Í dag fengum við frábærar fréttir. Þær komu í
gegnum Google frænda, sem fræddi okkur á því að það væri í rauninni ómögulegt
fyrir tveggja ára patta að borða of mikið af banönum. Fullvaxin manneskja getur
borðað 12 banana eða meira án þess að það hafi nokkur neikvæð áhrif, svo það að
okkar gaur hafi borðað þrjá það sem af er degi er ekki ávísun á harðlífi,
undanrennu eða eitthvað þaðan af verra.
Dagurinn byrjaði snemma. Eða kvöldið endaði
seint. Litli maðurinn fór að sofa milli átta og hálf níu um kvöldið, en vaknaði
klukkan 2:30 um nóttina. Pabbinn fór fram úr og reyndi að hugga litla manninn,
en hann vildi ekki leggjast aftur í rúmið sitt. Á endanum kom hann upp í hjá
mömmu og pabba, þar sem hann vesenaðist aðeins áður en hann sofnaði. Með hausinn
til fóta, bara til að rugla aðeins í liðinu. Afkvæmi og foreldrar sofnuðu sem
betur fer aftur, og sváfu til klukkan 7 um morguninn.
Morgunmaturinn gekk ekki jafn vel og daginn
áður. Kári Björn fékk banana í kerruna á leiðinni í morgunverðinn, en fékk að
opna hann heldur snemma, og var búinn þegar við komum. Þá átti eftir að finna
borð (þau voru öll upptekin) og ná í mat. Kári borðaði smá brauð og vatnsmelónu
á meðan Brjánn gúffaði í sig morgunmat, en tók svo grátkast á meðan mamman
borðaði. Pabbinn gekk um gólf með hágrátandi snáðann, en að lokum róaðist hann,
og sættist á að setjast í kerruna og keyra hratt um gangana.
Eftir morgunmat fórum
við í dýragarðinn í Jinan. Hann þykir með þeim betri í Kína, og var þannig séð
ágætur. Fyrstu dýrin sem við hittum var hópur af öpum sem skemmtu sér við að
stökkva úr klettum í vatn. Kára þótti það áhugaverð hegðun, enda sjálfur alger
sullari. Svo fórum við um dýragarðinn og sáum birni, villisvín, dádýr og
geitur. Líka fíla, gíraffa og að lokum tígrísdýr. Frægur pandabjörn sem átti
heima í garðinum drapst því miður nýlega, svo við sáum enga pandabirni. Við
verðum bara að sjá þá næst þegar við komum til Kína.
Kára Birni fannst gaman að skoða dýrin í dýragarðinum, sérstaklega apana sem hoppuðu til og frá og sulluðu í vatni.
Kári var mjög áhugasamur um dýrin, sérstaklega
stökkvandi apana, sem gladdi dýraóðu foreldra hans verulega. Þau sjá fram á
góðar stundir með guttanum að skoða dýrin í húsdýragarðinum, og reyndar öll
önnur dýr sem þau geta fundið. Nema kannski litla hunda, fósturmamma Kára sagði
að hann væri hræddur við þá, hvað svo sem er til í því.
Ergo-pokinn kom sér vel í dýragarðinum.
Auðvitð þurfti samt að rannsaka svæðið á fæti.
Kári vildi lengst af vera í burðarpokanum
sínum framan á Andreu. Svo fór hann að syfja, svo hann endaði sofandi í
kerrunni og þá var kominn tími á að koma sér heim. Kári var orðinn svangur
þegar hann kom heim á hótelið, en svo vel vildi til að hann labbaði fram hjá
nokkurskonar bakaríi í andyrinu, þar sem hann fékk fínt brauð með innbakaðri
lítilli pylsu. Það borðaði hann upp til agna þegar hann kom upp á hótelherbergi,
þó hann hafi ákveðið að sleppa pylsunni. Svo ákvað hann að hann ætlaði að fá
einn banana líka, og þegar þessi ungi maður ákveður að hann ætli að borða
banana mun hann borða banana. Og þarna ákvað hann að fá sér svoleiðis.
Foreldrarnir borðuðu heldur fáttæklegan
hádegismat í þetta skiptið, sitt hvort eplið (Kári vildi smakka einn bita af
hvoru, honum fannst eplið gott, en var orðinn saddur) og eina orkustöng hvort.
Kári fékk svo aðeins meira epli, og sýndi að hann kunni að bíta sjálfur í eplið
hennar mömmu.
Eftir þennan fína hádegisverð hélt litla
fjölskyldan af stað í nokkrar búðir. Stubburinn reyndist heldur minni en
áætlanir gerðu ráð fyrir, svo sum fötin sem voru með í för voru heldur lítil og
því þörf á að bæta nokkrum í safnið. Hann er svo grannur að buxur í 86 virðast
vera málið, en bolir í 92. Við enduðum í Wal-Mart þar sem Andrea fann tvenn
náttföt á meðan Brjánn og Kári röltu um og skoðuðu bolta og fleira.
Rútínan hjá litla manninum var verulega farin
úr skorðum þar sem hann vildi ekki leggja sig í hádeginu. Á endanum sofnaði
hann aðeins í kerrunni sinni. Foreldrarnir notuðu tækifærið og litu inn á
veitingastaðinn Herra Pizzu. Þar gæddu þau sér á dýrindis flatbökum og ræddu
málin eins og siðmenntað fólk á meðan litli maðurinn svaf eins og steinn í
kerrunni. Þó kínverskur matur sem við höfum borðað hér hafi í flestum tilvikum verið
mjög góður er samt alltaf gott að borða eitthvað „venjulegt“ inn á milli.
Við náðum að borða okkur vel södd og ræða
málin í rólegheitunum áður en Kári rumskaði. Hann vaknaði eitthvað illa,
mögulega af því hann var í ókunnum aðstæðum, eða af því hann hafði dreymt illa.
Andrea huggaði kútinn á meðan Brjánn borgaði fyrir matinn, en svo þurfti að
halda á stubbnum heim á hótel. Sem betur fer var það ekki svo langt, þó
foreldrarnir hafi aðeins látið kínverska umferðar(ó)menningu fara í taugarnar á
sér á leiðinni.
Foreldrarnir fengu fágætt tækifæri til að borða saman, á sama tíma, meðan maturinn var ennþá heitur á meðan Kári Björn svaf í kerrunni.
Góðu hreingerningarkonurnar höfðu lagað til í
herberginu þegar við komum aftur. Svo höfðu þær líka skilið eftir tvo banana í
skál á lága borðinu beint á móti innganginum. Ekki uppi á hærra borðinu þar sem
foreldrarnir geyma allan mat. Takk fyrir það. Flestir sem hafa lesið þetta
blogg með einhverri meðvitund geta giskað á hvað gerðist næst.
Þegar Kári var búinn að borða bananann tók við
leikstund á sprellanum (sem er ótrúlega vinsælt), sem endaði í baðferð með
tilheyrandi sulli. Eftir baðið fór Kári að dunda sér og leika með öðru eða
báðum foreldrum. Undir það síðasta með mömmunni meðan pabbinn skrifaði blogg.
Eins gott að byrja snemma að blogga svo foreldrarnir þurfi ekki að fara of
seint að sofa!
Kári hefur rosalega gaman af því að leika sér
með límmiða. Við keyptum tvö límmiðaspjöld til að leika með, þar sem hægt er að
nota þá til að líma á andlitin á foreldrum/barni til að hjálpa til við
tengslamyndun. Þar sem hún virðist ekki vera sérstakt vandamál höfðu
límmiðarnir fengið að bíða. Þar til Kári fór að kroppa verðmiða af einhverju
dóti, og líma með mikilli vandvirkni á handabakið sitt. Síðan hafa foreldrarnir
keypt nokkur límmiðaspjöld og guttinn dundað sér við að líma. Aðallega vill
hann líma á eigin handarbök, oft mörg lög af límmiðum. Stundum er hann til í að
líma á foreldrana líka, til dæmis á nef og enni. Í kvöld náði hann að kroppa
verðmiða af einhverju dóti, en í staðinn fyrir að líma á sig fékk mamman að
vera fín með límmiðann.
Við vorum ekki viss hvort hann væri svangur
svo hann fékk nokkra cheerios-hringi í bolla til að maula. Hann var greinilega
ekki svangur, en fann það upp hjá sjálfum sér að mata foreldrana á hringjunum.
Það var ótrúlega gaman að fá mat frá litla gaurnum, sérstaklega þegar hann
ákvað að deila nokkrum hringjum með Brjáni með því að bíta fyrst helminginn
fyrir sjálfan sig og gefa pabba svo hinn helminginn. Þetta er mjög jákvætt
merki, að hann vilji mata okkur, þar sem venjulega erum við í þeirri stöðu að
mata hann.
Kári litli í fanginu á pabba.
Þegar drengurinn var að vesenast um kvöldið
kallaði hann í fyrsta skipti á mömmu sína (mamma!!!!) til að fá hjálp, og svo
aftur stuttu seinna. Hann veit hverjir „mama“ og „baba“ eru, honum var kennt
það á barnaheimilinu og getur bent á hver það eru þegar hann er spurður. En
þarna notaði hann orðið í fyrsta skipti. Mamman (og pabbinn auðvitað líka) var
ekkert smá ánægð og stolt af litla gaurnum.
Dagurinn endaði sem sagt á rólegu nótunum.
Kári hefur aldrei neitt á móti því að fara í náttfötin (hann þráast frekar við
að fara úr þeim á morgnana), og er orðinn mjög spenntur fyrir því að tannbursta
sig. Hann virðist samt eiga frekar erfitt með að fara að sofa. Það er eins og
hann þekki það bara að vera settur í rúmið með hinum krökkunum á ákveðnum tíma,
og hann vill svo sannarlega ekki þannig meðferð núna. Hann vælir ef hann er
settur í rúmið sitt, og vill ekki kúra hjá okkur. Stundum virkar að keyra hann
hring eftir hring í kerrunni sinni, en það gekk ekki þetta kvöldið. Á endanum
sofnaði hann í hjónarúminu hjá mömmu sinni.
Lífið er ekki alltaf auðvelt þegar maður er tveggja ára, og enginn skilur hvað maður vill. Þá þarf að gráta svolítið.
Þreyttu foreldrarnir ætla að nota kvöldið til
að sturta sig, setja inn blogg og myndir, laga aðeins til, og já, hvíla sig
aðeins nú þegar smá tækifæri gefst til.
Á morgun fáum við svo kínverskt vegabréf fyrir
Kára, og skoðum staðinn þar sem einhver góðhjartaður borgari fann þennan litla
snáða fyrir rúmum tveimur árum síðan. Mögulega kíkjum við svo á bygginguna þar
sem barnaheimilið var fram á mitt ár 2011, þó ekki sé til annars en að eiga
mynd í safnið.
Þreyttir foreldrar þakka kærlega hlýjan hug og
góðar kveðjur, og hlakka til að sýna Kára Björn þegar heim er komið, þó það
verði að gerast hægt og í skrefum þegar Kári er tilbúinn.
Ég bíð eftir pistlinum og nýjum myndum á hverjum degi! Knús, Helga Hrönn
ReplyDeleteOhhh svo frábært að sjá nýja færslu. Hann er guðdómlega fallegur hann Kári Björn
ReplyDeleteÞetta er besta "bók" sem ég hef lesið lengi! Yndislegur litli gaurinn ykkar;) Ég kannast vel við að hlaupa á eftir svona gaurum allan daginn og það venst bara mjög vel!
ReplyDeleteBestu kveðjur frá Svíþjóð
Knús á ykkur, góður dagur hjá ykkur :)
ReplyDeleteKnúsiði litla kall frá okkur :-)
ReplyDeleteÞað hlýtur að hafa verið yndisleg tilfinning að fá að heyra hann kalla þig mamma:-) Maður er bara svo glaður í hjartanu að heyra hvað gengur vel hjá ykkur.
ReplyDeleteKv. Heiðrún Bj.
Innilega til hamingju með þennan fallega strák. Mikið er gaman að lesa um það sem á daga ykkar hefur drifið í Kína og sérstaklega gaman að sjá hversu vel gengur með hann Kára Björn. Gangi ykkur sem allra best á heimleiðinni.
ReplyDeleteBestu kveðjur,
Ingibjörg og Benni í Kólumbíuhópnum.