Sunday, August 19, 2012

Pælingar um Kína og Kínverja

Áður en við missum okkur í að blogga bara um Kára Björn þá langaði okkur að setja niður nokkrar pælingar  um Kína og Kínverja, sem við erum búin að vera að tala um síðustu daga.

Í fyrsta lagi þá eru Kínverjar afskaplega háværir. Þeir eru bæði margir og svo virðist þeim liggja mjög hátt rómur. Okkur finnst því oft gott að koma inn á hótelherbergi seinnipartinn og hafa þögn í svolitla stund til að ná jafnvægi aftur.

Umferðin er mikil. Kínverjar virðast helst bara keyra einhvern veginn þannig að þeir skemmi ekki bílana sína. Svo má beygja til hægri á rauðu ljósi og ef einhver gangandi vegfarandi er akkúrat að fara yfir á grænu gönguljósi á sama tíma þá þarf hann að vera fljótur að forða sér.

Þeir sem ekki kunna að borða með prjónum ættu annaðhvort að sleppa því að fara til Kína eða taka með sér  gaffal. Við erum orðin ansi flink í að prjóna upp í okkur matinn og vorum einmitt í kvöld að borða hrísgrjónarétti með prjónum með góðum árangri.

Kínverjar eru ekki jafn góðir og Bretar í að standa í röðum, yfirleitt virðist gilda reglan að sá sem er frekastur kemst fyrst að.

Enskukunnátta Kínverja virðist vera svona upp og ofan, aðallega næstum engin. Það er helst bara yngra fólkið sem skilur eitthvað og þá yfirleitt bara örfá orð. Yfirleitt eru matseðlar ekki á ensku en það er langoftast mynd af matnum og stundum ensk heiti á réttunum. Maður verður því stundum bara að taka sénsinn og panta eitthvað sem lítur vel út á mynd og í versta falli er það ekkert gott, hingað til hefur þetta samt gengið ágætlega. Sem betur fer eru tölurnar eins og hjá okkur þannig að við skiljum allavega hvað hlutirnir kosta.
Margir Kínverjar læra samt ensku í skóla og fá þá alltaf ensk nöfn sem þeir eiga að nota í enskutímum. Lifang, leiðsögukonan okkar í Beijing, sagði okkur að hún hefði fengið nafnið Molly (kennarinn valdi það) en henni hefði ekki líkað það því það líktist svo páfagauksnafninu Polly i kennslubókinni. Þegar hún fór að vinna fyrir ættleiðingarskrifstofuna valdi hún sér þvi nýtt enskt nafn, Amber.

Við höfum séð frekar marga, yfirleitt miðaldra, karlmenn með bolinn upp um sig þannig að maginn er ber. Þetta er eflaust þægilegt í hitanum en lítur alveg hrikalega asnalega út. Sjá myndina hér að neðan (ekki mjög skýr samt). Lifang sagði okkur að unga fólkinu í Kína þætti þetta líka hallærislegt.


Þegar við komum fyrst til Beijing þá kom okkur á óvart hvað allt var hreint, þ.e. lítið rusl á götum hvort sem er við umferðargötur eða á gangstéttum. Það kom svo í ljós að Kínverjar eru ekki endilega svo snyrtilegir heldur er aragrúi af götusópurum bókstaflega á hverju götuhorni, að sópa upp sígaréttustubbum og auglýsingapésum sem fólk hendir allstaðar.

Það er ekki mikið um fólk sem er ekki eins og Kínverjar í útliti (þ.e. hvítt fólk, svart, arabar o.s.frv). Samt sem áður er mjög mikið af ferðamönnum í Beijing, þeir eru bara flestir kínverskir. Það er því svoldið horft á okkur, sérstaklega hér í Jinan. Í dag löbbuðum við um í miðbænum í nokkra klukkutíma og sáum samtals 5 vesturlandabúa og svona milljón Kínverja eða svo. Við lentum einmitt í því á röltinu að vera beðin um að vera á mynd með kínverskri stelpu sem þótti við greinilega mjög áhugaverð. Okkur skilst að við munum fá ennþá meiri athygli þegar við verðum með kínverskt barn meðferðis. Við þurfum bara að venjast því.

Kannski bætum við fleiri pælingum seinna ef okkur dettur eitthvað fleira í hug.

4 comments:

  1. Mikið er gaman að fylgjast með blogginu ykkar Andrea mín, ég get rétt ímyndað mér spenninginn hjá ykkur núna. Hugsa til ykkar á morgun og hlakka til að lesa um hvernig fyrstu kynni ykkar og Kára Björns verða : )

    Bestu kveðjur Berglind Kaaber

    ReplyDelete
  2. Bara rétt að kíkja hvort það væri komin ný færsla. Hugsum til ykkar :)

    ReplyDelete
  3. Tók smá maraþon lestur núna og er komin á rétt ról að fylgjast með þessu æðislega ævintýri ykkar. Ótrúlega skemmtileg lesning. Maður fær beint í æð upplifun ykkar, gleðina og spennuna sem magnast dag frá degi.

    Gangi ykkur vel, njótið og veit að allir hér @Borgun eru spenntir að heyra meira frá ykkur og svo fá ykkur heim með nýjasta fjölskyldumeðliminn. Erna tjáði mér að þið ættuð að vera komin með Kára Björn í hendur þegar þetta er ritað? Fylgist spenntur með næstu færslu,

    Bestu kveðjur,Himmi

    ReplyDelete
  4. Ég veit þið hafið engan tíma til að blogga, eruð eflaust á fullu að knúsa og kynnast Kára Birni :) Hér eru allir spenntir að fylgjast með og mikið verið að *refresha* Njótið í botn.
    Bíð spennt eftir næstu færslu :)
    Ragnhildur

    ReplyDelete