvitað ekki hugmynd um að á morgun fari
hann heim og þessum þvælingi með fólkinu hans sé að ljúka.
Í morgun vöknuðum við í rólegheitunum þar sem
við þurftum ekki að fara af hótelinu fyrr en klukkan tíu. Leið okkar lá í
sendiráð Íslands í Kína, þar sem við fengum snögga afgreiðslu á vegabréfsáritun
fyrir Kára Björn til Íslands. Reyndar fengum við áritun fyrir Fu Mingji, þar
sem það er nafnið á kínverska vegabréfinu hans. Kári Björn verður ekki til hvað
íslensk stjórnvöld áhrærir fyrr en við komum heim.
Kári Björn var stilltur piltur í sendiráðinu,
og þegar við fórum gáfu sendiráðsstarfsmennirnir honum fína bangsapöndu í gulum
silkijakka. Sem er alveg æðislega fallegt af þeim, og pandan ætti að falla vel
að smekk litla mannsins þar sem hún er alveg eins og pandan í silkijakkanum sem
hann valdi sjálfur í gær, fyrir utan að sú er auðvitað í hárauðum silkijakka. Fáránleg
tilviljun að þetta séu eins pöndur, en pandan sem Kári Björn valdi sér er þá
bara komin með bróður.
Kári Björn gæddi sér á Tomma og Jenna kexi í íslenska sendiráðinu í Beijing á meðan foreldrarnir fylltu út eyðublöð og fengu vegabréfaáritun fyrir drenginn heim til Íslands.
Eftir að við kvöddum sendiráðsstarfsmennina
fórum við aftur á hótelið. Lifang kom með okkur og hinkraði uppi á herbergi þar
til herra Wu, sérlegur skraddari frú Andreu, kom í heimsókn á hótelið með nýja
silkikjólinn hennar Andreu. Kjóllinn reyndist sérdeilis prýðilegur, og alveg
þess virði að borga aðeins meira fyrir þjónustu skraddara svo Andrea gæti valið
snið og efni sem henni leist best á.
Þegar herra Wu var horfinn á braut fórum við
með Lifang áleiðis á veitingastað sem hún vissi af sem sérhæfir sig í
hrísgrjónanúðlusúpum. Því miður hafði veitingastaðnum verið lokað, svo við
fórum á störnutorg í nærliggjandi verslunarmiðstöð til að fá núðlusúpur.
Súpurnar voru mjög góðar, og Kári Björn gúffaði í sig núðlum og drakk súpu, þó
hann hafi ekki verið sérstaklega hrifinn af kjúklingalufsunum í súpunni. Hann
hefur verið aðeins slæmur í maganum svo mildur matur eins og súpan hennar mömmu
ætti að vera einmitt það rétta í stöðunni. Rétt er að vekja athygli á því að foreldrarnir
borðuðu núðlurnar úr súpunni með prjónum eins og innfæddir, og supu svo á
súpunni úr ausum.
Eftir matinn fórum við í stóra bókabúð með
Lifang og keyptum kassa með þremur geisladiskum með kínverskum barnagælum. Nú
vorum við aðeins leið að vera ekki með diskadrif í tölvunni svo við getum ekki
leyft litla manninum að hlusta fyrr en við komum heim. Svo skildust leiðir,
Andrea fór að kaupa það sem átti eftir að kaupa, Lifang fór aftur í vinnuna og
Brjánn og Kári Björn fóru upp á hótel.
Andreu gekk ágætlega að versla. Við þurfum að
vera með mjög mikinn handfarangur í þetta skiptið, alla pappírana tengda
ættleiðingunni, og alla gripi sem við viljum alls ekki missa sem tengjast
uppruna Kára, svo Andrea keypti flugfreyjutösku til að koma öllu fyrir. Svo
þurfti að kaupa buxur á snáðann, þar sem hann er svo grannur að eiginlega engar
af buxunum okkar passa á hann.
Á meðan gauruðust feðgarnir á hótelinu. Fyrst
var leikið inni á herbergi, en svo farið að prófa lyfturnar. Þær eru með
glervegg og útsýni yfir veislusal hótelisins, svo það er ekki fyrir lofthrædda
að fara upp á tíundu hæð, standa við glerið og segja „vúúú“, en það var einmitt
það sem Kári Björn gerði. Ítrekað. Eftir að feðgarnir fóru aftur inn á herbergi
datt Kári og lenti með hausinn í gólfinu. Hann grét heilmikið, en jafnaði sig í
fanginu á pabba sínum. Engin varanleg ör eftir þetta.
Hótelherbergið er stundum eins og vígvöllur eftir lítinn mann sem hefur gaman af því að leika sér og grallarast.
Þegar Andrea kom heim eftir um 90 mínútna
aðskilnað æpti Kári Björn upp, spratt á fætur og hljóp skríkjandi af gleði á
móti henni og faðmaði hana. Svo mátti ekki líta af mömmu næstu klukkutímana,
svo pabbinn fékk smá frið til að hvíla sig á meðan mæðginin léku sér. Við
þurfum að vakna snemma í fyrramálið, svo í staðinn fyrir að fara á veitingastað
og borða, með tilheyrandi veseni og óróa fyrir Kára pöntuðum við okkur mat upp
á herbergi (maður gæti vanist svona room service!). Kári Björn var svo glaður
að sjá matinn að hann klappaði þegar þjóninn kom með matinn okkar. Hann borðaði
svo alveg heilmikið, foreldrunum til mikillar gleði.
Litlir menn eru ekki sérstaklega snyrtilegir þegar þeir borða pasta að mestu með höndunum. Við fögnum því bara að hann borði nóg þessa dagana.
Gaurinn fékk að gaurast til klukkan að verða
átta, þegar var kominn tíma á náttföt, tannbursta og mjólkursopa fyrir
svefninn. Kári hafði lítið sofið þennan daginn, bara um hálftíma í bílnum rétt
fyrir hádegi, svo hann sofnaði fljótt og vel. Þá er kominn tími fyrir
foreldrana að pakka öllu ofan í töskur, og gera allt klárt fyrir heimferðina í
fyrramálið.
Við hlökkum öll rosalega til að komast heim og
koma lífinu í einhverja rútínu. Tímamismunurinn gæti þó leikið lítinn mann
grátt, svo það má búast við að það taki einhvern tíma að koma öllu í samt lag
heima á Langholtsveginum.
Við hlökkum líka ógurlega mikið til að sjá ykkur öll á morgun. Þið látið bara vita ef þið teljið að það verði bananaskortur á heimilinu, hægt að græja það fyrir ykkur á morgun. Gangi ykkur vel á langri heimferð!
ReplyDeleteGangi ykkur heimferðin vel á morgun, hlakka til að fá að hitta og kynnast Kára Birni í framtíðinni:-)
ReplyDeleteKv. Heiðrún Bj.
Góða ferð heim elsku Andrea, Brjánn og Kári Björn. Gangi ykkur vel á morgun. Synd að ná ekki að hitta ykkur í Hafnarfirðinum á morgun. En við pöntum skype hitting um leið og allt verður komið í rútínu hjá ykkur:)
ReplyDeleteHugsum til ykkar á morgun.
Góða ferð heim, gaman að fá að fylgjast með ykkur, knús og kossar :)
ReplyDeleteGangi ykkur ofboðslega vel á heimleiðinni, vonandi ganga flugferðirnar vel. Hugur okkar verður hjá ykkur. Knús til ykkar allra. Gunnþórunn, Palli og Tómas.
ReplyDeleteGóða ferð! Það hefur verið rosalega gaman og áhugavert að fylgjast með ykkur þarna úti. Má maður vona að þið haldið áfram að blogga eftir að heim er komið?
ReplyDeleteFær maður svo ekki mynd af Andreu í klæðskerasaumaða kjólnum?
... no pressure!
AnnaLú
Gangi ykkur vel á loka metrunum & góða ferð heim :)
ReplyDeleteRagnhildur Scheving
Góða ferð heim og til hamingju með þetta allt saman. Hann er algjört krútt og mikill sjarmör. Það er búið að vera frábært að fá að fylgjast með ykkur.
ReplyDeleteKveðja Carolin
Gangi ykkur alveg rosalega vel á leiðinni heim og hlakka mikið til að hitta Kára Björn :)
ReplyDeleteÞað er búið að vera alveg frábært að fylgjast með ykkur og gaman að sjá hvað Kári Björn er strax orðinn ánægður með foreldrana sína :)
Kv. Heiðdis
Yndislegt að fylgjast með ykkur, :-) Góða ferð heim kæra fjölskylda
ReplyDeleteKv,
Helena
Æðislegt hvað allt hefur gengið vel og hvað Kári Björn er ánægður með foreldrana ( enda ekki við öðru að búast:) Gaman að lesa bloggið ykkar. Vona að heimferðin hafi gangið vel :)Kv.Ása
ReplyDelete