Tuesday, September 25, 2012

Rútínulíf

Jæja, þá erum við búin að vera heima í fjórar vikur og búin að vera fjölskylda í mánuð og fimm dögum betur.

Ennþá gengur allt mjög vel og allir eru að venjast nýja lífinu, meira að segja heimiliskötturinn. Birta kisa virðist vera farin að átta sig á því að Kári Björn er ekki að fara neitt og að hann er ekki jafn hættulegur og hann lítur út fyrir að vera. Hún er samt fljót að láta sig hverfa þegar hún sér fram á að hann ætli að fara að kássast í henni. Kári virðist líka vera farin að átta sig á því að Birta er ekkert sérstaklega mikið fyrir börn og lætur hana að mestu leyti í friði.

Síðustu tvær vikurnar erum við búin að vera að dúlla okkur heima, fara hingað og þangað og fá þær upplýsingar hjá lækni að Kári Björn sé hraustur og án annarra kvilla en þeirra sem við vissum af. Hann kemur til með að þurfa að fara í einhverjar aðgerðir, en það kemur allt saman betur í ljós síðar.

Kári Björn ánægður í gallabuxunum sínum, hann vill helst alltaf vera í þeim.
Kári Björn sefur langoftast alla nóttina, sofnar milli átta og níu (fer eftir hvað hann er lengi að sofna/hætta að vera óþekkur) og vaknar milli sjö og átta. Sefur án vandræða í sínu rúmi þannig að foreldrarnir fá nægan ótruflaðan svefn, þeim til mikillar ánægju. Kári borðar ennþá mjög vel en er farinn að vesenast meira með matinn en áður, foreldrunum til mikillar gleði - eða hitt þó heldur. Við erum að spá í hvort sé mögulega að hægjast aðeins á átinu hjá honum, en það á eftir að koma betur í ljós.

Við erum farin að auka heimsóknir til annarra og erum búin að fá móðurömmuna og -afann í stutta heimsókn sem gekk bara vel. Svo fengum við félagsráðgjafa í heimsókn í dag og Kári Björn sætti sig alveg við að hún væri á heimilinu, en vildi reyndar losna við hana þegar leið á viðtalið, sagði "jæja" og fór fljótlega eftir það að vinka bless. Sem hluta af ættleiðingarferlinu þarf að skila nokkrum eftirfylgniskýrslum til Kína, þeirri fyrstu núna eftir að mánuður er liðinn. Þessar skýrslur þarf félagsráðgjafi að vinna, þannig að við munum fá nokkrar félagsráðgjafaheimsóknir næstu árin.

Við skruppum aðeins út á Gróttu um daginn í smá fjöruferð.
Kári Björn heldur áfram að vera afskaplega hrifinn af dýrum, hann er líka endalaust að benda á strætóa, stóra bíla, flugvélar og vinnuvélar þegar við erum úti. Hann verður sífellt klárari að kubba með legokubbum og áhugi hans á að leika með bíla er að aukast. Eldhúsáhöld (dótaútgáfan), sérstaklega hnífapör, halda samt áfram að vera skemmtilegust. Það er endalaust hægt að búa til mat úr lofti og gefa foreldrum og böngsum að borða. Kára finnst líka gaman að hlusta á barnatónlist en í langmestu uppáhaldi er Mörgæsalagið úr Söngvaborg 6 sem við fundum á youtube. Það er búið að hlusta/horfa ansi oft á það á þessu heimili og Kári biður um að fá að horfa á það nokkrum sinnum á dag.

Á hoppubelgnum í Húsdýragarðinum.
Við erum búin að kíkja aðeins í Húsdýragarðinn sem á eftir að verða heimsóttur nokkuð oft gerum við ráð fyrir. Um daginn kíktum svo í dagsferð í sumarbústað föðurafans og -ömmunnar. Kári Björn var mjög ánægður með ferðina í heita pottinn, eftir að hann var búinn að jafna sig. Hann fór nefnilega svoldið að gráta þegar hann hélt að við ætluðum að svíkja hann um heitapottsferðina. Honum finnst alveg svakalega gaman að fara í bað og leist ekkert smá vel á þegar við buðum honum að fara í bað í heita pottinum. Hann reif sig úr öllum fötunum og ætlaði beinustu leið í pottinn. Þegar við fórum að setja hann í sundbuxur hélt hann að við ætluðum að svíkja hann um baðferðina og fór að hágráta. Hann róaðist aðeins þegar mamman var komin í pottinn í sundfötunum og varð mjög glaður þegar hann fékk að fara útí líka, ásamt pabbanum.

Glaður í pottinum.
Ánægður eftir góða "bað"ferð í bústaðnum.
Á næstum dögum og vikum munum við halda áfram að sinna rútínunni okkar og auka væntanlega samneyti okkar við annað fólk. Við foreldrarnir munum líka halda áfram að kenna Kára Birni ný orð, maður kemst víst ekki mjög langt í lífinu á "nei", "jæja", "gkha" (drekka), "nónónó" (góða nótt) og öðrum svipuðum orðum.

3 comments:

  1. Kára sögur fyrir háttinn er ljúf lestning. Takk fyrir mig

    ReplyDelete
  2. Vá, mér finnst eins og hann hafi stækkað alveg heilan helling. En kannski eru það bara gallabuxurnar. Þeir verða svo gauralegir í gallabuxum.
    Alltaf gaman að heyra af ykkur!
    AnnaLú

    ReplyDelete
  3. Frábært að heyra hvað allt gengur vel. Hann er svo mikil dúlla

    kveðja Carolin

    ReplyDelete