Sunday, September 2, 2012

Róló, ís og hjól

Fyrsta helgin okkar litlu fjölskyldunnar gekk bara vel fyrir sig. Kári Björn er hrifinn af að vakna snemma þannig að foreldrarnir þurftu að sætta sig við að vakna klukkan sex og hálfsjö. Að sofa út um helgar er víst búið hjá okkur í bili.

Kári Björn prófaði ýmislegt í fyrsta skipti núna um helgina. Hann prófaði þríhjólið sem frænka hans var svo góð að lána honum og skemmti sér vel við að ýta sér áfram á hjólinu við húsið. Honum langaði samt meira að sitja á stóru hjólunum, en þótt við séum komin með barnastól á hjól þá þurfum við að kaupa hjálma áður en við förum í hjólatúr. Kári á eflaust eftir að skemmta sér vel við að sitja aftan á stóru hjóli miðað við áhugann sem hann hefur á að skoða alls konar hjól.


Við fórum líka út á róló um helgina og hittum þar systur Brjáns og hennar fjölskyldu. Kára Birni kom bara vel saman við frændsystkini sín og skemmti sér vel við að róla og renna í rennibrautunum. Nýji pollagallinn og stígvélin komu sér líka mjög vel þegar Kári fann poll til að sulla í.


Núna í kvöld fórum við svo í mat til foreldra Andreu þar sem afinn átti afmæli og Kári Björn stóð sig eins og hetja í nýju umhverfi. Hann lék sér, klappaði heimiliskettinum, prílaði í tröppunum og borðaði alveg helling. Svo smakkaði hann ís í fyrsta skipti og þótt fyrstu viðbrögðin hefðu verið svoldið óviss þá ákvað hann að ís væri góður og vildi endalaust fá meira.

Á morgun erum við búin að vera fjölskylda í tvær vikur. Enn sem komið er gengur bara mjög vel og okkur foreldrunum finnst strákurinn okkar langoftast vera æðislegur. Hann er skemmtilegur og yfirleitt glaður og kátur þótt hann eigi það til að vera erfiður. Það er ekki mikill dauður tími hjá okkur og Kári sér til þess að við höfum nóg að gera.


Honum finnst gaman að láta kitla sig og líka að kitla foreldrana. Hann er mjög hrifinn af tröppum (og rúllustigum og lyftum) og vill helst labba upp og niður allar tröppur sem hann sér. Kári Björn er afskaplega hrifinn af dýrum og vill klappa öllum köttum og hundum sem hann sér. Stundum á hann það til að kyssa myndir af hundum eða köttum sem eru í bókunum hans, en annars segir hann næstum alltaf aaaaa þegar hann sér dýrin. Við erum búin að vera að skoða nokkrar dýrabækur og gefa frá okkur dýrahljóð (mee, möö, osfrv) og það er alveg hrikalega fyndið þegar Kári reynir að herma eftir öskri tígrisdýra og ljóna.

Það eru að myndast vísar að nokkrum íslenskum orðum, eins og "drekka", "meira" en orðin eru frekar óskýr ennþá. Hann skilur samt alveg heilmikið og við erum líka dugleg að nota tákn og bendingar til að gera okkur skiljanleg. Kára finnst rosalega gaman að skoða myndir af sjálfum sér og bendir stundum á myndavél og svo sjálfan sig, til að gefa til kynna að nú eigum við að taka af honum mynd.

Á morgun fer Kári Björn í læknisskoðun og ef marka má síðustu heimsókn til lækna þá eiga eflaust einhver tár eftir að renna á morgun, enda ekkert skemmtilegt að láta pota í sig.


5 comments:

  1. Gaman hvað Kári er tilbúinn að prófa allt eins og að hjóla og smakka nýjan mat.

    Manni sýnist að þetta sé allt saman bara alveg normal.... það er að ykkur finnst kúturinn ykkar langoftast vera alveg æðislegur. Trúi ekki foreldrum sem segja að börnin þeirra séu ALLTAF æðisleg.
    AnnaLú

    ReplyDelete
  2. anna ef það væri til læk hnappur hér,þá hefði ég gert like :)

    ReplyDelete
  3. Vona að læknaheimsóknin hafi gengið vel, en það er greinilega nóg að gera hjá ykkur:-) Gaman að sjá hvað gengur vel...
    Knús Heiðrún Bj.

    ReplyDelete
  4. ...engar nýjar fréttir af Kára Birni?

    ReplyDelete
  5. Big læk á kommentið frá Önnu :)

    ReplyDelete