Friday, July 20, 2012

Dagsetningin komin!

Í dag fengum við að vita það að þann 20. ágúst fáum við Kára Björn í fangið :)
Við munum vera í um tvær vikur í Kína, fyrst í nokkra daga í Beijing, förum svo til Jinan, fáum strákinn okkar og eyðum nokkrum dögum í borginni hans á meðan gengið er frá ýmsum pappírum. Svo förum við aftur til Beijing í nokkra daga og svo heim.
Nú getum við farið að telja niður!

6 comments:

  1. ...gæsahúð! Og smá tár! Guð hvað þetta er spennandi! En helvíti löng meðganga :)

    ReplyDelete
  2. Við erum svo spennt að fá litla frænda heim. Hann og Tómas eiga ábyggilega eftir að leika mikið saman :-) Æðislegt að vera komin með dagsetningu, þá er bara að byrja að telja niður. Kveðja, Gunnþórunn.

    ReplyDelete
  3. Frábært! Þetta er bara rétt handan við hornið.
    AnnaLú

    ReplyDelete
  4. Margrét Eiríksdóttir21 July, 2012 23:54

    Sæl verið þið

    Margrét heiti ég og er að Kólumbíulistanum ;)

    Gaman að fá að fylgjast með ykkur - spennandi tímar framundan hjá ykkur ;)

    Kveðja,
    Margrét
    Dalvík

    ReplyDelete
  5. María Bender22 July, 2012 20:54

    20 ágúst verður gleðidagur :) Þetta styttist...

    ReplyDelete
  6. Sæl

    Innilega til hamingju með Kára Björn, hann er algjört krútt :) Ekkert smá spennandi tímar í vændum :)

    kv
    Þóra Björk

    ReplyDelete