Monday, July 30, 2012

Dagskráin komin

Við erum búin að fá dagskrána fyrir ferðalagi í hendurnar. Hún lítur bara ágætlega út, munum túristast eitthvað en það er gert ráð fyrir rólegheitum inn á milli.

Dagskráin lítur svona út:
14. ágúst, þri - Lagt af stað til Kína með stoppi á flugvellinum í Helsinki.
15. ágúst, mið - Lent í Beijing snemma að morgni og kíkt í íslenska sendiráðið á leiðinni á hótelið.
16. ágúst, fim - Skoðum Kínamúrinn og Sumarhöllina.
17. ágúst, fös - Torg hins himneska friðar (Tian'an men Square) og Forboðna borgin heimsótt.
18. ágúst, lau - Engin dagskrá. Ætlum að nota daginn til að kíkja í búðir og rölta um Beijing.
19. ágúst, sun - Fljúgum til Jinan og komum okkur fyrir í hótelinu þar.
20. ágúst, mán - Stóri dagurinn! Fáum Kára Björn til okkar á hótelinu um morguninn og göngum frá ættleiðingarpappírum síðar um daginn.
21. ágúst, þri - Kíkjum í Baotu Spring Park, garð í Jinan.
22. ágúst, mið - Heimsækjum barnaheimilið.
23. ágúst, fim - Förum í dýragarð og förum í einhverja pappírsvinnu.
24. ágúst, fös - Gengið frá einhverjum pappírum, annars afslappelsisdagur.
25. ágúst, lau - Fljúgum til Beijing og komum okkur fyrir á hótelinu þar.
26. ágúst, sun - Skoðum Heaven Temple og (ef ég skil dagskrána rétt,) borðum önd.
27. ágúst, mán - Göngum frá vegabréfsáritun fyrir Kára Björn í íslenska sendiráðinu.
28. ágúst, þri - Fljúgum heim.

Flugið til Kína er samtals eitthvað um 11 tímar, rúmir þrír til Helsinki og um átta til Beijing. Við munum fljúga með Icelandair og Finnair. Flugið á milli Beijing og Jinan er svo bara um klukkutími.

Það styttist óðum í brottför, bara tvær vikur!


5 comments:

  1. vá spennandi! Biðin eftir börnum er svo löng og erfið. En mikið er þetta spennandi dagskrá, mun meira spennandi en mínir síðust dagar áður en ég fékk mína stráka :)

    ReplyDelete
  2. María Bender30 July, 2012 22:01

    Þetta er svooooo spennó. Til hamingju með daginn Andrea mín, þetta styttist óðum :)

    ReplyDelete
  3. Skemmtilegt! Það verður eflaust frábært tilfinning að vera komin til Kína og auðvitað molinn ykkar svo miklu meira spennandi en einhver múr og forboðin borg sem virðist nú ekkert vera svo forboðin lengur :)

    AnnaLú

    ReplyDelete
  4. Þið eruð svo frábær að leyfa okkur að fylgjast með þessu ferli öllu saman. Ég er svo glöð fyrir ykkar hönd. Þetta verður svaka ferðalag hjá ykkur.
    Kv. Heiðrún

    ReplyDelete
  5. Gaman að fá að sjá dagskrána svona frá A-Ö, verður gaman að geta fylgst með hvað þið eruð að gera hverju sinni þegar þið verðið komin út.

    ReplyDelete