Já, strákurinn okkar er búin að eiga afmæli og orðinn þriggja ára. Hann var ekkert smá ánægður með þetta allt saman, fékk meira að segja tvær afmælisveislur með nokkurra daga millibili. Fyrst var fjölskyldan mætt og í seinna skiptið vinir okkar Brjáns sem eiga krakka sem Kári hefur leikið sér við. Hann stóð sig bara vel og þegar tími var kominn til að borða í seinna afmælinu þá hjálpaði hann til við að smala krökkunum og foreldrum þeirra að borðinu. Ég ætlaði að reyna að setja inn vídeó af afmælissöngnum, en það var ekki alveg að virka.
| Með fyrri afmæliskökuna, bíl. |
| Við mæðginin að bíða eftir gestunum. Kakan var bátur í þetta skiptið og diskar og fleira með myndum úr Toy story, enda eru Bósi og Viddi í miklu uppáhaldi. |
| Með afa sínum að skoða páskaeggið. |
| Á röltinu við bústaðinn. |
Við erum búin að fá að vita að Kári mun byrja 19. ágúst á leikskólanum Brákarborg. Við höldum að hann eigi eftir að líka mjög vel við sig þar og eigi eftir að vera mjög glaður að hitta krakka á hverjum virkum degi. Það kemur svo bara í ljós hvernig aðlögunin gengur. Við ætlum svo eitthvað að kíkja í heimsókn á leikskólalóðina á meðan krakkarnir eru úti að leika, svona fyrst að það er möguleiki. Kári er nefnilega alveg afskaplega hrifinn af því að hitta krakka.
Kári heldur áfram að vera algjör dúlla og líka algjör gaur. Hann vaknar alltaf á morgnana glaður og ánægður og það er frábært hvað hann virkar yfirleitt alltaf hamingjusamur. Hann á þó sín frekjuköst og pirringsmóment eins og allir.
Upp á síðkastið blaðrar hann mjög mikið, yfirleitt eitthvað óskiljanlegt og við vitum ekki alveg hvort hann heldur að hann sé að segja eitthvað sérstakt eða hvort hann sé bara að æfa sig í að gefa frá sér alls konar hljóð. En honum fer allavega fram í talinu, þótt það þyrfti helst að fylgja orðabók með honum fyrir aðra en okkur foreldrana.
Við Kári hittum Íþróttaálfinn og Sollu stirðu í Krónunni um daginn. Kári var himinlifandi með að hitta þau og enn glaðari að fá að fara í fangið á þeim. Hann fór hins vegar að hágráta þegar tími var kominn til að fara heim og vildi fara með þeim heim í Latabæ.
![]() |
| Að fara í strætó er eitt það skemmtilegasta sem Kári gerir. |




Æðislegar afmæliskökur, múttan alveg að standa sig :)
ReplyDelete