Í gærkveldi fórum við á Kung Fu sýningu sem var bara nokkuð skemmtileg. Í dag vorum við svo á eigin vegum og ákváðum að eyða deginum að mestu í búðarölt. Byrjuðum á að taka neðanjarðarlestina yfir á Silk Market sem er sambland af markaði og verslunarmiðstöð (bæði básar og litlar búðir). Þar er afgreiðslufólkið ansi mikið að reyna að ná í viðskipti með því að kalla á mann og reyna að fá mann í búðina eða á básinn. Þarna gildir líka að prútta og við vorum orðin alveg ágæt í því á endanum. Áður en við sögðum skilið við Silk Market með innkaupin okkar skellti Andrea sér í baknudd.
Silk Market
Þegar við vorum búin að koma varningnum okkar upp á hótel fengum við okkur kínverskan hádegismat í verslunarmiðstöð og fórum svo í fleiri búðir. Meðal annars fórum við í bókabúð og keyptum nokkrar barnabækur fyrir Kára Björn.
Í bókabúðinni var fullt af fólki sem sat á gólfinu og var að lesa bækur.
Eftir búðaröltið slöppuðum við af á hótelherberginu áður en við fórum svo í kvöldmat þar sem við nenntum engri tilraunastarfsemi og fengum okkur bara vestrænan mat á Sizzlers.
Okkur finnst mjög skrýtið að hugsa til þess að eftir innan við tvo sólarhringa verðum við orðin foreldar, en erum orðin mjög spennt að hitta Kára.
Góða ferð og við hugsum til ykkar :)
ReplyDeleteSé ekki betur en að fólkið sé að lesa Manhua!
ReplyDeleteGangi ykkur vel og það verður gaman að heyra hvernig Kári tekur ykkur!
Svo gaman að fá að fylgjast með ykkur. Svona með tímamismuninn í huga þá fáið þið Kára Björn í dag. Sem er bara bjútífúl!
ReplyDeleteAnnaLú