Thursday, August 16, 2012

Kínamúrinn og fleira





Það er tilraun í gangi með að setja inn myndir sem slideshow. Það kemur bara í ljós hvernig það tekst til.


Erum þreytt eftir daginn og þurfum að pína okkur til að fara ekki of snemma að sofa. Í dag byrjuðum við á að heimsækja jaðiverksmiðju (öðru nafni túristabúð), fengum að vita ýmislegt um jaði sem er steintegund sem er mjög mikil notuð í kínverska listmuni og skartgripi. Keyptum að sjálfsögðu smávegis J

Næst var ferðinni heitið að Kínamúrnum. Príluðum þar upp ansi margar tröppur og vorum orðin frekar þreytt og sveitt eftir púlið. Múrinn var ekki jafn breiður og við áttum von á, sums staðar var þetta bara um einn og hálfur metri á breidd.

Þegar við vorum búin að sjá nóg af Kínamúrnum fórum við að borða hádegismat á efri hæðinni í risastórri túristabúð. Eftir matinn, sem samanstóð af ýmsum kínverskum réttum, kíktum við í túristabúðina og rákumst á spjöld með nöfnunum okkar (að vísu var ekki til Brjánn en Brian var til) skrifuð með kínverskum táknum. Mannfræðistelpunum eflaust til mikillar gleði er nafnið Andrea með tveimur táknum sem bæði þýða „lucky“ J

Næst var Sumarhöllin heimsótt sem er stórt svæði með vatni og mörgum byggingum. Þetta var sumardvalarstaður keisarans fyrr á tímum og við skiljum það alveg því þar var mjög þægileg gola. En það var ansi mikið af fólki þarna, eins og alls staðar annars staðar hérna í Kína.

Þegar við komum aftur upp á hótel og vorum búin að fara í kærkomna sturtu höfðum við engan áhuga á að fara að leita að einhverjum spennandi veitingastað heldur skelltum við okkur bara á KFC.




4 comments:

  1. Flottar myndir frá múrnum, mann langar alveg að koma þangað í eigin persónu! Góða skemmtun á morgun :)

    ReplyDelete
  2. Lucky! Þurfum sko enga kínversku til að vita það :)

    ReplyDelete
  3. Þetta var ekkert úr lausu lofti gripið að kalla hana Lucky :)
    Gangi ykkur vel. Það fer að styttast að þið fáið Kára í fangið! Dásamlegt.
    AnnaLú

    ReplyDelete
  4. Gaman að sjá myndir, hrikalega flott :)

    ReplyDelete