Okkar helsta áhyggjuefni varð ekki að veruleika, við tékkuðum töskurnar inn
alla leið í Keflavík, og vorum fegin að sjá þær á færibandinu í Beijing. Á
flugvellinum hittum við leiðsögukonuna okkar hér í Beijing, Liu Lifang, sem
reyndar kallar sig Amber í þessu starfi, trúlega af því einhverjir eiga erfitt
með kínverska nafnið hennar. Hún virðist vera mjög fín, og kom okkur fyrst í
íslenska sendiráðið og svo heim á hótel.
Við vorum orðin frekar þreytt þegar við komum loksins á hótelið, þá var
klukkan næstum 11 að morgni að staðartíma, eða þrjú um nótt að okkar tíma, 23
tímum eftir að við vöknuðum. Sem betur fer gátum við sofið aðeins í
flugvélunum.
Hótelið er mjög fínt, fimm stjörnu hótel er mun meiri lúxus en við erum vön
að leyfa okkur. Við lögðum okkur í þrjá klukkutíma eftir að við komum á
hótelið. Það var rosalega erfitt að drattast á fætur og út af hótelinu eftir
það.
Við skoðuðum okkur um í nágrenni hótelsins eftir lúrinn. Það var um 30°C,
frekar rakt og sól. Fínt veður, en maður reyndi að halda sig í skugganum.
Hótelið er vel staðsett, rétt við Torg hins himneska friðar og Forboðnu
borgina. Við skoðum það ekki á morgun heldur hinn, í dag létum við nægja að
skoða okkur um á nærliggjandi göngugötu.
Við borðuðum ágætan kvöldmat á kínverskum veitingastað (já já, það var
kannski augljóst…). Við vorum samt svolítið eins og svefngenglar, svo við
reiknum með að fara snemma í háttinn. Á morgun förum við að skoða Kínamúrinn og
Sumarhöllina. Það má búast við því að við tökum nokkrar myndir þar.
Við erum núna farin að átta okkur á því að við séum loksins komin til Kína
og munum hitta strákinn okkar eftir örfáa daga. Við högum okkur svoldið
furðulega, glápum á öll lítil börn (sérstaklega stráka) og spottum hvar er hægt
að kaupa barnavörur. En það er kannski ekki svo skrýtið…
Bloggum aftur á morgun. Netið á hótelinu er fínt og með VPN tengingu til að
komast fram hjá kínversku netlöggunni ætti að ganga ágætlega að blogga.
Brjánn og Andrea
Hér koma svo nokkrar myndir.
Brjánn og Andrea
Hér koma svo nokkrar myndir.
Inngangurinn að hótelinu okkar, Grand Hotel Beijing.
Hótelherbergið okkar.
Komin á Wangfujing göngugötun a sem er rétt hjá hótelinu.
Það er margt skrýtið til hérna. Til dæmis er hægt að kaupa sér sporðdreka á priki og láta steikja þá fyrir sig. Sumir þeirra eru ennþá lifandi!
Fyrsta kvöldmáltí ðin í Kína
glæsilegt! gaman að fá fréttir :)
ReplyDeleteFrábært að heyra frá ykkur:) Knús knús Linda
ReplyDeleteGaman að fá að fylgjast með. Ekkert smá flott herbergi :) Kveðja Endurkröfur
ReplyDeleteMér finnst þú sæt í grænum bol Andrea :) Gangi ykkur sem best.
ReplyDeleteKveðja MAG
Gaman að sjá myndir :) Hafði það gott - við hugsum til ykkar.
ReplyDelete