Í Kína býr um 1,3
milljarður manna. Í dag komu þeir, að því er okkur virtist, allir saman á Torgi
hins himneska friðar og í Forboðnu borginni. Mögulega voru þeir að heiðra okkur
með nærveru sinni, enda dagurinn okkar ætlaður til að skoða þessa tvo staði.
Við skoðuðum torgið reyndar frekar lítið, enda tók tímann sinn að skoða
Forboðnu borgina.
Forboðna borgin
var öldum saman miðdepill heimsins hvað Kínverja varðaði, enda bjó keisarinn í
Kína í þessari risavöxnu höll, svona þegar hann var ekki að njóta lífsins í
Sumarhöllinni sinni. Við flæddum með gríðarlegum fjölda kínverskra ferðamanna
sem voru að skoða höllina í dag. Við fengum reyndar ekki að fara inn í
byggingarnar, svo við urðum að rölta um og skoða utanfrá, auk þess sem við
gátum einstaka sinnum kíkt inn um glugga og hurðir.
Eftir heimsóknina
í Forboðnu borgina tók við hjólaferð um dæmigert gamalt kínverskt hverfi. Þar
eru lágreist hús sem byggð eru í kassa í kringum garð. Í gamla daga bjó ein
fjölskylda í hverju húsi, meira að segja fjölskyldur sem voru ekkert
sérstaklega ríkar. Núna deila margar fjölskyldur hverju húsi. Eftir byltinguna
ákváðu yfirvöld að allir skyldu vera rosalega jafnir, og tóku öll húsin
eignarnámi. Ríkið hefur síðar skilað um 20% af húsunum aftur til réttmætra
eigenda, en restin er í eigu ríkisins og íbúarnir fá að búa þar frekar ódýrt,
eins og sardínur í dós.
Hjólatúrinn var
áreynslulaus fyrir okkur, enda ferðuðumst við með rickshaw-hjólum ásamt
leiðsögukonunni okkar, svo aðrir sáu um að hjóla á meðan við nutum útsýnisins. Við
heimsóttum tvö hús í ferðinni. Í öðru bjó listamaður með fjölskyldu sinni
(ásamt fleirum) og fræddi hann okkur (í gegnum leiðsögumann sem túlkaði) um
húsið. Í því síðara bjó indælis kínversk „amma“ sem er sest í helgan stein en
hefur tekjur af því að elda ofan í ferðamenn eins og okkur.
Þarna fengum við
besta matinn sem við höfum fengið í ferðinni hingað til. Eins og tíðkast voru
nokkrir réttir á borðum fyrir okkur og leiðsögumanninn. Auk hrísgrjóna tíðkast
að bjóða upp á einum fleiri rétt en gestirnir við borðið eru margir, svo við
fengum fjóra rétti. Fyrsti rétturinn sem kom á borðið samanstóð af
hvítlauksspírum sem voru eldaðar með smá svínakjötsstrimlum. Svo kom
kjúklingaréttur með chili og agúrkum, svo fínt strimlaðar kartöflur og að lokum
dumplings með svínakjöti og kínakáli. Við borðuðum okkur pakksödd, og vorum
frekar montin þegar leiðsögumaðurinn sagði að við værum klár að nota prjóna,
þar sem við vorum ekkert sérstaklega á þeirri skoðun fyrirfram.
Eftir þessa
heimsókn fórum við aftur á hótelið og slöppuðum aðeins af. Eftir klukkutíma
ætlum við að fara á einhverskonar blöndu af leiksýningu og kung-fu-sýningu með
Liu Lifang, leiðsögukonunni okkar hér í Beijing. Það verður vonandi
skemmtilegt. Okkur skilst að annað hvort tali leikararnir ensku, eða að það
verði enskur texti. Hvort sem er verður frábært. Við höfum að minnsta kosti
aldrei séð leiksýningu með enskum texta (subtitles)!
Ótrúlega spennandi og skemmtilegt, en geti þið eitthvða notið þess að vera þarna úti?
ReplyDelete