Wednesday, February 20, 2013

Sex mánuðir

Í dag eru akkúrat sex mánuðir síðan við Brjánn hittum Kára Björn í fyrsta skipti. Við munum aldrei gleyma því þegar við heyrðum fyrst í stráknum okkar, grátandi á leið inn á hótelið okkar. Hann hætti svo að gráta þegar hann fékk snakkpoka og var svo eftir það til í að skoða okkur aðeins.
Núna þegar hálft ár er liðið finnst okkur bæði skrýtið hvað tíminn hefur liðið hratt og líka ótrúlegt að það sé ekki lengra síðan. Við munum alveg vel eftir því hvað lífið okkar var þægilegt á meðan við vorum barnlaus en getum núna ekki hugsað okkur lífið án Kára okkar.

Kári Björn heldur annars áfram að vera kátur og glaður svona oftast nær. Þessa dagana er hann mjög upptekin af því að allir fari eftir reglunum eins og að sitja þegar maður borðar, stoppa á rauðu ljósi og sitja og halda sér þegar maður rólar. Hann er alveg óhræddur við að minna mann á þetta og æpir oft á mann að stoppa þegar við erum í bílnum og hann sér rautt ljós framundan.
Kári er mikið fyrir að syngja og uppáhaldslögin hans eru "Höfuð, herðar, hné og tær", "Hjólin á strætó", afmælissöngurinn og Mörgæsalagið. Ég er að verða ansi þjálfuð í að syngja þau. Svo syngur Kári oft líka, en við áttum okkur engan veginn á því hvaða lag/lög hann reynir að syngja.

Latibær er í miklu uppáhaldi hjá Kára og Halla virðist vera uppáhaldspersónan hans úr þáttunum þótt Íþróttaálfurinn sé líka mjög spennandi. Kári Björn vill mikið vera með sólgleraugu á hausnum eins og Íþróttaálfurinn (eða Íííí eins og Kári kallar hann) og vera í bol sem hann segir að sé eins og Halla sé í. Svo eru mörgæsir líka alveg endalaust spennandi hjá litla manninum.

Kári Björn er mjög duglegur að kubba og er farinn að dunda sér svoldið við alls konar ímyndunarleiki með köllum og litlum dýrum. Hann púslar, teiknar og málar stundum en skemmtilegast er að fara í eltingaleik eða á háhest. Ferðir út á róló eða í sund eru svo alltaf jafn vinsælar.

Kári er búinn að prófa að fara í pössun hjá Atla móðurbróður sínum, sem hann er mjög hrifinn af, og það gekk bara eins og í sögu, eins og þegar hann hefur verið passaður af móðurömmu sinni og -afa.

Hér eru svo nokkrar myndir sem hafa verið teknar síðustu daga.

Að leika með kubbana.

Afmælisveisla hjá bangsanum, kaka úr leir og sunginn afmælissöngur.

Nokkur andlit Kára Björns.


1 comment: