Thursday, August 9, 2012

Undirbúningur á lokametrunum

Þá er aldeilis farið að styttast í ferðina. Eftir fimm daga verðum við á leiðinni til Kína :)

Undirbúningurinn er búinn að vera á fullu síðustu dagana og það er ansi margt sem þarf að gera. Fyrir utan "venjulega" hluti eins og að græja barnaherbergið og kaupa það sem barn þarf á að halda þá eru alls konar pappírsmál sem þarf að hugsa út í.

Við erum komin með vegabréfsáritunina og allir pappírar varðandi ættleiðinguna eru klárir. Við munum nefnilega fara með heilan haug af pappírum með okkur út og eins gott að týna ekki neinu svo við fáum alveg örugglega að fara með strákinn okkar heim.

Núna var ég að kaupa aðgang að VPN tengingu sem gerir okkur kleift að blogga á meðan við erum úti í Kína. Annars myndi nefnilega netlöggan stoppa okkur í því. Ég er að prófa hvort þetta virki nú ekki alveg örugglega eins og það á að virka. Planið er nefnilega að vera dugleg að blogga á meðan við erum úti þannig að það er eins gott að það sé hægt.

Hér er svo fyrsta fjölskyldumyndin okkar, hún var teiknuð af Dagmar Brá 4ra ára systurdóttur minni.



5 comments:

  1. Krúttleg mynd hjá Dagmar! Og eins gott að við fáum smá fréttir og myndir á meðan þið verðið úti :)

    ReplyDelete
  2. Gangi ykkur rosa vel og góða ferð út. Hlakka til að fá að fylgjast með ykkur í Kína.
    -Sonja

    ReplyDelete
  3. Er svo spennt fyrir ykkar hönd, góða ferð út og gangi ykkur rosalega vel :)

    ReplyDelete
  4. Snilld.....við verðum á refresh-takkanum að bíða eftir bloggi ;-)

    Kv Erna Lind

    ReplyDelete
  5. Flott mynd af ykkur. Kári Björn mjög líkur sér ;)
    Hlakka mikið til að lesa ferðasöguna. Ég er svo spennt yfir þessu öllu :)

    ReplyDelete