Þá erum við búin að vera heima í tvær vikur. Enn sem komið er gengur bara ótrúlega vel.
Til að undirbúa okkur undir ættleiðinguna vorum við búin að lesa okkur til og fá upplýsingar um alls kyns vandamál sem gætu komið upp, en enn sem komið er höfum við ekki lent í neinum sérstökum vandræðum. Kári Björn virðist vera nokkuð sáttur við okkur og nýja lífið sitt. Við erum þó að fara hægt í allar breytingar, enda höfum við nógan tíma.
Kári Björn er búinn að hitta helstu meðlimi nánustu fjölskyldunnar og kíkja í heimsóknir til afanna og ammanna. Um helgina kíktum við í lokin á fjögurra ára afmæli systurdóttur Brjáns, þegar næstum allir voru farnir, og Kári var bara sáttur við það. Var ánægður að sjá allt dótið sem frændsystkini hans eiga og hafði engan tíma til að fá sér afmælisköku, vildi miklu frekar leika sér. Meðal annars setti hann fullt af dóti í dúkkuvagn frænku sinnar og keyrði hann svo ánægður um allt. Frændsystkini hans (fjögurra og sex ára) eru voða góð við hann og eiga örugglega eftir að vera fínir leikfélagar síðar meir.
Kári er búinn að hitta annan frænda sinn, eins árs systurson Andreu sem býr úti á landi en er hjá ömmu sinni og afa um þessar mundir. Það er frekar fyndið að fylgjast með þeim frændum, Kári Björn fylgist með litla frænda sínum sem fiktar í öllu og segir óóóóó þegar hann gerir eitthvað sem Kári veit að ekki má (eins og að fikta í snúrum eða eldhússkápum). Þar sem hann getur ekki sagt okkur frá því hvað hann er að hugsa ímyndum við foreldrarnir að hann sé annaðhvort að benda frænda sínum á að þetta megi ekki, eða sé svona hissa á að frændinn skuli ekki vita að þetta sem hann sé að gera sé bannað.
Við höfum líka kíkt í heimsókn í vinnurnar okkar og farið í búðir og til læknis. Að öðru leyti höfum við verið frekar mikið út af fyrir okkur. Nú getum við farið að fikra okkur áfram með að hitta fleira fólk þar sem heimsóknir gengið vel fyrir sig hingað til. Enn sem komið er erum við þó ekki tilbúin til að taka á móti heimsóknum (nema Kári sé sofnaður) því við þurfum aðeins lengri tíma til að aðlagast fyrst.
Kári Björn er farinn að sofa í sínu rúmi eftir að foreldrarnir fengu nóg að því að láta sparka í sig alla nóttina. Það gengur ekki alveg átakalaust fyrir sig, en það á eftir að koma betri reynsla á þetta. Við erum enn að fikra okkur áfram með svefninn, Kári þarf að leggja sig á daginn og þá daga sem það tekst ekki er hann afskaplega þreyttur og pirraður þegar líður á daginn. Sum kvöld sofnar hann svo á nokkrum mínútum en stundum tekur það ansi langan tíma að fara að sofa. Þar sem þetta er frumraun okkar í foreldrahlutverkinu vitum við ekki alveg hvað sé eðlilegt í þessu öllusaman og erum að prófa okkur áfram. Við gerum samt ráð fyrir að þetta, eins og ýmislegt annað, komi með tímanum.
Kári borðar mjög vel, stundum álíka mikið og mamma sín. Hann vill flest það sem við bjóðum honum uppá, en er þó ekki hrifinn af grænmeti, það er helst soðið brokkolí sem fer upp í hann. Skyr er í miklu uppáhaldi hjá honum en hann er hættur að borða jafn mikið af bönunum og áður. Læknirinn sem skoðaði hann sagði okkur að það væri mjög algengt að börn sem eru ættleidd erlendis frá borði mjög mikið fyrst eftir að þau komi heim og taki þá mikinn vaxtakipp en svo hægist á átinu og vextinum eftir það. Við eigum því von á að Kári Björn eigi eftir að stækka mikið á næstunni.
Læknisskoðunin gekk ágætlega fyrir sig, Kári var ekkert voðalega hress með að láta pota í sig og það komu þónokkur tár, en hann stóð sig bara vel. Enn sem komið er hafa öll próf (blóðprufur, þvagprufur osfvr) komið vel út, en við förum í fleiri skoðanir í næstu viku. Kári Björn kemur til með að þurfa að fara í amk eina aðgerð, en það á eftir að koma í ljós hvernig verður með það.
Kári Björn heldur áfram að vera mjög hrifinn af köttum og hundum, Birta kötturinn okkar er yfirleitt frekar fljót að forða sér þegar hann nálgast þótt hann sé oftast góður við hana (hún veit að hann á það til að vera harðhentur). Þegar við erum úti er Kári mjög glaður ef við fáum að klappa hundum sem við hittum og vill helst ekki kveðja þá. Þegar hann heyrir í flugvél horfir hann til himins og bendir svo á flugvélina, það sama gerir hann ef hann sér strætó (eða flutningabíla), finnst það greinilega mjög merkileg fyrirbæri.
Kári er ekki mjög spenntur fyrir sjónvarpinu, það er helst ef það eru hundar eða kettir á skjánum eða verið að dansa og syngja. Honum finnst gaman að hlusta á tónlist, sérstaklega ef foreldrarnir syngja með, og reynir stundum að syngja með þótt hann kunni ekki orðin.
Hann skilur ótrúlega mikið en tjáir sig mest með látbragði. Það eru að myndast nokkur orð hjá honum, það sem er mest notað þessa dagana er líklega "jæja". Við foreldrarnir þurfum mjög oft að giska á hvað það er sem Kári er að meina, en það gengur bara sæmilega vel. Kannski finnst honum við voðalega vitlaus að skilja svona lítið...
Yfirleitt er Kári Björn kátur og glaður, hann á það þó til í að breyta skapi mjög hratt. Hann vill vera mjög mikið hjá okkur og láta halda á sér. Við foreldrarnir erum frekar þreytt þessa dagana því lífið okkar núna er mjög breytt frá því sem var þegar við höfðum endalausan tíma til að slappa af. En það sem við fáum í staðinn fyrir frítíma er þessi (oftast) frábæri strákur sem við getum ekki hugsað okkur að vera án.
Oh hvað það er gaman að sjá aftur blogg hjá ykkur og fá fréttir af Kára. Hann er ótrúlega hugrakkur og duglegur strákur að fóta sig í þessu nýja lífi og átta sig á tilverunni.
ReplyDeleteGangi ykkur vel með svefnmálin hans og þ.a.l ykkar líka. Það er allt svo miklu betra þegar allir fá að sofa vel á nóttunni.
Kveðja, AnnaLú
Það er svo gaman að lesa bloggið ykkar. Ég vil bara meir og meir... Hlakka til að sjá ykkur.
ReplyDeleteKnús M
Takk fyrir að vera svona dugleg að blogga um lífið ykkar:-)
ReplyDeleteKv. Heiðrún Bj.