Jæja, þá er búið að pakka og við leggjum í hann í fyrramálið. Ég hugsa að við eigum líklega eftir að fatta þetta almennilega þegar við erum sest inn í flugvélina, erum allavega ekki alveg að fatta það ennþá að það sé loksins komið að þessu.
Við erum búin að græja allt sem er hægt að græja - vona allavega að ekkert mikilvægt hafi gleymst - og erum orðin ansi spennt. Ætlum að reyna að vera dugleg að blogga á meðan við erum í burtu og reynum að njóta þess að vera í Kína fyrstu dagana og skoða okkur svoldið um áður en við fáum Kára Björn til okkar.
Ég lofaði víst einhverjum myndum af barnaherberginu, hér eru þær. Þær eru teknar með víðlinsu þannig að hlutföllin eru svoldið skrýtin :)
Við erum búin að setja rúm í herbergið en erum líka með rimlarúm inni hjá okkur og gerum ráð fyrir að Kári sofi þar til að byrja með.
Ekkert slor þetta barnaherbergi. Góða ferð.
ReplyDeleteKv. Kolla og Mundi.
Vá allt til als :) Heppinn polli!
ReplyDeleteKrúttkallinum á sko eftir að líða vel þarna í svona fallegu herbergi og með svona góða foreldra!
ReplyDeleteAnnaLú